Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 20
20 Tíminn
Fimmtudagur 31. desember 1992
Desember
Sjúkraliðafundir
í upphafi desember setti kjaradeila
sjúkraliða nokkuð svip sinn á alla
fréttaumfjöllun. Málið leystist þó
áður en það komst í óefni en ekki
fyrr en eftir mikil og ströng funda-
höld hjá sjúkrkaliðum, sem m.a.
höfðu raskað nokkuð starfsemi
sjúkrahúsanna.
Skuldir heimilanna
Tíminn var með afar athyglisverða
frétt í byrjun desember sem átti
rætur sínar hjá reiknimeisturum
Seðlabanka íslands. Þar var sagt frá
því að skuldir heimilanna höfðu
hækkað um 135% frá 1984 en
skuldir fyrirtækjanna stóðu nánast í
stað á sama tíma. Fram kom í frétt
Tímans að útreikningar Seðlabank-
ans sýna að skuldasöfnunin hefur
verið gríðarleg sl. þrjú ár. Það kem-
ur hins vegar minna á óvart að
neysla hefur aukist mikið sl. áratug
og hefur aldrei verið meiri.
Hundapest
Fyrri hluta mánaðarins kom upp
hér á landi áður óþekkt pest hér-
lendis. Hér var á ferðinni svokölluð
smáveirupest og varð hennar fyrst
vart fyrir austan fjall og tveir hund-
ar drápust áður en menn fengu
staðfest hvað var hér á ferðinni.
Smitið er komið til að vera og eina
leiðin til að bregðast við er bólu-
setning. Hundaeigendur flykktust
með hunda sína í bólusetningu
loksins þegar bóluefnið kom til
landsins en það var ekki til hér. Lík-
legt er talið að smitið hafi borist
með smygluðum hundi.
Mesta atvinnuleysi á
íslandi
Um miðjan mánuð fóru að berast
atvinnuleysistölur þar sem fram
kom að í lok nóv. voru um 5000
manns á atvinnuleysiskrá. Sérfræð-
ingar töldu ekki óvarlegt að áætla
að raunverulegt atvinnuleysi væri
hins vegar mun meira eða allt að
7000 manns þegar allt væri talið.
Það er mesti fjöldi atvinnulausra
síðan mælingar hófust og trúlega
mesti fjöldi atvinnulausra nokkurn
tíma í seinni tíma sögu.
Sérstakt hugrekki
Um miðjan desember sagði Tíminn
Nóvember
Sjávarútvegur
í byrjun nóvember voru ýmsir aðil-
ar í sjávarútvegi orðnir langeygir
eftir efnahagsaðgerðum enda af-
koman slök í greininni. Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ, bendir
t.d. á það í viðtali við Tímann að af-
koma sjávarútvegs hafi ekki verið
verri síðan 1968. Kristján fagnaði
því að forstætisráðherra hafði í byrj-
un mánaðar gefið út yfirlýsingu um
að aðgerðir yrðu ekki síðar en 15.
nóvember, en eins og menn e.t.v.
muna stóðst sú dagsetning raunar
ekki hjá forsætisráðherra.
Plastsnuðaæði
í haust gekk yfir plastsnuðaæði í
grunnskólum og jafnvel í leikskól-
um líka. Tíminn greindi frá því að
lítil stúlka á einum leikskóla borg-
arinnar hafi gleypt lítið snuð sem
hún hafði í bandi um hálsinn.
Fóstra þurfti að draga snuðið upp
aftur með tilheyrandi óþægindum.
Sagt var frá því að bannað væri að
vera með þessi snuð á sumum leik-
skólum.
Þjóðaratkvæði hafnað
Þann 5. nóvember greindi Tíminn
frá því á forsíðu að um 34.000 ís-
lendingar hefðu skrifað undir
áskorun til Alþingis um að láta fara
fram þjóðaratkvæðagreiðsiu um
EES-samninginn og að undir-
skriftalistar þessir voru afhentir for-
seta Alþingis daginn áður. Sama dag
felldi Alþingi íslendinga tillögu um
að bera málið undir þjóðaratkvæði.
