Tíminn - 31.12.1992, Qupperneq 26
26 Tíminn
Fimmtudagur 31. desember 1992
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Stöðupróf í
framhaldsskólum
Stöðupróf í framhaldsskólum í byrjun vorannar 1993
verða sem hér segir:
Þriðjudaginn 5. janúar Enska
Miðvikudaginn 6. janúar Stærðfræði, þýska, franska
Fimmtudaginn 7. janúar Spænska, italska
Föstudaginn 8. janúar Norska, sænska
Prófin hefjast öll kl. 18.00. Innritun ferfram á skrifstofu
Menntaskólans við Hamrahlíð, sími: 685155. Síöasti
innritunardagur er 4. janúar 1993.
Jólatréskemmtun í
100 skipti
Verslunarmannafélag Reykjavíkur heldur
eitthundruðustu jólatrésskemmtunina fyrir börn
félagsmanna, sunnudaginn 3. janúar n.k. kl. 15:00 í
Perlunni, Öskjuhlíð.
Miðaverð er kr. 600,- fyrir börn og kr. 200.- fyrir fullorðna.
Miðar verða seldir á skrifstofu V.R. í Húsi verslunarinnar,
8. hæð. Nánari upplýsingar í síma félagsins 687100.
Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
Styrktarfélag vangefinna
Vinningsnúmer í
happdrætti félagsins
1. vinningur: MMC Pajero 3ja dyra V6 nr. 91478
2. vinningur: VW Vento GL 4ra dyra, 5 gíra nr. 30098
3. -12. vinningur: Bifreið að eigin vali á kr. 635.000
nr. 2281 -10015 - 12597 - 19638 - 54065 - 63179 - 64330
70768-97515-99010
Þökkum stuöninginn.
Gleðilegt nýár.
Styrktarfélag vangefinna.
-----------------------------------------------------\
Astkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi
Óskar Matthíasson
Útgerðarmaöur,
Vestmannaseyjum
veröur jarösunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn
2. janúar kl. 11.00.
Þóra Sigurjónsdóttir
Matthías Óskarsson Ingibjörg Pétursdóttir
Sigurjón Óskarsson Sigurlaug Alfreðsdóttir
Kristján Óskarsson Emma Pálsdóttir
Óskar Þór Óskarsson Sigurbjörg Helgadóttir
Leó Óskarsson Kristín Haraldsdóttir
Þórunn Óskarsdóttir Siguröur Hjartarsson
Ingibergur Óskarsson Margrét Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnaböm
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum
í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar.
Síðasti Móhíkaninn
The Last of the Mohicans * ★ ★ 1/2
Handrit: Michael Mann og Chrístopher
Crowe. Byggt á samnefndri skáldsögu
James Fenimore Cooper og kvikmynda-
handriti frá 1936.
Framleiöendur: Michael Mann og Hunt
Lowry.
Leikstjóri: Michael Mann.
Aöalhlutverk: Daniel Day-Lewis, Made-
leine Stowe, Eric Schweig, Russell Me-
ans, Steven Waddington, Wes Studi og
Jodhi May.
Regnboginn.
Bönnuö innan 16 ára.
Margir hafa lesið söguna um Síð-
asta Móhíkanann, að minnsta kosti í
útgáfunni Sígildar sögur með lit-
myndum. Nú birtist þessi stór-
brotna saga á tjaldinu, með smá-
kryddi frá Hollywood, og útkoman
er frábær ævintýramynd með til-
heyrandi hetjudáðum, mann-
vonsku, ást og bardögum. Michael
Mann, leikstjóri myndarinnar, vinn-
ur stórvirki í frábærlega útfærðum
bardagaatriðum, þar sem ekkert er
til sparað svo að þau verði sem
glæstust. Maður kemst varla hjá því
að hugsa um hvað þetta nú allt
kosti.
Daniel Day-Lewis, hárprúður og
fjallmyndarlegur, Ieikur hvítan
mann, sem alist hefur upp hjá Móhí-
könum. Hann er á ferð með fóstur-
föður og bróður af Móhíkanakyni,
þegar þeir bjarga lífi ensks liðsfor-
ingja og tveggja dætra háttsetts liðs-
foringja. Þeir fylgja svo dætrunum
og foringjanum í virki, sem faðirinn
stjórnar, og taka þátt í stríði enskra
við Frakka. Önnur dóttirin, leikin af
Madeleine Stowe, og Day-Lewis
verða ástfangin, en, eins og í öllum
ævintýrum, verða þau að ganga í
gegnum ýmsar mannraunir áður en
þau geta notið samvista hvors ann-
ars.
