Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 4

Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 4
4 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR SKOÐANAKÖNNUN 60,5 prósent segj- ast vilja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra leiði Samfylking- una í næstu kosningum, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og fréttastofu Stöðvar 2. 19,6 prósent vilja að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, formaður flokksins, leiði hann í kosningabaráttunni, og 12,7 prósent nefna Jón Baldvin Hannibalsson. Gefnir voru kostir á þessum þrem- ur en að auki gat fólk valið um „ein- hvern annan“. Það gerðu 7,2 pró- sent og þá nefndu 3,1 prósent Dag B. Eggertsson borgarfulltrúa og 2,0 prósent vildu nýtt andlit. Hærra hlutfall kvenna en karla nefna Ingibjörgu eða Jóhönnu, en fleiri karlar en konur nefna Jón Baldvin. Meðal stuðningsfólks Sam- fylkingar segjast 69,7 prósent vilja að Jóhanna leiði flokkinn í kosning- unum, 16,2 prósent vilja Ingibjörgu og 12,1 prósent Jón Baldvin Hanni- balsson. Minnstur er stuðningur við Jóhönnu meðal kjósenda Sjálfstæð- isflokksins og vilja einungis 34,3 prósent þeirra að hún leiði Samfylk- inguna í kosningabaráttunni. Hringt var í 800 manns 26. febrú- ar og skiptust svarendur jafnt milli kynja og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var; Hver telur þú að eigi að leiða Samfylkinguna í næstu kosn- ingum? Svarhlutfall var 61,1 pró- sent - ss Í umfjöllun um biðlaun seðlabanka- stjóra í gær láðist að geta þess að Ingimundur Friðriksson, fyrrum seðlabankastjóri, hefur afþakkað þau. Beðist er velvirðingar. LEIÐRÉTTING ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS Páskaferð 4. - 13. apríl til Tyrklands Gönguferð – Lykíuströndin. Fornar rústir og spennandi söguslóðir. Hefðbundinn taktur – plús. Innifalið í verði: Flug, flugvallaskattar, gisting, allur akstur, morgunmatur, hádegis- og kvöldverður (nema á brottfarardegi) og íslensk fararstjórn. 199.900,- Verð frá: Bókanir og nánari upplýsingar með tölvupósti tonsport@uu.is eða í síma 585-4000 Tyrkland um páskana Gönguferð - Lykíuströndin Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um leiðtoga Samfylkingarinnar: Meirihluti styður Jóhönnnu SKOÐANAKÖNNUN 44,2 prósent segj- ast sátt eða mjög sátt við störf Ólafs Ragnars Grímssonar, for- seta Íslands, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og frétta- stofu Stöðvar 2. 35,5 prósent segjast hins vegar ósátt eða mjög ósátt. Ólafur Ragnar hefur setið undir nokkru ámæli að undan- förnu í starfi vegna ummæla sem eftir honum voru höfð í erlendum miðlum, sérstaklega í þýsku við- skiptablaði. Síðar var áréttað að blaðamaður hafi haft rangt eftir forsetanum hvað varðar endur- greiðslur vegna innlánsreikninga Kaupþing Edge í Þýskalandi. Þá hefur Ólafur Ragnar verið gagn- rýndur fyrir að taka of virkan þátt sem klappstýra útrásarinn- ar og íslensku bankanna áður en efnahagshrunið varð. Hinir sáttu skiptust þannig að 7,9 prósent segjast mjög sátt við störf hans, en 36,3 prósent sátt. Þá segjast 20,3 prósent vera hlutlaus gagnvart forsetanum. 35,5 prósent eru hins vegar ósátt. Ósáttir skiptast þannig að 12,3 pró- sent eru mjög ósátt við störf Ólafs en 23,2 prósent segjast ósátt. Ef einungis er litið til þeirra sem segjast sáttir eða ósáttir, eru 55,4 prósent sátt og 44,6 prósent ósátt. Kjósendur á landsbyggðinni eru heldur sáttari við störf forsetans en kjósendur á höfuðborgarsvæð- inu. 47,1 prósent svarenda á lands- byggðinni segjast sátt eða mjög sátt, en 42,2 prósent svarenda á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru karl- ar ósáttari við störf hans en konur. 40,1 prósent karla segjast ósátt- ir eða mjög ósáttir. 30,9 prósent kvenna segjast hins vegar ósáttar eða mjög ósáttar. Ef litið er til afstöðu eftir stuðn- ingi við stjórnmálaflokka eru það kjósendur Sjálfstæðisflokks- ins sem helst eru ósáttir við störf Ólafs Ragnars, eða 64,8 prósent þeirra. 