Tíminn - 31.12.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 31.12.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 31. desember 1992 Tíminn 9 virðist Rama að sama skapi hafa vaxið í áliti hjá hindúum. Rama er í hindúasið avatara eða holdtekja Vishnús, guðs þess er öllu heldur við og birtist meðal manna þegar mikið liggur við. í sögnunum er Rama hetjan óvið- jafnanlega sem ver heim goða og manna fyrir illvættum, einskonar jötnum sem hann fellir hrönnum eins og Þór. Ravana hét jötnakon- ungur er rændi Sítu, konu Rama og hamingjugyðju í hindúasið. Rama bjargaði henni og drap Ra- vana. Ekki er ólíklegt að hindúar eigi auðvelt með að sjá Ravana, sem hafði tíu höfuð, fyrir sér sem tákn margra ríkja íslamsheims, er nær frá Atlantshafi til Kyrrahafs og hefur mikil ítök f Afríku sunn- an Sahara og jafnvel í Evrópu. Síðasta orð Gandhis Sagnirnar um Rama eru gagn- teknar af sennu góðs og ills, þar sem Rama er kappi hins góða og sigrar að lokum, þótt við ofurefli sé að etja. Hann er þar að auki ímynd yfirvegunar og skynsemi, fyrirmyndar eiginmaður og (sam- kvæmt sögnunum) fyrsti konung- ur Indlands, sem hann gerði að sæluríki. Indverskur blaðamaður skrifar að fyrsta sagan, sem flestum ind- verskum börnum sé sögð, sé sag- an af Rama, ævintýrum hans og frægðarverkum. Rama verði því öðrum fremur fyrirmynd hindúa frá blautu barnsbeini. „Ram! Ram!“ segja vinir þegar þeir heils- ast af innileik. Rama er sá guð hindúasiðar sem oftast er ákallað- ur við dauðsföll og deyjandi menn láta nafn hans gjarnan verða sitt síðasta orð hérna megin. Þegar Mahatma Gandhi var skotinn til bana (af heittrúarhindúa), var það síðasta sem hann heyrðist stynja upp: „Ehl Ram!“ Áður hafði Gandhi eggjað sjálf- stæðissinnaða landa sína gegn Bretaveldi með því að benda þeim á Rama sem fyrirmynd. Með hlið- sjón af þeim gffurlegu áhrifum sem Gandhi hafði, má ætla að hann hafi með því átt talsverðan þátt í eflingu Ramadýrkunar. Stöðug spenna milli hindúa og múslíma eftir 1947 stuðlaði að því sama. Árið 1949 settu heittrúarhindúar nokkrir upp líkneskjur af Rama inni í Babúrsmosku í Ayodhya. Stjórnvöld tóku það þá til bragðs að girða kringum moskuna og banna bæði hindúum og múslím- um þar aðgang. Þrátt fyrir nokk- urt nöldur út af þessu virtust báð- ir aðilar ætla að láta við svo búið sitja. Kosningaloforð Rajivs En það fór á aðra leið á forsætis- ráðherratíð þeirra mæðgina Ind- iru og Rajivs Gandhi. Lágstétta- hindúar og múslímar, lengi trygg- ir kjósendahópar Þjóðþings- flokksins, sneru þá margir við honum baki og til að bæta sér það upp tók Indira að stfga í vænginn við efristéttahindúa, sem allmarg- ir eru heittrúaðir og þjóðernis- sinnaðir. Samtök heittrúarhindúa höfðu lengi krafist þess að mosk- an á fæðingarstað Rama yrði rifin og hof reist þar í staðinn. Rajiv kom til móts við þá með því að leyfa aðgang að moskulóðinni á ný (1986) og lofaði meira að segja í einni kosningaræðunni að end- urreisa dýrðarríki Rama. Þar með varð Babúrsmoska í Advani (í miöiö), leiötogi BJP: hof skal reist á rústum mosku. .Blossarnir‘ sýna hvar f Indlandi, Pakistan og Bangladesh kom til