Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 8

Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 8
8 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR Tryggðu þér miða í tíma. Sími í miðasölu 551 1200 Vegna fjölda áskoranna snúa vinkonurnar aftur. BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti ætlar að kalla að minnsta kosti 90 þúsund her- menn heim frá Írak á næstu átján mánuðum. Þar með segir hann að eiginlegum hernaði Banda- ríkjanna í Írak muni ljúka, þótt áfram verði þar tugir þúsunda bandarískra hermanna út árið 2011. Hugmyndin er sú að 90 til 114 þúsund hermenn verði farnir frá Írak í lok ágúst á næsta ári, en 35 til 50 þúsund verði eftir til þess annars vegar að taka þátt í þjálfun þarlendra í hermennsku og hins vegar að standa áfram í baráttu gegn hryðjuverkamönn- um eftir því sem þörf krefur. „Nú eru það Írakar sjálf- ir sem þurfa að taka mikilvæg- ustu ákvarðanirnar um framtíð Íraks,“ sagði Obama þegar hann kynnti þessi áform í gær í her- stöðinni Camp Lejeune í Norður- Karólínu. Þar er fjöldi hermanna sem bíður þess að vera sendur til Afganistans. Áður en Obama kynnti áætlan- ir sínar opinberlega hringdi hann bæði í forvera sinn, George W. Bush, og Nouri Al-Maliki Íraks- forseta, til að gera þeim grein fyrir því sem til stendur. Þessi áætlun er mun hógværari en þær hugmyndir sem Obama hafði boðað um brotthvarf hers- ins frá Írak áður en hann tók við embætti forseta. Repúblikaninn John McCain, sem bauð sig fram á móti Obama í forsetakosningun- um í haust, sagðist styðja heils- hugar þessi áform, sem Obama kynnti í gær. Í stað þess að standa í stórfelld- um hernaði í Írak hyggst Obama beina kröftum hersins að Afgan- istan, og hefur þegar sent 17 þús- und hermenn þangað til viðbótar þeim 38 þúsund sem fyrir eru. Til þess að standa straum af framhaldi hernaðar í Írak og Afganistan þarf Obama að biðja þingið um aukafjáveitingu sem nemur 75 milljörðum dala fyrir árið í ár, í viðbót við 65 milljarða sem þegar hefur verið úthlutað fyrir fyrri hluta ársins, og síðan 130 milljarða fyrir árið 2010. Að auki þarf að reikna með kostnaði við veru 35-50 þúsund hermanna í Írak út árið 2011, auk herliðs- ins í Afganistan sem óvíst er hve verður fjölmennt. Hernaður Bandaríkjanna í Írak og Afganistan hefur verið þung byrði á ríkissjóði Bandaríkj- anna síðustu sjö árin. Alls hefur stríðsreksturinn kostað hátt í níu hundruð milljarða dala og verður væntanlega kominn vel yfir þús- und milljarða í lok næsta árs. gudsteinn@frettabladid.is Brotthvarfið frá Írak hefst Stór hluti bandaríska hersins í Írak verður kallaður heim fyrir mitt næsta ár. Obama ætlar þó að hafa allt að 50 þúsund hermanna lið þar út árið 2011. FORSETINN OG VARNARMÁLARÁÐHERRANN Barack Obama kynnti, ásamt Robert Gates, áform um að fækka í herafla Bandaríkjanna í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Nú eru það Írakar sjálfir sem þurfa að taka mikil- vægustu ákvarðanirnar um framtíð Íraks. BARACK OBAMA FORSETI BANDARÍKJANNA 1 Hver er formaður Knatt- spyrnusambands Íslands? 2 Hvaða fyrrum forseti var sýknaður af ákærum um stríðs- glæpi í vikunni? 3 Hvað heitir söngvari Langa Sela og Nýju skugganna? