Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2009, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 28.02.2009, Qupperneq 26
26 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR ALÞJÓÐAHÚS Í BREIÐHOLTI Tilgangur Alþjóðahúss í Breiðholti er að koma til móts við þann stóra hóp innflytj- enda sem á heima í Breiðholti. Starfsem- in byggist á hverfistengdum verkefnum sem íbúum af mismunandi uppruna gefst kostur á að taka þátt í. Meðal fastra liða í starfi hússins eru alþjóðlegir foreldra- morgnar og íslenskukennsla og heima- námsaðstoð. Einnig er mikið lagt upp úr samstarfi við íbúa Breiðholts, stofnanir og félagasamtök. Kamilla Ingibergsdóttir er verkefnastjóri Alþjóðahúss í Breiðholti. DAGUR STEINN, JÓHANN HAUKUR, JÓN GYLFI OG GUNNAR DARRI Dagur Steinn, Gunnar Darri, Jóhann Haukur og Jón Gylfi eru nemendur í Ingunnarskóla í Grafarvogi. Drengirnir eru mikið saman bæði innan og utan skólans. Vinátta þeirra er sérstök og einkennist af gagnkvæmri virðingu og gleði. Samband drengjanna er gott dæmi um hvernig skóli án aðgreiningar getur stuðlað að aukinni víðsýni. RAUÐI KROSSINN Á AKRANESI Í september síðastliðnum komu átta palestínskar flóttakonur til Akraness ásamt 21 barni sínu og settust þar að. Hitann og þungann af verkefninu bar flótta- mannanefnd félagsmálaráðuneytisins, Akranesbær og Rauði krossinn á Akranesi. Einkar vel hefur tekist til við að tengja hinar nýfluttu konur við ýmsa hópa samfélagsins á Akranesi, þar á meðal nemendur við Fjölbrautaskólann. Einnig hafa konurnar tekið þátt í ýmsum verkefnum á vegum Rauða krossins. Niðurstaðan er að aðlögun fjölskyldnanna hefur gengið vonum framar. SIGRÚN DANÍELSDÓTTIR Sigrún er sálfræðingur og starfar með börnum og unglingum sem stríða við átröskun. Hún er þó fyrst og fremst tilnefnd vegna átaks hennar sem beinist að samfélagsviðhorfum í tengslum við holdafar. Sigrún leggur áherslu á líkamsvirðingu og virðingu við þá staðreynd að það sé eðlilegt að líkamar fólks séu mismun- andi. Hún leggur áherslu á góða líkamlega umhirðu án áherslu á þyngd, eða heilsu óháð holdafari og berst ötullega gegn fordóm- um sem fólk verður fyrir vegna líkamsvaxtar. STYRMIR BARKARSON Styrmir heimsótti alla grunnskóla í Reykjanesbæ árið 2008 og fræddi nemendur í 4. bekk um fjölmenningu og fordóma. Liður í verkefni hans var að afhenda öllum nemendun- um trélitakassa með fjölbreytilegum andlitslitum. Að fræðslustarfinu loknu efndi hann til teiknisamkeppni meðal barnanna og var afraksturinn sýndur á Ljósanótt í Reykjanesbæ. TIL ATLÖGU GEGN FORDÓMUM SAMFÉLAGSVERÐLAUN ÁSGARÐUR HANDVERKSTÆÐI Ásgarður er verndaður vinnustaður fyrir fólk með þroskahömlun. Í vinnunni í Ásgarði er áhersla lögð á að þroska hinn manneskjulega þátt vinnunnar. Framleiðsla verkstæðisins er löguð að getu hvers og eins og starfsmönnum hjálpað að ná valdi á hugmyndum og verkfærum og vinna með þau. Fagleg markmið Ásgarðs eiga rætur í uppeldiskenningum Rudolfs Steiner en í kenningum hans felst meðal annars að ekki er litið á fötlun sem vandamál heldur möguleika. EKRON Ekron er einstaklingsmiðuð atvinnutengd starfsþjálfun og endurhæfing fyrir þá sem hafa skerta vinnufærni vegna afleið- inga áfengis- og vímuefna. Þeir sem koma í Ekron fá aðstoð við að vinna úr sínum málum bæði fjárhagslegum og persónu- legum. Markmiðið með starfinu er að byggja fólk upp til að taka á ný fullan þátt í samfélaginu. Mikið og þétt utanumhald er um þá sem taka þátt í starfi Ekron. Auk starfsþjálfunarinn- ar er rekið áfangaheimili á vegum Ekron. Framkvæmdastjóri Ekron er Hjalti Kjartansson. HÖNDIN Mannúðar- og mannræktarsamtökin Höndin eru vettvangur til sjálfstyrkingar og sam- hjálpar. Markmið samtakanna er að liðsinna fólki sem er að feta sín fyrstu skref til nýs lífs eftir ýmis konar áföll. Haldnir eru vikulegir fundir og einnig fjölsótt málþing þar sem tiltekin viðfangsefni eru tekin til umfjöllunar. Einnig er starfað í sjálfshjálparhópum og veitt persónuleg þjónusta. LJÓSIÐ Ljósið er endurhæfingar- og stuðn- ingsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Í Ljósinu er dagskrá alla virka daga. Húsnæðið er mjög heimilislegt og er öll fjölskyldan velkomin í margvísleg uppbyggjandi verkefni. Ljósið býður upp á sjálfseflandi námskeið, fræðslufundi fyrir karlmenn, handverkshús, jóga, leikfimi í samvinnu við Hreyfingu, gönguhópa, golfhóp, slökun, heilsunudd og fleira. Að jafnaði koma um 220 einstaklingar í Ljósið í hverjum mánuði. Erna Magnúsdóttir er forstöðumaður Ljóssins. VINIR INDLANDS Vinir Indlands hafa haldið úti öflugri starfsemi í Tamil Nadu-fylki á Indlandi. Þar hefur verið byggt heimili fyrir munaðarlaus börn, skólakostnaður greiddur og reistar og reknar fræðslumiðstöðvar í afskekktum þorpum. Þar að auki er félagið með fósturbarnaverkefni þar sem íslenskar fjölskyld- ur taka að sér að styrkja indversk börn. Félagið hefur einnig tekið þátt í fjölþjóðahátíðum hér heima. Öll vinna á vegum félagsins er í sjálfboðavinnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.