illinda með brennum og hryöjuverkum milli hindúa og múslíma eftir niöurrif mos- kunnar í Ayodhya. Ayodhya brennidepill átakanna milli hindúa og múslíma. Fyrir Rajiv kom opnun moskulóðarinn- ar ekki að tilætluðum notum. Múslímar vildu enga eftirgjöf við hindúa í máli þessu og gerðust við þetta enn fráhverfari Rajiv og heittrúarhindúar þökkuðu und- anlátssemi hans Bharatiya Janata Party (BJP), sem lengi hafði beitt sér fyrir áhugamálum heittrúar- hindúa. Lal Krishna Advani, leið- togi flokksins sem sagður er eiga gott með að ná til fjöldans, fylgdi þessum árangri eftir með mikið auglýstri pílagrímsför til Ayodhya 1990. Ók hann þá í vagni, smíðuð- um upp úr Toyota-bfl þannig að hann líktist vagni Rama. Stjórn- völd óttuðust óspektir og létu stöðva Advani áður en hann komst á leiðarenda. Heittrúar- hindúar reiddust og kom til heift- arlegra illinda með þeim og músl- ímum; um 1000 voru þá drepnir. Við það beindist reiði fjölmargra hindúa gegn stjórnvöldum og fylgi BJP jókst stórum. í kosning- unum til sambandsþings 1986 fékk flokkurinn aðeins tvö þing- sæti, 1990 fjölgaði þeim upp í 119 af 545 alls. BJP er þar með stærsti stjórnarandstöðuflokkur Ind- landsþings og stjórnarflokkur f fjórum fylkjum, þ.á m. Uttar Pra- desh, fjölmennasta fylki landsins, þar sem Ayodhya er. Ný stöðugleika- ímynd Einföldun væri þó að halda því fram að Ramatrúin, ásamt með óvild í garð og ótta við múslíma, væri eina ástæðan til fylgisaukn- ingar BJP. Að henni hefur einnig stuðlað að fleiri og fleiri lands- menn hafa gerst leiðir á Þjóð- þingsflokknum. Hann er í margra augum orðinn þreyttur og spillt- ur kerfisflokkur. Flokkabandalög gegn honum hafa orðið endingar- lítil, enda að margra áliti reynst enn spilltari. Það átti sinn þátt í að helsta andstaðan, sem um langt skeið þróaðist fram gegn Þjóðþingsflokknum, voru flokkar tengdir ákveðnum fylkjum og þjóðernum. Það jók sundrungu innanlands. Sú sundrung, sem gengið hefur lengst með sjálf- stæðisstríðunum í Punjab, Ka- smír og Assam, varð vatn á myllu BJP, sem mörgum hindúum þykir vera traustvekjandi stöðugleikaafl vegna þess að hann boðar einingu þeirra allra á grundvelli trúar þeirra og menningar. Að fyrirmynd Rama leggja flokk- urinn og samtök honum tengd áherslu á sjálfsaga og boða útrým- ingu spillingar. Það finnst ófáum álitlegt, sökum þess hve „agi er sjaldgæfur á Indlandi", eins og breskur blaðamaður orðar það. Heittrúarhindúar hafa reist til bráðabirgða Ramahelgidóm á rústum Babúrsmosku. Héðan af eru litlar líkur á að þeir sætti sig við neitt minna en að Ramahof verði reist þar. Múslímar krefjast þess ekki síður eindregið að Ba- búrsmoska verði endurreist ná- kvæmlega þar sem hún stóð. For- usta Þjóðþingsflokksins með nú- verandi forsætisráðherra, Naras- imha Rao, á oddinum, hefur orð á sér fyrir langþróaða lempni og slægð við samningagerð og mála- miðlanir. Hætt er við að ekki muni af því veita fyrir hana á næstunni. Oskum viðskíptavinum okkar farsældar á nýja árinu Þökkum ánægjuleg viðskipti á liðnum árum Ingvar Helgason hf. Sævsrhöföa 2 Simi 91-674000 NISSAN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.