Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 24
24 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
FRAMHALD Á SÍÐU 26
ANNA MARTA ÁSGEIRSDÓTTIR OG INGÓLFUR Ö. GUÐMUNDSSON
Þegar Anna Marta og Ingólfur
Örn gengu í hjónaband árið 2005
afþökkuðu þau gjafir en báðu gesti
að leggja sér lið við að gera að
veruleika verkefnið um ísbjörninn
Hring. Hringur er vikulegur gestur
á leikstofu barnaspítalans og er
kærkomin tilbreyting í lífi barnanna
sem þar dvelja.
BERGDÍS JÓNSDÓTTIR
Bergdís er snyrtifræðingur í eigin rekstri. Einn
dag í viku lokar hún stofunni sinni og mætir
á Dagsetur Hjálpræðishersins þar sem hún
þvær og snyrtir fætur heimilislausra fasta-
gesta staðarins. Þjónusta hennar er ómetan-
leg þeim sem hana þiggja.
GUÐRÚN ARNDÍS TRYGGVADÓTTIR
Á vefnum Náttúran.is eru á einum stað
upplýsingar um umhverfismál, sjálfbærni
og vistvænan lífsstíl. Þar er einnig eina
heillega samantektin á vottunum og
viðurkennngum á sviði umhverfismála á
Íslandi. Vefurinn er til orðinn að frum-
kvæði Guðrúnar sem heldur honum úti
af metnaði og án mikils stuðnings.
GUNNAR OG KRISTJÁN JÓNSSYNIR
Gunnar og Kristján Jónssynir í Kjötborg á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu eru meðal fárra
kaupmanna sem eru eftir á hornum í íbúðahverfum. Í Kjötborg er boðin persónuleg þjónusta,
reikningsviðskipti, heimsending vöru og hlýtt viðmót. Íbúum hverfisins gefst kostur á að fara
gangandi í búðina sína eftir helstu nauðsynjum sem er bæði þægilegt og umhverfisvænt.
SIGRÍÐUR VALDÍS BERGVINSDÓTTIR
Sameinuðu þjóðirnar tileinkuðu árið 2008 kartöfl-
unni. Félag kartöflubænda fékk af því tilefni Sigríði
Valdísi Bergvinsdóttur til liðs við sig til að leitast við
að auka veg kartöflunnar á Íslandi. Sigríður stýrði
átakinu af elju og einstökum metnaði og lagði meðal
annars mikið upp úr því að hvetja til þess að hin
rótgróna íslenska kartafla yrði sett í nýjan búning.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt næstkomandi fimmtudag. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk heiðurs-
verðlauna. Á þessari síðu og næstu verða kynntar fimm tilnefningar í hverjum flokkanna fjögurra.
GYLFI JÓN GYLFASON
Gylfi Jón Gylfason er yfirsálfræðingur hjá
Reykjanesbæ. Þar hefur hann gengist fyrir upp-
eldisnámskeiðunum SOS – hjálp fyrir foreldra
en námskeiðin eru ætluð foreldrum tveggja til
tólf ára barna. Markmið námskeiðanna er að
kenna þátttakendum að hjálpa börnum við að
bæta hegðun sína og samskipti við umhverfið.
Námskeiðin hafa verið kennd frá árinu 2000. Á
annað þúsund foreldra og starfsfólks leik- og
grunnskóla hefur sótt þau og þykir árangurinn
afar góður.
KFUM OG KFUK
KFUM og KFUK hafa í 110 ár helgað starf sitt börnum og unglingum. Félagið rekur fimm sumar-
búðir og stendur fyrir æskulýðsstarfi yfir vetrarmánuðina í meira en 50 deildum víðs vegar um
landið og er það starf þátttaekndum að kostnaðarlausu. Þá stendur félagið fyrir verkefninu Jól
í skókassa sem unnið er í samvinnu við KFUM í Úkraínu. Um 500 sjálfboðaliðar starfa á vegum
KFUM og KFUK og er það rúmur helmingur þeirra sem starfa með börnunum á vegum sam-
takanna.
NORÐLINGASKÓLI
Í Norðlingaskóla hefur verið bryddað upp á ýmsum nýungum í
skólastarfi. Lögð er áhersla á líðan barna í skólanum og þar eru allir
velkomnir og engum ofaukið. Unnið er samkvæmt einstaklings-
áætlun og tekið mið af sterkum hliðum nemendanna og áhugasviði.
Mikið er lagt upp úr foreldrasamstarfi og er skólaboðunardagur á
hausti dæmi um það. Þann dag heimsækja kennarar nemendur og
foreldra þeirra. Áhersla er lögð á útivist og nýtist útikennslustofan í
Björnslundi vel til þeirrar kennslu. Skólastjóri Norðlingaskóla er Sif
Vígþórsdóttir.
ÓLAFUR BEINTEINN ÓLAFSSON
Ólafur Beinteinn hefur verið kennari í meira en 42 ár sam-
fellt. Samhliða kennarastarfinu hefur Ólafur unnið viðamikið
nýsköpunarstarf, meðal annars hefur hann kynnt kennnslu-
aðferðir þar sem samþætting námsgreina og listræn gildi eru í
hávegum höfð. Um þessar mundir vinnur Ólafur að námsbók
um viðfangsefnið Fuglaveröld en það námsefni er ætlað bæði
leikskóla- og grunnskólanemendum.
SVANHILDUR SIF HARALDSDÓTTIR
Svanhildur hefur helgað líf sitt börnum, meðal annars hefur
hún tekið börn í fóstur og verið stuðningsforeldri. Aðalverkefni
hennar nú er rekstur sumarbúðanna Ævintýralands sem nú
hafa starfað í tíu ár. Lögð er áhersla á forvarnir og upp-
byggingu sjálfstrausts í búðunum og starfsfólk gengst undir
námskeið hjá sálfræðingi áður en það hefur störf. Þar er lögð
áhersla á virðingu við börnin, auk þess sem sérstaklega er
farið yfir hvernig best er að hjálpa börnum með ADHD.
HVUNNDAGSHETJA FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐAR