Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 18

Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 18
18 Tíminn Fimmtudagur 31. desember 1992 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Jólaalmanak SUF Eftirfarandi númer hafa hlotiö vinning í jólaalmanaki SUF: l.desemben 525,3570. 2. desember: 3686,1673. 3. desember: 4141, 1878. 4. desember: 1484, 2428. 5. desember: 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389. 7. desember: 3952, 5514. 8. desember: 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169. 10. desember: 5060, 289. 11. desember 1162,1601. 12. desember: 1235, 522. 13. desember: 4723, 2429 14. desember: 288,2834. 15. desember: 1334, 4711. 16. desember: 2833, 4710 17. desember: 3672, 1605. 18. desember: 3235, 4148. 19. desember: 3243, 2497. 20. desember: 1629, 1879. 21. desember: 1676, 1409. 22. desember: 1473, 3436. 23. desemben 2832, 2731. 24. desember: 4915, 3527. Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins Dregið verður i nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar 1993. Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda giróseðla fyrir þann tima. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91- 28408 eða 91- 624480. Óskum velunnunjm okkar gleöilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum stuöninginn á árínu sem er að liöa. Framsóknarflokkurinn l|i Leikskólar Reykjavíkurborgar Breytingar á reglum um innritun í leikskóla Reykjavíkur sem taka gildi þann 1. janúar 1993 Heimilt er að sækja um leikskóladvöl þegar barn er 6 mánaða eða þegar fæöingaroriofi lýkur. Staðfesta þarf umsókn einu sinni á ári, fyrst þegar liðið er eitt ár frá dagsetningu umsóknar. Foreldrar fá þá sent eyöublað þar sem þeir skrá breyt- ingar eða staðfesta umsóknina. Fjögurra og fimm ára börnum er veittur forgangur á hálfsdagsleikskóla. Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að viðkomandi eigi lög- heimili i Reykjavík. Nýtt símanúmer innritunardeildar verður 627115. Dagvist barna Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. BORGEY HÖFN, HORNAFIRÐI óskar starfsfólki sínu og viðskiptavinum gleðilegs nýárs Þakkar gott samstarf og viðskipti á liðnum árum Það er óÞarfi að sitia í myrkri um háfíðina OLAFUR HAUKUR 674506 rafverktakar Uið bjoðum neyðar Þiónusfu fyrir raf- masnsviðseróir í heimahúsum 02 í fyrirtækium á höf- uðborgarsvæðinu. Október Norsku konungshjónin virða fyrir sér íslenskt landslag. September Forsætisráðhera sér fram á bata í atvinnumálum í byrjun mánaðarins sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar vera farna að skila árangri. Halli á rík- issjóði færi minnkandi og við- skiptahalli sömuleiðis. Það voru hins vegar ekki bjartar tillögur sem ríkisstjórnin boðaði um miðjan mánuð. Þær miðuðu að því að skila ríkissjóði 750 miilj- ónum króna í viðbótarskatttekjur með því að lækka virðisaukaskatt úr 24.5% í 23.5% og hætta að end- urgreiða svonefndan innskatt til nokkurra atvinnugreina. Þar var rætt um bókaútgáfu, hitaveitur og fjölmiðla. Þetta varð niðurstaðan eftir að ríkisstjórnin fékk ekki stuðning þingflokka við hug- myndir um tveggja þrepa virðis- aukaskatt. Viðbrögð verkalýðs-og hagsmunaaðila voru hörð og sagð- ist Guðmundur J Guðmundsson formaður Dagsbrúnar að allt væri brostið með minnkandi kaup- mætti. Þá létu námsmenn mjög til sín heyra og kölluðu eftir mennta- stefnu ríkisstjórnarinnar. Þeir töldu að námslánakerfið hefði ver- ið eyðilagt og skólagjöld hefðu verið hækkuð um tæp 200% milli ára. Hremmingar stjórnarinnar héldu áfram því þennan mánuð tapaði hún atkvæðagreiðslu um það hvort vísa ætti þingsályktunartil- lögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES- samninginn til allsherj- arnefndar eða utanríkismála- nefndar eins og stjórnarsinnar vildu. Uppsagnir og at- vinnuleysi Atvinnuleysi jókst hratt þennan mánuð og eru fréttir af uppsögn- um og erfiðleikum fyrirferðamikl- ar. Þannig voru um 100 manns at- vinnulausir hjá Iðju á Akureyri og haföi fjölgað um 30 frá síðustu skráningu í byrjun mánaðar. Um miðjan mánuð kom í ljós að at- vinnuleysisdagar á landinu nálg- uðust eina milljón og var talað um að nýtt ísiandsmet væri í uppsigl- ingu. í kjölfar þessa fóru fréttir að ber- ast af atvinnurekendum sem færðu sér slæmt ástand í nyt. Þar má nefna frétt um að starfsfólki nokkurra veitingahúsa væru greidd laun með brennivíni og engin opinber gjöld væru greidd af vinnu þess. Niðurstöður úr seiðarannsókn- um Hafrannsóknastofnunar voru ekki fallnar til að auka mönnum bjartsýni. Fyrstu vísbendingar um stærð 1992-árgangs þorsks bentu tii að hann yrði undir meðallagi eins og þorskárgangar undanfar- inna ára. Konungshjón í roki Það viðraði ekki vel á konungs- hjón Noregs sem komu í opinbera heimsókn í september. Hvassviðri kom í veg fyrir að kóngur kæmist í Reykholt og Norðurland heilsaði með úrhellisrigningu og dumb- ungi. Þá léku einnig naprir vindar um Víghól í Kópavogi þessa daga þar sem magnaðar deilur ríktu vegna fyrirhugaðrar kirkjubyggingar á hólnum. Fór svo að á fjölmennum safnaðarfundi var felld naumlega tillaga um áframhaldandi kirkju- byggingu á hólnum. Hafði dóm- prófastur á oröi að ekki væri hægt að tala um neinn sigurvegara í svona málum. Þá var einnig ófriðvænlegt í Týrklandi þar sem öfgasinnaðir múslimar réðust á Sophiu Hansen og fylgdarlið við dómshús, þar sem rétta átti í forræðismáli hennar og Halim Al. Hrækt var á Sophiu og hún barin í andlitið. Þrír menn fórust þegar vélbátur- inn Sveinn Guðmundsson fórst nálægt Eldey um miðjan mánuð- inn. Samtök atvinnu- lausra Atvinnuleysi hélt áfram að aukast í byrjun október og til marks um það voru 410 félagar VR á atvinnu- leysisskrá og höfðu ekki verið fleiri á öldinni. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, virtist ekki hafa áhyggjur af því að verða atvinnulaus því að hann tilkynnti að hann myndi ekki gefa 'kost á sér til endurkjörs á þingi ASÍ í nóvember. Erfiðu árferði fylgja oft aðrir erf- iðleikar. Formaður kaupmanna- samtakanna hafði áhyggjur af auknu búðarhnupli í kjölfar kreppunnar. Við Iestur fjárlagafrumvarpsins var heldur ekki hægt að merkja tón bjartsýninnar. Þar var gert ráð fyrir að atvinnulausir yrðu nálægt 5.000 í byrjun næsta árs. Um miðjan mánuð voru svo stofnuð samtök atvinnulausra til að vera málsvari og hagsmuna- samtök þeirra. Ekki virtist ástand- ið batna við tilkomu samtakanna því í október fjölgaði atvinnuleys- isdögum um 5 þúsund og voru 3.600 manns á skrá um miðjan mánuð. Atvinnuleysi var mjög til umræðu á kirkjuþingi sem hófst þegar leið á mánuðinn og hafði biskupinn á orði að atvinnuleysi gæti eyðilagt fjölskyldur. Óánægja meðal heilbrigðisstétta Heilbrigðismál voru mikið í deiglunni í október. Mikillar óánægju gætti meðal ýmissa stétta og til marks um það lögðu röntgentæknar niður störf í byrj- un mánaðar og komu ekki til starfa aftur fyrr en leið að mán- aðamótum. Þá ákváðu hjúkrunar- fræðingar á Landspítalanum að segja upp stöðum sínum og situr við það. Mörgum fannst skjóta skökku við að um svipað leyti og verið var að loka bæklunar- og fæðingadeild Landspítalans, var meðferðar- heimilið að Sogni tekið í notkun. Kostar um 70 milljón kr. að vista 6 vistmenn á ári en stofnkostnaður er 86 milljónir. Adam var samt ekki lengi í paradís því vegna deilu um launakjör, mættu starfsmenn stofnunarinnar ekki til vinnu fyrsta daginn. Fjárlög í molum Fjárhagsstaða Reykjavíkur fór versnandi á árinu. í október var útlit fyrir að yfirdráttur borgar- sjóðs í Landsbanka yrði um 20% af tekjum ársins. Þá var fjárlagafrumvarp ríkis- stjórnarinnar lagt fram snemma í október. Þar var enginn gleðiboð- skapur á ferðinni og aukinn nið- urskurður boðaður sem og aukin skattbyrði. Hallinn, samkvæmt frumvarpinu, átti að vera 6.2 milljarðar króna. Ljóst var þó að öll vinna við fjárlögin var í raun eftir. Þannig sagði Magnús Gunn- arsson formaður VSI að ríkis- stjórnin yrði að fara að hefja fjár- lagagerð. Rómantík og víma Innbrotsþjófar virðast hafa verið nokkuð rómantískir á þessum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.