í myndinni er mikið af glæstum at-
riðum, þar sem fallegt landslag er
nýtt til hins ýtrasta. Kvikmyndataka
KVIKMYNDIR
v________________________
Dante Spinottis á stóran þátt í hve
vel hefur tekist til. Það er sama
hvort um er að ræða blóðugt bar-
dagaatriði eða ferðalög í gegnum
skóga, alltaf er myndin tekin af ein-
stakri natni og fagmennsku. Lokaat-
riðið, sem gerist á snarbröttum
hömrum, verður einstaklega áhrifa-
ríkt í alla staði með góðri kvik-
myndatöku, góðum leik og leik-
stjórn að ógleymdri tónlistinni, sem
er í sannkölluðum stórmyndastíl, en
um hana sjá þeir Trevor Jones og
Randy Edelman.
Myndin er mjög hröð, en það er
helst í samskiptum Day-Lewis og
Stowe sem aðeins er hægt á fram-
vindunni. Ástarævintýrið er krydd-
ið, sem bætt hefur verið í söguna, en
það kemur ágætlega út og styrkir
hana jafnvel. Hvergi er veikan punkt
að finna í frábærum bardaga- og
stríösatriðum, sem eru einstaklega
vel útfærð og sum hver reyndar
ótrúlega vel gerð, ef miðað er við all-
an þann fjölda fólks sem leikur í
þeim.
Vert er að minnast lítillega á hléin,
sem tíðkast í íslenskum kvikmynda-
húsum. Sjálfsagt má rökræða um
gildi þeirra fram og aftur, en það
vakti mikla gremju sýningargesta,
þegar hlé var gert á myndinni í
miðju ástaratriði! Ekki veit ég hvort
þetta er eitt einstakt tilfelli á sýning-
unni sem ég sá, en hér með er gerð
sú krafa að sýningarstjórar kvik-
myndahúsanna finni besta staðinn
fyrir hléið út frá gangi myndarinnar.
Allir leikarar standa sig með mikilli
prýði og er Daniel Day-Lewis stór-
góður í sínu hlutverki. Madeleine
Stowe er líka mjög góð, en banda-
rískur framburður hennar er stund-
um skrítinn, með það í huga að hún
á að vera ensk.
Síðasti Móhíkaninn er sannkölluð
stórmynd, sem hefur margt að bjóða
afþreyingarþyrstum áhorfendum.
Michael Mann hefur gert áhrifamik-
ið verk með hjálp góðra leikara, frá-
bærs kvikmyndatökumanns og ein-
vala liði listafólks á sviði leikmynda
og búninga.
Öm Markússon
Eilífðardrykkurinn
Death Becomes Her *★
Handrit: Martin Donovan og David Koepp.
Framleiöendur: Robert Zemeckis og Steve
Starkey.
Leikstjóri: Robert Zemeckis.
Aöalhlutverk: Meryl Streep, Bruce Willis,
Goldie Hawn og Isabella Rossellini.
Laugarásbíó og Sambíóin.
Öllum leyfð.
Eftir að hafa leikstýrt hinum vinsælu
Aftur til framtíðar-myndum og Hver
skellti skuldinni á Kalla kanínu, hefur
Robert Zemeckis nú safnað í eina
mynd nokkrum af vinsælustu leikur-
unum í Hollywood. Myndin er full af
ótrúlegum tæknibrellum, en það ein-
kenndi líka fyrrnefndar myndir. Mun-
urinn á þessum myndum og Eilífðar-
drykknum er einfaldlega sá að Eilífð-
ardrykkurinn er ekki eins fyndin
mynd og hinar. Einnig er það pirrandi
að alltaf þurfi í flestum bandarískum
gamanmyndum, að hafa einhvern
barnalegan og væminn boðskap, sem
oftar en ekki kemur fram í lok mynd-
anna.
Meryl Streep leikur leikkonu í Holly-
wood sem er farin að eldast, en reynir
allt til að forðast hrörnunareinkenni
ellinnar. Goldie Hawn leikur æskuvin-
konu hennar, sem hefur þurft að þola
margt misjafnt frá henni, en hún
brjálast loksins þegar Streep tekur frá
henni verðandi eiginmann og giftist
honum sjálf. Eiginmaðurinn, sem
Bruce Willis leikur, er lýtalæknir, en
hann getur ekki varið Streep fyrir ell-
inni, henni til mikillar gremju. Henni
tekst að verða sér úti um töfradrykk
sem færir henni glæstan vöxtinn aft-
ur, en hefur þó ýmsar leiðinlegar
aukaverkanir. í millitíðinni hefur
Hawn náð sér aftur á strik og hyggur á
hefndir fyrir stuldinn á eiginmannin-
um.
