Tíminn - 31.12.1992, Page 23
Fimmtudagur 31. desember 1992
Tíminn 23
ir mikið einvígi við Þórsara. Kefl-
víkingar og Fylkismenn færast í
1. deild í stað KA og UBK, en úr 2.
deild féllu Víðir og Selfoss og í
þeirra stað koma í 2. deild Tinda-
stóll og Þróttur N. Blikastúlkur
urðu íslandsmeistarar í kvenna-
flokki. Landslið íslands U-18 tap-
aði gegn Belgum í undankeppni
Evrópukeppninnar í knattspyrnu.
Dean Sounders var seidur frá Li-
verpool til Aston Villa og hafin var
uppsetning á flóðljósum á Laug-
ardalsyelli. Einar Vilhjálmsson
setti íslandsmet í spjótkasti. ís-
lensku keppendurnir unnu til 17
verðlauna á ÓL fatlaðra. ÖIl ís-
lensku liðin, Valur, Víkingur og
Fram féllu út úr Evrópukeppnun-
um í knattspyrnu. Landslið ís-
lands skipað leikmönnum 16 ára
og yngri lagði Dani að velli í und-
ankeppni EM í knattspyrnu og
leikur því í úrslitum í vor. ís-
lenski hópurinn á ÓL þroska-
heftra vann til 21 verðlauna og
þar af vann Sigrún Huld Hrafns-
dóttir til 11 þeirra.
Lið TBR varð í öðru sæti í Evr-
ópukeppni félagsliða í Badmin-
ton.
Október
Tveir landsleikir voru háðir við
Grikki, landslið U21 árs tapaði 0-
3, en A-Iandsliðið tapaði 0-1 í lé-
legum leik. Ásgeir Sigurvinsson
var ráðinn þjálfari Fram í knatt-
spyrnu og Bjarni Jóhannsson til
aðstoðar, Ingi Björn Albertsson
var ráðinn þjálfari 2. deildarliðs
UBK og Kristinn Björnsson var
ráðinn þjáifari Vals. íslenska
landsliðið lék einnig við Rússa og
töpuðu bæði landsliðin sínum
leikjum. U21 árs liðið tapaði 5-0,
en A-Iandsliðið 1-0. Steinn Helga-
son var ráðinn þjálfari UBK í 1.
deild kvenna.
Nóvember
Valsmenn og FH-ingar tryggðu
sér þátttökurétt í átta liða úrslit-
um í Evrópukeppnum bikarhafa
og meistaraliða í handknattleik.
Kolbrún Jóhannesdóttir lék sinn
500. Ieik með meistaraflokki
Fram í handknattleik. Knatt-
spyrnumenn margir hverjir hugs-
uðu sér til hreyfings í mánuðin-
um og má þar nefna að Izudin
Dervic gekk í raðir KR, Salih
Porca í Fylki og Bjarni Svein-
björnsson í ÍBV. Það þótti líka
frétt að Arnar Grétarsson leikur
áfram með Blikum í 2. deild.
Njarðvíkingar ráku þjálfara sinn,
Poul Colton og tók Teitur Örlygs-
son við starfi hans og KR-ingar
skiptu um útlending í sínum röð-
um. í ensku knattspyrnunni bar
það hæst að Eric Cantona var
seldur frá Leeds til Man.Utd, fyrir
gjafverð.
Desember
Martha Ernstdóttir varð fimmta í
víðavangshlaupi á Spáni og átt-
unda í öðru hlaupi skömmu síðar
og það tryggði henni níunda sæti
á stigalistanum, en mótin voru
bæði hluti af stigkeppni Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins. Keflvík-
ingar og Valsmenn voru á toppi
Japisdeildarinnar í Körfuknattleik
þegar leikmenn fengu sitt jólafrí
og Stjörnumönnum tókst að
skjótast á toppinn í 1. deildinni í
handknattleik. Norwich er á toppi
ensku deildarinnar eins og svo
lengi undanfarið, en verulega er
þó farið að sauma að liðinu. ís-
lendingar og Frakkar léku þrjá
landsleiki í handknattleik og sigr-
uðu íslendingar í einum Ieik.
Hraðfrystihús Kaupfélags Héraðsbúa
Reyðarfirði og Borgarfirði eystri
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
farsœldar á komandi ári
Þakkar gott samstarfog viðskipti á árinu, sem er að líða
Hraðfrystihús Kaupfélags Héraðsbúa
Reyðarfirði og Borgarfirði eystri