Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 13
Fimmtudagur31. desember 1992
Tíminn 13
Apríl
íslenskur starfsmaður
Rauða krossins
myrtur
Jón Karlsson, íslenskur starfs-
maður Rauða krossins, var skot-
inn til bana við störf sín í Kabúl í
Afghanistan 22. apríl. Jón starfaði
við hjúkrun á sjúkrahúsi alþjóða
Rauða krossins í Kabúl og var að
sækja slasaða og særða í bæ suður
af Kabúl, þegar byssumaður hóf
skyndilega skothríð á Jón, sem
mun hafa látist samstundis. Aðra
starfsmenn Rauða krossins sakaði
ekki.
Eftir þennan hræðilega atburð
fóru margir starfsmenn Rauða
krossins frá Afghanistan, en mikil
óöld var í landinu um þær mundir
er stjórn kommúnista féll.
Jón Karlsson var 39 ára þegar
hann lést. Hann lét eftir sig konu
sem hann hafði nýlega kvænst.
Kjaradeilum lýkur
með sáttatillögu
Kjaradeilum launþega og at-
vinnurekenda lauk þegar Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari lagði fram miðlunartil-
lögu 25. aprfl, en samningar
höfðu þá verið lausir í meira en
hálft ár. Tillagan gerði ráð fyrir að
kaup hækkaði um 1,7%, láglauna-
bætur verði greiddar á laun undir
70.000, desemberuppbót hækki
um 2.000 krónur og orlofsuppbót
um 500 krónur. Samningstíminn
var 10 mánuðir eða til 1. mars
1993.
í tengslum við tillöguna voru
vextir lækkaðir á spariskírteinum
ríkissjóðs. Gerðar voru breytingar
í heilbrigðis- og tryggingamálum,
en þó vantaði mikið á að gengið
væri að kröfum launþegahreyfing-
anna í þeim efnum. Samningarnir
voru samþykktir í flestum verka-
lýðsfélögum.
Ráðhúsið vígt
Ráðhús Reykjavíkur var vígt við
hátíðlega athöfn 14. apríl, að við-
stöddu miklu fjölmenni. Við opn-
unina var leikið lag við Ijóð sem
Davíð Oddsson, fyrrverandi borg-
arstjóri, samdi. Vel var veitt af víni
og mat. Tfclið er t.d. að gestir hafi
étið um átján þúsund snittur.
Bygging ráðhússins kostaði um 4
milljarða, sem er nokkuð hærri
upphæð en reiknað var með í upp-
hafi.
Guðmundur Magnús-
son nýr þjóðminja-
vörður
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra skipaði Guðmund
Magnússon, sagnfræðing og
starfsmann Sjálfstæðisflokksins,
þjóðminjavörð. Þór Magnússon
fékk tveggja ára leyfi frá störfum
þjóðminjavarðar. Embættisveiting
þessi varð nokkuð umdeild, eins
og reyndar fleiri embættisveiting-
ar Ólafs G. á árinu.
Sá hörmulegi atburður varð
22. apríl í Afghanistan að Jón
Karlsson hjúkrunarfræðingur
var myrtur, þegar hann var
þar við störf fyrir alþjóða
Rauða krossinn. Jón er
lengst til hægri á myndinni.
Mjólkurtræöingar
fóru í verkfall
Mjólkurfræðingar fóru í verkfall
um páskana. Verkfallið stóð ekki í
marga daga, en olli verulegri rösk-
un á sölu mjólkurvara vegna þess
hve margir helgidagar tengdust
verkfallsdögunum. Auk deilu um
kaup og kjör var deilt um hagræð-
ingu í mjólkuriðnaði. Verkfallinu
lauk án þess að samningar væru
frágengnir.
Banaslys ofan við
Fáskrúðsfjörð
Maður á fimmtugsaldri lést og
sex ára sonur hans slasaðist illa, er
þeir óku á vélsleða fram af gil-
barmi í fjallshlíðinni ofan við Fá-
skrúðsfjörð á páskadag. Talið er að
faðirinn hafi látist samstundis, en
sonurinn hafi legið lærbrotinn á
þriðja tíma hjá föður sínum.
Prentvilla í
ljóði Tómasar
Meinleg stafsetningarvilla slædd-
ist inn í ljóð eftir Tómas Guð-
mundsson skáld, sem sandblásið
var á stóra rúðu í nýju ráðhúsi
Reykjavíkur. í Ijóði Tómasar,
„Júnímorgunn", átti að standa
„glóbjört minning", en stóð
„gljóbjört minning". Skipt var um
rúðuna, sem kostaði nokkur
hundruð þúsund.
Ráöhús Reykjavíkur var vígt viö hátíðlega athöfn 14. apríl.
Þetta umdeilda hús kostaði um 4 milljarða, sem er nokkuð
hærri upphæð en reiknað var með í upphafi.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABiL INNLAUSNARVERÐ* 10.000,00 GKR.
1975-1 .fl. 10.01.93 kr. 22.831,35
1975-2.fl. 25.01.93-25.01.94 kr. 17.222,79
1976-1.fl. 10.03.93- 10.03.94 kr. 16.405,87
1976-2.fl. 25.01.93-25.01.94 kr. 12.332,93
1977-1 .fl. 25.03.93 - 25.03.94 kr. 11.510,73
1978-1 .fl. 25.03.93 - 25.03.94 kr. 7.804,72
1979-1 .fl. 25.02.93 - 25.02.94 kr. 5.160,53
INNLAUSNARVERÐ*
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00
1981-1 .fl. 25.01.93-25.01.94 kr. 210.013,94
1985-1 .fl.A 10.01.93 - 10.07.93 kr. 55.439,68
1985-1. fl.B 10.01.93- 10.07.93 kr. 32.266,40**
1986-1 .fl.A 3 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 38.213,82
1986-1.fl.A4 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 42.125,23
1986-1 .fl.A 6 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 43.503,04
1986-1 .fl.B 10.01.93- 10.07.93 kr. 23.797,65**
1986-2.fl.A4ár 01.01.93-01.07.93 kr. 35.502,52
1986-2.ÍI.A 6 ár 01.01.93-01.07.93 kr. 36.589,68
1987-1 .fl.A 2 ár 10.01.93-10.07.93 kr. 30.264,38
1987-1.fl.A4 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 30.264,38
1987-1 .fl.D 6 ár 10.01.93 kr. 30.264,38
1989-1 .fl.A 2,5 ár 10.01.93-10.01.94 kr. 15.413,39
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Athygli skal vakin á lokagjalddaga spariskírteina
í 1. flokki 1975 og 1. flokki D til 6 ára frá 1987.
Reykjavík, desember 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS