Tíminn - 31.12.1992, Side 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 31. desember 1992
Janúar
Nánast allt undirlendi Borgarfjarðar fór á kaf í kjölfar mikilla flóða
um miðjan janúar. Á myndinni má sjá hvernig umhorfs var í kring-
um Hvítarbakka, sem er nánast eins og eyja.
Hestar til Samabyggða
Tuttugu til þrjátíu íslenskir hestar
verða fluttir til Samabyggða í vor í
tilraunaskyni. Ætlunin er að þeir
leysi af hólmi vélhjól og sleða við
smölun hreindýra, þar sem ökutæk-
in hafa ekki reynst vel og m.a. leitt
til nýrna- og liðamótakvilla hjá
smalamönnum auk blóðrásartrufl-
ana.
Síldarkaup í uppnámi
Landsbanki íslands hætti við aö
lána Rússum 800 miljónir króna til
kaupa á íslenskri síld eftir að stjórn-
völd lögðust gegn því og Seðlabank-
inn taldi þau áhættusöm. Málið
kom til umræðu á Alþingi þar sem
ríkisstjórnin var harðlega gagn-
rýnd, en forsætisráðherra vísaði á
Landsbankann. Jafnframt gagn-
rýndi verkalýðshreyfingin ríkis-
stjórnina fyrir aðgerðaleysi. Hins-
vegar náðist í lok mánaðarins sam-
komulag milli Seðlabanka íslands
og utanríkisviðskiptabanka Rúss-
lands um greiðslufyrirkomulag á
grundvelli viðskiptasamnings land-
anna, sem þýddi að hægt var að
hefja söltun á 30 þúsund tunnum á
Rússlandsmarkað.
Fríða fékk bók-
menntaverðlaunin
Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfund-
ur hlaut Bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs fyrir skáldsöguna
„Meðan nóttin líður". Hún sagðist
gleðjast fyrir hönd íslenskra bók-
mennta, en hún er jafnframt fjórði
íslendingurinn sem hlýtur þessi eft-
irsóttu verðlaun.
Greiddu sjálfum sér
900 milljónir
Hluthafafundur Sameinaðra verk-
taka ákvað að greiða hluthöfum
samtals 900 milljónir króna af
hlutafé fyrirtækisins. Þetta var gert
með því að gefa út jöfnunarhluta-
bréf að andvirði 900 milljónir. Með
því móti komust hluthafarnir hjá
því að greiða skatt af miiljónunum.
Vakti þessi gjörningur mikla reiði
meðal almennings og kom m.a. til
umræðu á Alþingi. Þar kom fram að
eðlilegur skattur af þessum pening-
um skilaði álíka upphæð í ríkissjóð
og verið væri að taka af ellilífeyris-
þegum með skerðingu ellilífeyris.
Skipaútgerðin hættir
Reglulegri starfsemi Skipaútgerðar
ríkisins verður hætt um mánaða-
mótin. Öll þrjú skip fyrirtækisins
hafa verið seld, Esja og Hekla til
Samskipa og Askja til Noregs.
Reiknað er með að 400 milljónir fá-
ist fyrir eignir fyrirtækisins og hef-
ur öllu starfsfólki verið sagt upp
störfum frá og með næstu mánaða-
mótum. Harðar umræður urðu á Ai-
þingi um málsmeðferð samgöngu-
ráðherra á málefnum Ríkisskipa og
var hann m.a. sakaður um ósann-
sögli.
%
Á nýársmorgun var rússneski
fáninn dreginn í fyrsta sinn aö
húni á sendiráðinu við Garða-
stræti. Jafnframt var búið að
taka niður skiltið með hamri og
sigð, sem vísaði á sendiráð
Sovétríkjanna. Tímamynd: oó
Niðurskurði mótmælt
Ríkisstarfsmenn og aðrir mót-
mæltu niðurskurði stjórnvalda á
velferðarkerfinu og miðaði lítt í
samningagerð ríkisins við opinbera
starfsmenn, en aðildarfélög ASÍ
voru á fullu í sérkjaraviðræðum við
atvinnurekendur. Fjölmennir mót-
mælafundir voru haldnir gegn nið-
urskurðartillögum stjórnvalda í vel-
ferðarkerfinu. Þá var bandormurinn
samþykktur á Alþingi, en aðalinntak
laganna er að hækka sértekjur og
draga úr greiðslum úr trygginga-
kerfinu. Jafnframt var ákveðið að
fækka í bekkjum og kennslustund-
um, tekjutengja ellilífeyri, réttindi
launafólks minnkuð við gjaldþrot
fyrirtækja, og sjúklingar látnir
greiða meira fyrir unnin læknis-
verk, svo nokkuð sé nefnt.
Þjóðviljinn hættir
Síðasta dag janúarmánaðar kom
síðasta eintak Þjóðviljans út og lauk
þar með rúmlega hálfrar aldar út-
gáfu blaðsins.
Febrúar
Jón og Þröstur hlupu
á brott
Á kynningarfundi Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráðherra í
Ýdölum um GATT-tilboð Dunkels
fengust ekki ræddar ályktunartil-
lögur sem tveir fundarmanna báru
upp. Það var ekki fyrr en utanríkis-
ráðherra og aðstoðarmaður hans
Þröstur Ólafsson sem jafnframt var
fundarstjóri, voru hlaupnir af fundi
að tillögurnar boru bornar upp og
samþykktar á nýjum fundi sem
skotið var á eftir að þeir fóstbræður
höfðu yfirgefið staðinn í fússi.
Klúbburinn brann
Hinn landsfrægi Klúbbur við Borg-
artún skemmdist illa í eldi og leikur
grunur á að kveikt hafi verið í hús-
inu. Staðurinn hafði verið rekinn
undir nafninu Sportklúbburinn um
nokkurt skeið og í kjölfar brunans
var eigandinn handtekinn. Hann sat
í gæsluvarðhaldi um tíma en neitaði
staðfastlega öllum ásökunum og var
sleppt. Húsið var síðan rifið og á
grunni þess er að rísa skrifstofu- og
verslunarhúsnæði.
Hjalti féll
Kraftlyftingakappinn Hjalti „Úrs-
us“ Árnason féll á lyfjaprófi, en sýni
voru tekin úr kappanum þegar hann
varð heimsmeistari í kraftlyftingum
í fyrra. Of mikið af testósteron karl-
hormónum mældist í líkama Hjalta.
Var hann úrskurðaður í þriggja ára
keppnisbann og til að skila gullverð-
launum sínum. Hjalti neitaði að
hafa tekið inn lyf en sagðist vera
með mikið af þessum karlhormón-
um frá náttúrunnar hendi.
Til varnar velferðinni
Samtökin Almannaheill, samtök
um réttlæti, voru stofnuð í byrjun
febrúar til varnar velferðarkerfinu
og gegn niðurskurði stjórnvalda og
héldu útifund á Austurvelli. Barátta
samtakanna beindist m.a. að handa-
hófskenndum niðurskurði stjórn-
valda á sjúkrahúsum, gegn skerð-
ingu á grunnlífeyri elli- og örorku-
lífeyrisþega, hækkun lyfjakostnaðar,
lækkun barnabóta, skertra náms-
möguleika og aukinnar kostnaðar-
hlutdeildar sjúkra, fatlaðra og aldr-
aðra.
Samningar í strand
Samningaviðræður ASÍ og at-
vinnurekenda sigldu í strand og var
vísað til ríkissáttasemjara. Jafn-
framt hvatti forysta ASÍ aðildarfélög
sín til að afla sér heimilda til verk-
falls. Jafnframt kannaði stjórn
BSRB forsendur fyrir verkfailsboð-
un meðal opinberra starfsmanna.
Atvinnuleysismet
slegið
Alls voru skráðir 87 atvinnuleysis-
dagar í síðasta mánuði og hafa þeir
aldrei verið fleiri. Það jafngildir því
að rúmlega 4 þúsund manns hafi að
meðaltali verið án atvinnu í mánuð-
inum, eða 3,2% vinnufærra manna.