Tíminn - 31.12.1992, Síða 16
16 Tfminn
Fimmtudagur 31. desember 1992
/
Agúst
Vigdís forseti í
þríðja sinn
„Minnumst þess að sá er eingöngu
beinir sjónum niður fyrir fætur sér
kemur ekki auga á það sem fram-
undan er“, sagði forsetinn okkar,
Vigdís Finnbogadóttir m.a. í ávarpi
sínu af svölum Alþingishússins þeg-
ar hún hafði tekið við forsetaemb-
ættinu í þriðja sinn.
Bindindið eftirsóttast
„Bindindismótið sló aðsóknarmet"
sagði í fréttum af verslunarmanna-
helginni í sumar sem leið. Að slíkt
gæti gerst hefði vafalaust þótt með
eindæmum ótrúlegt fyrir svo sem
tveim áratugum síðan. Talið var að
yfir 10 þúsund manns hafi skemmt
sér í Galtalækjarskógi þessa helgi.
Þjóðhátíðargestir í Eyjum voru
sagðir um 9 þúsund og á níunda
þúsund þátttakendur í síldarævin-
týri á Siglufirði.
Óvænt trúlofun..........
Það var áreiðanlega með óvæntustu
fréttum ársins þegar Hagkaup og Bón-
us opinberuðu trúlofun sína — þau
tvö fyrirtæki sem landsmenn höfðu
haldið hörðustu samkeppnisaðilana á
matvörumarkaði höfuðborgarsvæðis-
ins. Áætlað var að eftir þetta hafi „par-
ið“ haft frá 35%, og jafnvel allt upp-
undir 50% af matvörumarkaði svæð-
isins að mati Kaupmannasamtakanna.
Þetta rifjaði síðan upp viðtal sem Tím-
inn átti við Jóhannes í Bónus ári áður,
þar sem hann sagði m.a.: „Það er afar
óhollt í kapítalísku þjóðfélagi, að eitt
fyrirtæki verði svo stórt að það nái
kannski 30—40% markaðshlutdeild".
Hlutfall karla í megrun var nærri
því helmingi mina.
Almenningsvagnar
Almenningsvagnar bs. hófu starf-
semi í ágúst með það að höfuðmark-
miði að samræma almenningssam-
göngur á öllu höfuðborgarsvæðinu
og auðvelda þannig fólki að ferðast á
milli sveitarfélaganna á þessu svæði.
Áður voru almenningssamgöngur í
nágrannasveitarfélögum Reykjavík-
ur í höndum þriggja aöila. Hlutur
Strætisvagna Reykjavíkur í þessu
samstarfi fólst m.a. í „græna kort-
inu“ sem gildir í strætisvagna á öllu
höfuðborgarsvæðinu. Um leið not-
aði SVR tækifærið til þess að hækka
ódýrustu afsláttarmiða sína úr 50 kr.
upp í 90 kr., eða um 80% á einu
bretti.
Skyldi ekki önnur þjóö vand-
fundin sem státaö getur af
þremur svo glæsilegum forset-
um.
Gróðinn gufaði upp
Það reyndist skammt á milli skins
og skúra hjá verðbréfafyrirtækjun-
um eins og mörgum öðrum. í
skýrslu sem Bankaeftirlitið sendi frá
sér í ágústmánuði kom í ljós að eftir
hátt í hundrað milljóna hreinan
gróða, eða sem svaraði 26% arðsemi
eigin fjár, hafði sú hagnaðarpró-
senta á einu ári hrunið niður í að-
eins 1% arðsemi, eða innan við
fimm milljónir króna.
40% allra kvenna í
megrun
Um 4 af hverjum 10 konum höfðu
farið í megrun á síðasta tólf mánaða
tímabili samkvæmt svokallaðri for-
varnarkönnun sem heilbrigðisráðu-
neytið stóð fyrir og greindi frá í ág-
úst s.l. Og það sem meira var, að um
3/4 voru ánægðar með árangurinn
af megrunarkúrnum.
„Snemma beygist krókurinn..." segir máltækiö. Ætla má aö upprennandi veiðimenn séu í hópi krakk-
anna sem hér renna fyrir silung sem sleppt hafði verið í tjörnina viö Maríukirkjuna í Breiðholti í
Reykjavík.