Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 14

Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 14
14 Tíminn Fimmtudagur 31. desember 1992 Stjórnarbylting í menntamálaráði Maímánuður hófst með látum í menntamálaráði, því á fundi þess var gerð stjórnarbylting af fulltrú- um minnihlutaflokkanna í ríkis- stjórn, ásamt Ragnheiði Davíðsdótt- ur, fulltrúa Alþýðuflokks. Tillaga Bessíar Jóhannsdóttur um að leggja bókaútgáfu Menningarsjóðs niður, var felld og nýr formaður úr röðum minnihlutans var kosinn. Þessi kreppa fulltrúa stjórnarflokkanna endaði með því að kratar spörkuðu Ragnheiði Davíðsdóttur og náðu þar með völdum á ný. Bókaútgáfan hef- ur verið lögð niður. Norrænu bókmennta- verðlaunin Guðrún Helgadóttir, alþingismaður og rithöfundur, hlaut Norrænu bók- menntaverðlaunin fyrir bók sína, „Undan illgresinu". Matargjafir Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks í Reykjavík, lagði fram tillögu um að Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar yrði fal- ið að undirbúa stofnun og rekstur skýlis þar sem bágstöddum einstak- lingum yrði úthlutað matargjöfum. Tillaga þessi fékkst ekki afgreidd, en Fríkirkjusöfnuðurinn hóf slíkar matargjafir fyrir jólin nú. Sjöunda sæti Framlag íslendinga til Eurovision var að þessu sinni lagið „Nei eða já“, með Heart 2 Heart-hópnum svokall- aða, með þau Siggu Beinteins og Grétar Örvarsson úr Stjórninni og Sigrúnu Evu Ármannsdóttur fremst í flokki. í keppninni náðist annar besti árangur frá upphafi, eða sjö- unda sætið, en hins vegar var það írska lagið, samið af Johnny Logan, sem sigraði. Endurnýjun Flugleiða Maí markaði tímamót hjá Flugleið- um, þar sem þá lauk endurnýjun Víkingasveitin sat um hús við Mávahlíð í tvo tíma áður en tókst að fá byssumann til að gefast upp. Hann var vopnaður kinda- byssu og hafði skotið mann í andlitið, þó ekki lífshættulega. Guðrún Helgadóttir hlaut nor- rænu bókmenntaverðlaunin fyr- ir bók sína „Undan illgresinu". ?0\VtT I ' i <*■ \ ~ l SSS \ / I I I 'í\ y/<4v, 'Mj r r ' \ í >>> r Skatthlutfall og skattafsláttur áríð 1993 Skatthlutfall staðgreiðslu er 41,34% Á árinu 1993 verður skatthlutfall staðgreiðslu 41,34%. Skatthlutfall barna, þ.e. sem fædd eru 1978 eða síðar, verður 6%. Persónuafsláttur á mánuði er 23.611 kr. Persónuafsláttur fyrstu sex mánuði ársins verður 23.611 kr. á mánuði. m RÍKISSKATTSTJÓRI Sjómannaafsláttur á dag er 663 kr. Sjómannaafsláttur fyrstu sex mánuði ársins verður 663 kr. á dag. Frá og með 1. janúar 1993 eru fallin úr gildi eftirfarandi skattkort: Skatt- kort með uppsöfnuðum persónu- afslætti og námsmannaskattkort útgefin á árunum 1988- 1992. 4)'V\V(V/irí. /1 rri- M ^y T-T'Ty'v1 flugflota félagsins. Punkturinn yfir i-ið var koma fjórðu og síðustu Fok- ker 50- vélarinnar til landsins. End- urnýjun flugflotans kostaði um 20 milljarða króna. Byssumaður særir mann Að kvöldi hins 12. maí skapaðist umsátursástand í Mávahlíð í Reykja- vík. í húsi þar við götuna var maður vopnaður 22 cal. markbyssu og hafði hann skotið annan mann í andlitið, en þrír voru í íbúðinni þeg- ar atburðurinn átti sér stað. Maður- inn lifði það þó af, þar sem skotið fór f gegnum kinn hans. Það tók Víkingasveitina tvo tíma að fá byssumanninn til að leggja niður vopn. Rækjubátur sekkur Rækjubáturinn Litlanes sökk þann 18. maí, eftir að eldur hafði komið upp í bátnum þegar hann var stadd- ur út af Húnaflóa. Skipverjar, sem voru þrír, björguðust í gúmmíbát og skipverjar á Ingimundi gamla, sem var staddur þar skammt frá, björg- uðu þeim úr gúmmíbátnum eftir um 10 mín. veru þar. Blessuð lúsin Lús skaut upp kollinum, einu sinni sem oftar, í nokkrum skólum í Reykjavík og nágrenni. í þetta sinn bar meira á henni í leikskólum, og sagði Skúli Johnsen borgarlæknir í samtali við Tímann þann 21. maí að á mörgum heimilum væru ekki nógu góðar varnir gegn lúsinni. Júní Samdráttur í þorskafla Alþjóða hafrannsóknarráðið gaf ís- lendingum ekki skemmtilega sum- argjöf, því á fyrsta degi júnímánaðar bárust þær fréttir að ráðið teldi að minnka þyrfti þorskveiði um 40% á íslandsmiðum á næsta ári. Það varð úr að minnkunin varð um 20%. Styr um fomminjar Deila reis á milli Þorleifs Einarsson- ar prófessors og Margrétar Hall- grímsdóttur borgarminjavarðar vegna framkvæmda við Aðalstræti í Reykjavík. Þar var verið að grafa upp fomminjar og vildi Þorleifur meina að farið hefði verið frekar frjálslega með vélskóflu í minjamar. Margrét sagði hins vegar að farið hefði verið af ýtrustu gætni í uppgröftinn. Fákur sjötugur Hestamannafélagið Fákur átti sjötíu ára afmæli í júní og í tilefni af því riðu Fákskonur til Bessastaða og hittu þar Vígdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. Síðar var haldin af- mælishátíð og kappreiðar. Nýr Herjólfur Júnímánuður markar tímamót fyrir Vestmannaeyinga, því þá kom til heimahafnar ný ferja, sem hlaut að sjálfsögðu nafnið Herjólfur. Skipið er afar glæsilegt, en síðar komu upp efasemdir um sjóhæfni þess. Gamli Herjólfur er enn óseldur, en óskir hafa komið fram um að skipið verði notað fyrir Slysavarnaskólann. Flugleiðir-Sólarflug lokar Ferðaskrifstofa Guðna Þórðarsonar „í Sunnu“, Flugferðir-Sólarflug, hætti starfsemi sinni þann 12. júní, eftir að hafa rift samningi sínum við Atlantsflug. Guðni ætlaði að snúa sér til Flugleiðamanna, en honum tókst

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.