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66 LÖGREGLUMÁL Þrjár konur sem sterklega eru grunaðar um að stunda vændi hér á landi voru færðar til yfirheyrslu hjá lög- reglu höfuðborgarsvæðisins í fyrradag. Konan sem liggur undir rökstuddum grun um að standa á bak við vændisstarf- semina, auk fleiri brota, var látin laus úr fangelsi í gær. Hún hafði setið í gæsluvarðhaldi í viku, en ekki var gerð krafa um framleng- ingu þess. Konan sem um ræðir, Catal- ina Mikue Ncogo, var úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa ætlað að reyna að smygla allt að tíu kílóum af kókaíni til Íslands. Kærasti hennar, Helgi Valur Másson, var handtekinn á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í síðustu viku með um tíu kíló af kókaíni í fórum sínum. Konan var þá stödd í Hollandi en parið átti bókað far til Íslands skömmu síðar. Þá er konan einnig grunuð um að hafa stundað skipulagt mansal hér- lendis. Greint hefur verið frá því í fréttum að hún sé grunuð um að hafa gert út að minnsta kosti fjór- ar vændiskonur í senn hér. Þrjár þeirra voru færðar á lögreglustöð í fyrradag en ein hafði verið yfir- heyrð áður. Konan er jafnframt talin hafa flutt konur til landsins gagngert til að stunda hér vændi. HVERFISGATA Í fréttum hefur komið fram að fjórar konur hafi selt kynlífs- þjónustu á Hverfisgötu 105. Catalina Mikue Ncogo látin laus úr gæsluvarðhaldi: Lögregla yfirheyrði þrjár konur LÖGREGLUMÁL Ragnheið- ur Ágústsdóttir, sem á fimmtudag var vikið úr starfi sem forstjóri Tals, hefur kært Jóhann Óla Guðmundsson, annan aðal- eiganda Tals, og lögmann hans fyrir frelsissvipt- ingu. Hún fullyrðir að þeir hafi haldið sér nauð- ugri í fundarherbergi í höfuðstöðvum Tals í hátt í klukkustund og látið taka farsíma- númer hennar úr sambandi. Jóhann og lögmaður hans komu í höfuðstöðvarnar á fimmtudag ásamt Hermanni Jónassyni, sem var forstjóri Tals á undan Ragn- hildi, viku Ragnhildi úr starfi og settu Hermann forstjóra í henn- ar stað. Á meðan Hermann kynnti ákvörðunina fyrir starfsmönnum segir Ragnhildur að hinir tveir hafi haldið sér nauðugri í fundarherbergi til þess að hún myndi ekki trufla fundinn. Jóhann Óli hefur neitað ásökuninni. Ragnhildur vill ekkert tjá sig um málið. Sam- kvæmt heimildum Frétta- blaðsins var hún mjög slegin vegna þess sem gerðist og kærði málið til lögreglu síðdegis á fimmtudag. Lögregla mun hafa málið til skoðunar og lítur það alvarlegum augum, samkvæmt heimildum blaðsins, ekki síst í ljósi þess að Ragnhildur er barns- hafandi. Harðvítug átök hafa staðið á milli forsvarsmanna eigenda Tals, Teymis annars vegar og IP fjar- skipta, í eigu Jóhanns Óla, hins vegar. - sh Segir annan eiganda Tals hafa haldið sér nauðugri: Kærir frelsissviptingu RAGNHILDUR ÁGÚSTSDÓTTIR RÚSSLAND, AP Rússneska ríkissak- sóknaraembættið hefur áfrýjað sýknudómi héraðsdóms í Moskvu yfir þremur mönnum sem grun- aðir voru um að hafa verið við riðnir morðið á blaðamannin- um Önnu Politkovskaju. Talsmað- ur embættisins, Konstandin Nik- onov, staðfesti þetta í gær. Kviðdómur sýknaði nýverið tvo tsjetsjenska bræður og fyrr- verandi lögreglumann í Moskvu eftir réttarhald sem verjendur sakborninganna sögðu hafa ein- kennst af klúðri af hálfu ákæru- valdsins. Enginn hinna ákærðu var talinn hafa verið höfuðpaur í málinu. - aa Politkovskaju-málið: Sýknudómi áfrýjað EFNAHAGSMÁL „Ég gef engin sér- stök fyrirmæli en það er ljóst að það verður að gæta aðhalds í launakjörum hjá þessum starfs- mönnum hins opinbera eins og öðrum. Ég treysti nýskipaðri stjórn Fjármálaeftirlitsins til að gæta hagsmuna hins opinbera hvað þetta varðar,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Gylfi var spurður um launa- kjör skilanefnda gömlu bank- anna, en nefndarmenn hafa verið sagðir með þrjár til fimm milljónir á mánuði. Hann gat hvorki játað né neitað þessum kjörum, enda segist hann ekki vita upp á hár hver launin séu. „En eitthvað af þeirri stærð- argráðu væri augljóslega mjög óeðlilegt,“ segir hann. - kóþ Viðskiptaráðherra: Meint laun væru óeðlileg VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.