Myndin er beitt ádeila á fegurðardell-
una í Hollywood, en vissulega má
deila um hversu mikil della það sé hjá
leikkonum að fá hjálp frá lýtalæknum
og treysta á að fá fleiri atvinnutilboð
fyrir vikið. Myndin er oft fyndin, en
hún dettur líka oft niður á milli. Með
hjálp frábærra tæknibrellna koma oft
frábær atriði, en þegar á heildina er
litið geta tæknibrellurnar varla einar
sér borið uppi gamanmyndir.
Aðalleikarar myndarinnar komast vel
frá sínu, en það reynir nú heldur varla
mikið á þá. Bruce Willis er sérlega
góður í sínu hlutverki, en aldrei þessu
vant leikur hann ekki töffara heldur
frekar veiklynt manngrey, sem tvær
konur ráðskast með að vild. Meryl
Streep fer létt með rulluna sína, en
mér finnst hún eiga betra skilið, því
eins og hún sannaði í Postcards from
the Edge, þá er hún skemmtileg gam-
anleikkona. Einnig er skemmtilegt að
sjá Isabellu Rossellini leika konuna,
sem selur töfradrykkinn og leggur
áherslu á gæði hans, því hún varð fer-
tug á árinu, en gerði engu að síður
samning upp á tugi milljóna dollara
um að vera áfram andlit ákveðins
snyrtivörumerkis. Ekki þurfti hún
fegrunaraðgerðir til að ná þessum ár-
angri.
Á heildina Iitið á Eilífðardrykkurinn
ágæta spretti með hreint ótrúlegum
tækniatriðum. Þetta er hins vegar aft-
urkippur hjá Robert Zemeckis, sem
hefur hingað til gert enn betri afþrey-
ingarmyndir. Öm Markússon
Lífsins dóminó
Út er komin ævisaga Skúla Halldórs-
sonar tónsskálds færð í letur af Örn-
ólfi Árnasyni.
Saga Skúla er vel rituð á lipru máli.
Hún hefst á Flateyri við Önundarfjörð
en þar er Skúli fæddur. Foreldrar hans
voru hjónin Unnur Thoroddsen, dótt-
ir Skúla Thoroddsen fyrrverandi
sýslumanns ísfirðinga, og Halldór Ge-
org Stefánsson, héraðslæknir í staðn-
um. Dapurt er að lesa frásögn Skúla af
óreglu föður hans sem endaði með því
að landlæknir svipti hann embætti.
Frásögn Skúla einkennist umfram
allt af æðruleysi og raunsæi. Hann
dregur ekkert undan þannig að les-
andinn verður þátttakandi í lífi hans
og störfum.
Skúli dregur upp sérstæða mynd af
Thoroddsenfólkinu í dagsins önn og
minnist hann móðurömmu sinnar og
móðursystkina með þeim hætti að
furðu sætir á stundum.
Gaman er að lesa um æsku og mann-
dómsár Skúla í Reykjavík en frá unga
aldri átti tónlistin hug hans allan enda
þótt námið yrði skrykkjótt vegna
ónógra efna.
Á unglingsárum vann hann í tóbak-
inu hjá Sigurði Jónassyni forstjóra.
Þeim varð vel til vina og að því kom að
Sigurður bauðst til að styrkja hann til
náms í píanóleik erlendis en foreldrar
hans voru því mótfallnir.
Skúli samdi fjöldann allan af tón-
verkum sem sum hver eru þjóðkunn.
Forvitninleg er frásögn hans af starfi
Tónskáldafélagsins og ósætti fram-
ámanna þar.
Óhætt er að mæla með lestri þessar-
ar bókar sem er í senn skemmtileg,
fróðleg, opinská og mannleg.
Helgi Þórhallsson
Frá Starfsmannafélaginu Sókn
Sóknarfélagar!
Almennur aðalfundur verður haldinn í
Sóknarsalnum, Skipholti 50 A, miðvikudaginn 6.
janúar n.k. kl. 17.00.
Fundarefni: Uppsögn kjarasamninga, önnur mál.
Stjórnin.