Tíminn - 04.12.1992, Qupperneq 7
Föstudagur 4. desember 1992
Tíminn 7
Sex lífeyrissjóðir sameinaðir í Lífeyrissjóð Norðurlands. Formaður ASN:
Getur auðveldað sant-
einingu stéttarféiaga
I fyrradag var haldinn stofnfundur Lífeyrissjóðs Norðurlands á Blönduósi
með þátttöku sex lífeyrissjóða á Norðurlandi. Aðeins tveir norðlenskir líf-
eyrissjóðir höfnuðu aðild. Lífeyrisjóður Norðurlands tekur til starfa 1.
janúar n.k. með aðsetri á Akureyri. Stjómarformaður Lífeyrissjóðs Norður-
lands er Kári A. Kárason, formaður Alþýðusambands Norðurlands.
Kári A. segir að það sé ekki úti-
lokað að þessi sameining lífeyris-
sjóðanna geti auðveldað samein-
ingu stéttarfélaganna á Norður-
landi. En á nýafstöðnu þingi ASÍ
sagði formaður Einingar á Akur-
eyri að réttast væri að stefna að
stofnun Verkalýðsfélags Norður-
lands.
Aðilar að hinum sameinaða Líf-
eyrissjóði Norðurlands eru Lífeyr-
issjóðurinn Björg á Húsavík,
Lífeyrissjóðurinn Sameining á
Akureyri, Lífeyrissjóður trésmiða
á Akureyri, Lífeyrissjóður Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks á Akureyri,
Lífeyrissjóður stéttarfélaganna í
Skagafirði og Lífeyrissjóður verka-
manna á Hvammstanga. Þá hefur
Lífeyrissjóður Verkalýðsfélags A-
Húnvetninga á Blönduósi sótt um
inngöngu í Lífeyrissjóð Norður-
lands. Aftur á móti hafnaði Lífeyr-
issjóður verkalýðsfélaganna á
Norðurlandi aðild að hinum nýja
sjóði og sömuleiðis Lífeyrissjóður
KEA á Akureyri.
Kári A. Kárason, formaður ASN
og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
Norðurlands, segir að með þessari
sameiningu sjóðanna í einn stóran
og öflugan lífeyrissjóð muni
rekstrarkostnaður minnka til
muna. Sömuleiðis mun sjóðurinn
verða betur í stakk búinn til að
mæta staðbundnum áföllum og
auka áhættudreifinguna, en síðast
en ekki síst verður hann þess um-
kominn að veita félagsmönnum
sínum vandaðri og betri þjónustu.
Þótt Lífeyrissjóður Norðurlands
taki til starfa í byrjun næsta árs,
munu aðildarsjóðirnar fá 2 ár til
að taka til á borðum sínum og á
næsta ári verður gengið í það að
koma skikki á starfsmannahaldið.
Búist er við að núverandi starfs-
mönnum lífeyrissjóðanna verði
fækkað um 40% og þá ekki síst
„smákóngunum", sem að jafnaði
eru langdýrasta vinnuaflið.
Umræðan um nauðsyn þess að
sameina lífeyrissjóðina hófst að
marki árið 1987, en skriður komst
á málið tveimur árum seinna. Það
var svo í fyrra sem skipuð var sam-
starfsnefnd stéttarfélaga og at-
vinnurekenda til að vinna að fram-
gangi sameiningarinnar.
-grh
Samningamálin:
Póst-
menn
segja
upp
Stjóm og samninganefnd
Póstmannafélags íslands
ákvað einróma á fundi 1. des.
sl. aö segja upp gildandi kjara-
samningum félagsins við fjár-
málaráðherra fyrir hönd ráds-
sjóðs.
Ákvörðunln var tilkynnt fjár-
málaráðherra bréflega og þar
er vitnað í miðlunartillögu
sáttasemjara þar sem segir að
forsenda samninga frá 1. maí
1992 sé að gengi krónunnar
verði stöðugt á samningstím-
anum, ella verði þeir uppsegj-
anlegir með eins mánaðar fyr-
irvara.