28 voru tillögunni samþykkir en 31
á móti og einn sat hjá. Tíminn sagði
frá niðurstöðunni á forsíðu en þar
stóð: „Þjóðin fær ekki að velja".
Smyglað kjöt í
Perlunni
Það vakti nokkra athygli um miðjan
nóvembermánuð þegar Tíminn
greindi frá því að tollgæslan hefði
lagt hald á á annað hundrað kíló af
smygluðum nautalundum í Perl-
unni í Reykjavík. Þótti mörgum far-
ið að hitna nokkuð undir þeim veit-
ingarekstri.
SÍS og Landsbankinn
Sambandið endaði feril sinn sem
eitt mesta viðskiptaveldi á íslandi
þegar það gekk frá samningnum um
yfirtöku Landsbankans á eignum
fyrirtækisins að verðmæti rúmra
2,5 milljarða króna. Með þessari að-
Salóme Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, tekur viö undirskriftum 34 þúsund fslendinga sem krefjast
þess aö þjóðin fái að greiöa atkvæði um EES-samninginn. Helgi S. Guömundsson afhendir Salóme
undirskriftirnar. Á milli þeirra stendur Jóhannes Snorrason, einn forystumanna Samstööu um óháð
fsland.
gerð hafði Sambandið minnkað
skuldir sínar úr um 13 milljörðum á
núvirði, niður í um 500 milljónir.
Sambandið hins vegar er ekki svipur
hjá sjón eins og gefur að skilja.
Heilu blokkunum
stefnt
Enn dró til tíðinda hjá bygginga-
samvinnufélaginu Byggung í nóv-
ember en þá stefndi félagið tugum
íbúa og félagsmanna í húsunum við
Austurströnd vegna vangreiddra
skulda. Til stóð að leysa félagið upp
nú um áramót en skilyrði fyrir því
var að allir íbúarnir greiddu „skuld-
ir“ sínar, en fjölmargir íbúanna voru
ekki á því að þeir skulduðu Byggung
eitt eða neitt.
Efnahagsráðstafanirnar
Um helgina 21.-22. nóv. voru mikil
fundahöld hjá ríkisstjórn og stjórn-
arliðinu og þeim lauk með því að
loks var tilkynnt um nýjar efnahags-
ráðstafanir á Alþingi á mánudag.
Stjórnarandstæðingar voru lítt
hrifnir af ráðstöfununum sem von
var, töldu þetta máttlausan helgar-
pakka og hálfkák. M.a. var gengið
fellt um 6% og tilkynnt um að sam-
komulag væri um sérstakan Þróun-
arsjóð sjávarútvegs en það var sagt
vera niðurstöða tvíhöfðanefndar
stjónarflokkanna.
En það voru fleiri en stjórnarand-
stæðingar sem voru óhressir, því
verkalýðshreyfingin taldi ráðstafan-
irnar jafngilda stríðsyfirlýsingu og á
ASÍ-þingi var hvatt til uppsagnar
gildandi kjarasamninga.
Nýr forseti ASÍ
Á ASÍ-þinginu sem stóð yfir í um
vikutíma á Akureyri í lok mánaðar-
ins, urðu forsetaskipti þar sem Ás-
mundur Stefánsson lét af störfum
en Benedikt Davíðsson var kjörinn
forseti og bar sigurorð af Pétri Sig-
urðssyni frá Vestfjörðum. Benedikt
lýsti því m.a. yfir í viðtali við Tím-
ann að hann væri enginn byltingar-
maður.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMÐAVERÐTRYGGÐRA
SPARISKIRTEINA RÍKISSJÓÐS
[1. FL B. 1986
Hinn 10. janúar 1993 er fjórtándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 14 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini = kr. 4.759,55
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1992 til 10. janúar 1993 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986
til 3246 hinn 1. janúar nk.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 14 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1993.
Reykjavík, 31. desember 1992.
SEÐLABANKI ISLANDS
Þessi stúlka tekur þátt í plastsnuöaæöinu og er meö sams
konar snuð um hálsinn og þaö sem stúlka gleypti óvart á ein-
um leikskóla borgarinnar.