22,8 prósent sjálfstæðis- manna eru sátt með störf hans. 58,0 prósent samfylkingarfólks og 52,8 prósent vinstri grænna segj- ast sátt við störf hans. Rúmlega 20 prósent stuðningsmanna hvors flokks segjast hins vegar ósátt við störf hans. Tæplega 44 prósent kjósenda Framsóknarflokks eru sátt við störf forsetans og tæplega 37 prósent þeirra eru ósátt. Hringt var í 800 manns fimmtu- daginn 26. febrúar og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlut- fallslega eftir búsetu. Spurt var; Ert þú sátt(ur) eða ósátt(ur) við störf Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands? 96,5 prósent svar- enda tóku afstöðu til spurningar- innar. svanborg@frettabladid.is Um 35 prósent segjast ósátt við störf forseta Flestir, eða um 44 prósent segjast sátt við störf Ólafs Ragnars Grímssonar, sam- kvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Um 35 prósent segjast ósátt við störf hans sem forseta. Fimmtungur er hlutlaus varðandi störf hans. STJÓRNSÝSLA Ingimundur Friðriks- son, fyrrverandi seðlabankastjóri, hyggst ekki þiggja biðlaun frá rík- inu, en hann lét af störfum í kjölfar breyt- inga á lögum um Seðlabankann. Ingimundur var eini seðla- bankastjórinn af þremur sem varð við tilmæl- um forsætisráð- herra um að láta af störfum fyrr í mánuðinum, en Eiríkur Guðna- son ætlaði að bíða til 1. júní. Davíð Oddsson neitaði að segja af sér. Eins og fram hefur komið í blað- inu hefur Ingimundi verið boðin staða ráðgjafa við norska seðla- bankann. - kóþ Fyrrverandi seðlabankastjóri: Ingimundur vill ekki biðlaun VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 15° 10° 12° 7° 3° 10° 11° 10° 3° 3° 18° 12° 8° 27° -6° 14° 16° 3°Á MORGUN Víðast 3-8 m/s en SA-8-15 sunnan og vestan til um kvöldið. MÁNUDAGUR 5-10 m/s 1 1 1 1 0 -1 -3 2 2 4 3 3 3 3 2 1 3 1 2 1 1 0 -1 -3 -3 -1 0 0 1 2 -2 RÓLEG HELGI Enda þótt búast megi við rigningu eða slyddu sunnan til á landinu í dag verður ekki annað sagt en að spáin sé góð. Það er hægviðrasamt og ekki mjög kalt þannig að kalla má þetta að- gerðalítið veður. Tíð- indin eru helst þau að seint á sunnudag vex vindur af suðaustri við sunnan- og vestanvert landið með snjókomu eða slyddu. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur ÓLAFUR RAGNAR OG DORRIT MOUSSAIEFF Kjósendur á landsbyggðinni eru heldur sáttari við störf forsetans en kjósendur á höfuðborgarsvæðinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 60,5% Jóhanna Sigurðardóttir 60,5% Jón Baldvin Hannibalsson 12,1% Aðrir 7,2% LEIÐTOGI SAMFYLKINGAR Í NÆSTU KOSNINGUM SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS/STÖÐVAR 2 26. FEBRÚAR 2009 LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu leitar að Aldísi Westergren, 37 ára. Hún sást síð- ast í Reykjavík þriðjudaginn 24. febrúar síð- astliðinn. Aldís er á milli 165 og 170 senti- metrar á hæð, með skollitað, axlasítt hár. Að sögn varð- stjóra hjá lög- reglunni er leit- in að Aldísi opin, og meðal annars hafa björgunarsveitir verið kall- aðar út vegna hennar. Lögregl- unni hefur borist nokkuð af upp- lýsingum sem þeir nýta sér við leitina. Þeir sem geta veitt upplýsingar um Aldísi eru beðnir um að láta vita í síma 444-1100. - kg Lögreglan í Reykjavík: Lögregla leitar að týndri konu ALDÍS WESTERGREN HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisstofn- un Vestfjarða og Heilbrigðis- stofnunin á Patreksfirði verða ekki sameinaðar. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra til- kynnti þetta í gær eftir að hafa rætt við sveitarstjórnarmenn á norðanverðum Vestfjörðum og framkvæmdastjórn Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða. Eftir ítarleg samtöl við forystu- menn í heilbrigðisþjónustu á Vestfjörðum sagði ráðherra ljóst að ávinningurinn af því að sam- eina suður og norðursvæðið væri svo miklum takmörkunum háður að ávinningurinn væri vandséð- ur. - shá Heilbrigðisráðherra: Ekki sameinað fyrir vestan INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON BANGLADESS, AP Tugir líka fundust í grunnri fjöldagröf við höfuð- stöðvar landamæragæslunnar í Dakka, höfuðborg Bangladess. Alls hafa því átökin út af tveggja daga uppreisn landa- mæravarða nú í vikunni kostað 54 manns lífið, svo vitað sé, en enn er þó tuga manna saknað og má búast við að tala látinna muni hækka. Hundruð landamæravarða voru handtekin í gær, daginn eftir að þeim var heitið sakar- uppgjöf ef þeir hættu við upp- reisn sína. Verðirnir hafa lengi krafist launahækkunar, svo laun þeirra verði sambærileg launum her- manna í landinu. - gb Handtökur í Bangladess: Tugir líka fund- ust í fjöldagröf VIÐ FJÖLDAGRÖFINA Fólk safnaðist saman í leit að látnum ættingjum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Mjög sátt(ur) 7,9% Sáttur 36,3%Hlutlaus 20,3% Ósátt(ur) 23,2% Mjög ósátt(ur) 12,3% ERTU SÁTT(UR) EÐA ÓSÁTT(UR) VIÐ STÖRF FORSETANS? SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS/STÖÐVAR 2 26. FEBRÚAR 2009 GENGIÐ 27.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 176,0297 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 112,69 113,23 159,83 160,61 142,79 143,59 19,162 19,274 16,16 16,256 12,468 12,542 1,1554 1,1622 165,4 166,38 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.