„Skriðuföll og snjóflóð" í nýrri útgáfu og „Flóra Islands og N-Evrópu“.
Rætt við Eyjólf Sigurðsson, útgáfustjóra Skjaldborgar, um bækurnar í ár:
Hef áhyggjur af virðis-
aukaskattinum á bækur
„Ég held bjartsýninni um bóksöl-
una í ár, enda er verðið gott og hef-
ur ekki hreyfst í þijú ár,“ segir Eyj-
ólfur Sigurðsson, útgáfustjóri
Skjaldborgar, þegar við ræðum bók-
söluhorfur við hann og þær bækur
sem nú eru óðum að koma á mark-
að frá forlaginu. „Aftur á móti hef
ég meiri áhyggjur af næsta ári, þeg-
ar virðisaukaskatturinn verður
kominn á að nýju. Því miður sýnist
mér, af öllu að dæma, að þessi orr-
usta við stjómvöld sé töpuð. Þetta
tel ég mjög miður, því bókin var
komin í hættu þegar skatturinn var
tekinn af. Við búum okkur því und-
ir erfiðari tíma. En í ár er ég ekki
svo kvíðinn og útgáfan er blómleg.
Alls em bókatitlar hjá Skjaldborgu
um áttatíu talsins.
Ævisögur
,Af innlendum bókum má byrja á
að geta æviminningabóka. Ein hefur
að geyma minningar Skúla Hall-
dórssonar og er það bókin „Lífsins
dóminó," rituð af Ömólfi Ámasyni,
merk bók um þetta þekkta og vin-
sæla tónskáld. Þá em það endur-
minningar Þómnnar Maggýar mið-
ils, sem eflaust mun ná mikilli sölu,
og æviminningar Guðbrands Hlíðar
dýralæknis — „Eyrnatog og stein-
bítstak" heitir hún. Hálf-ævisöguleg
er bókin „Rassinn á Sámi frænda."
Hún er eftir Bandarfkjamann sem
var í störfum hjá bandaríska hern-
um, en er nú er kvæntur íslenskri
konu og farinn að róa á báti frá
Grindavík. Hann hefur margt heldur
misjafnt um vistina hjá hemum að
segja, þótt bókin sé rituð af skop-
skyni og glettni.
„Skriðuföll og snjó-
flóð“ í nýrri útgáfu
Þá kynnum við með nokkm stolti
tólf hundmð síðna heimildarit, sem
er „Skriðuföll og snjóflóð". Þessi bók
kom fyrst út 1957, en er nú gefin út
aukin að frásögnum sem ná allt til
1990. Annað heimildarit, en ólíkrar
tegundar, er „Kóng viljum við hafa“.
Hún segir frá því er þeir Guðmundur
Kamban, Kristján Álbertsson og Jón
Leifs hittu þýskan prins að máli og
leituðu eftir að hann tæki við kon-
ungdómi á íslandi. Þetta hefur löng-
um verið hálfgert feimnismál víða
held ég að orrustan viö stjórn-
völd um virðisaukaskatt á bækur
sé töpuð.“ Tímamynd Ámi Bjama
og er líklegt til að vekja vemlega for-
vitni.
Tíðindum sætir ný bók eftir Kjartan
Ólafsson, sem er þekktur fyrir ein-
stæðar ferðasögur sínar og ekki síð-
ur ritsnilli. Bókin er um ferð sem
hann fór fyrir allmörgum ámm um
fimm lönd — Ceylon (Sri Lanka), ír-
an, Afganistan, Pakistan og Nepal.
„Þeir létu ekki deigan síga“ er heiti
frásagna eftir Braga Sigurjónssonar
af síldarkóngum á Norðausturlandi
og meiri persónufróðleik má sækja í
sjötta bindið af Vestur-íslenskum
æviskrám, sem er einnig komið út.
Þetta er lokabindi þessarar miklu út-
gáfu, en hún kom í okkar hlut eftir
að við keyptum Bókaforlag Odds
Björnssonar.
„Svipmyndir úr réttarsögu" er bók
eftir Pál Sigurðsson prófessor. Þetta
er hin athyglisverðasta bók, en hún
fjallar um réttarhöld og lög okkar
eins og þau birtast í Jónsbók.
Ný skáldsaga eftir Þráin Bertelsson
kemur og út og heitir hún „Sigla
himinfley". Þetta er mjög skemmti-
leg bók og er sögusviðið Vestmanna-
eyjar.
„Flóra íslands og N-
Evrópu“
Margt er að vonum erlendra bóka í
útgáfu okkar í ár. Þar ber einna hæst
ritið „Flóra íslands og N-Evrópu“, en
þetta er 600 síðna verk, prentað í
fjómm litum og sýnir allar jurtir
sem finnast norðan Alpafjalla nema
grös. Bókin er talin merkilegasta
flóm-bók, sem út hefur komið í Evr-
ópu, og er hún unnin í samvinnu við
breska útgefendur. Þýðendur em
þeir snillingarnir Óskar Ingimarsson
og Jón Ó. Edwald.
Annað rit sem tengist jurtum er
„Náttúmlæknir heimilanna". Þar er
sagt frá ýmsum lækningaaðferðum,
er beitt var hér áður fyrr, þar á með-
al notkun á grösum og fleira.
„Réttlæti en ekki hefnd" heitir bók
um ævi og starf Simonar Wiesen-
thal, sem ég fyrir mitt leyti er mjög
snortinn af og veit að vekja mun at-
hygli, enda efnið enn í fullu gildi.
Árbækur hesta- og
knattspymumanna og
fjöldi bamabóka
Tveggja hestabóka vil ég geta. Þær
em viðtöl við hestamenn eftir Hjalta
Jón, — „í fararbroddi — hestamenn
af lífi og sál“, heitir hún — og árbók-
in „Hestar og menn“. Önnur árbók af
íþróttasviði er „íslensk knattspyrna"
sem nú birtist að vanda.
Síðast en ekki síst get ég barnabók-
anna, en vegna fjölda þeirra em ekki
tök á að minnast á nema þær ís-
lensku að nokkm. „Rebbi fjallarefur"
er eftir Helga Jónsson, fiskverkanda í
Ólafsvík og gamalvanan veiðimann.
Þetta er stór og mikil bók og prýdd
ágætum myndum eftir Robert
Schmidt á Bíldudal. Sagan er sögð af
sjónarhóli refsins og afar tilþrifamik-
il og fjörleg. Þá kemur ný bók eftir
Heiðdísi Norðíjörð á Akureyri og
heitir hún „Stríðinisstelpa". Önnur
bók íslensks höfundar er „Tveir
krakkar og kisa“ eftir Jón Dan.
Fjórða íslenska barnabókin er „Ponni
og fuglarnir“ eftir Atla Vigfússon á
Laxamýri og gerist í æðarvarpinu.
Hana hefur Hólmfríður Bjartmarts-
dóttir frá Sandi myndskreytt. „Myrkj-
ur í maí“ heitir svo bók eftir Helga
Jónsson frá Ólafsfirði, en í fyrra kom
út bók hans „Nótt í borginni" sem
seldist ágætlega. Hér hef ég talið
nokkuð af því sem hæst ber, en það er
mikið sem ótalið er og em menn vel-
komnir til okkar í Ármúla 23 að
kynna sér úrvalið," sagði Eyjólfur
Sigurðsson að lokum.
▲ a'■. a .
§ «
íióiMÍmbuIéíummIioiíRverði
liiyKOKURlMBðliWároMl
■MÉMHUWpL
V
f ðvSfcs.
V *&'*&*». ‘
t .........
%
j