Fréttablaðið - 28.02.2009, Side 32
32 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
É
g veit eiginlega ekki
hvernig á að lýsa
þessu. Ég kunni eigin-
lega betur við gamla
lagið. Það var eitt-
hvað sérstakt við það.
Með bjórnum er eitt síðasta vígið,
sem einkennt hefur okkur Íslend-
inga, fallið. Nú getum við keypt
bjór, hlustað á margar útvarps-
stöðvar og séð sjónvarp á fimmtu-
dögum,“ sagði einn viðmælenda
blaðamanns DV sem tók hús á við-
skiptavinum áfengisútsölunnar við
Snorrabraut, sem hýsir nú meðal
annars söluturninn og mynda-
bandaleiguna Ríkið, á bjórdaginn,
1. mars 1989.
Þessi ágæti viðmælandi lét efa-
semdirnar um ágæti bjórsölu á
Íslandi eftir 74 ára bann þó ekki
aftra sér frá að festa kaup á hinum
fyrrum forboðna drykk, og ljóst
að ótal fleiri fóru að dæmi hans á
þessum tímamótadegi í sögu þjóð-
arinnar.
340.000 dósir fyrsta daginn
Aflétting bjórbannsins sem gilt
hafði hér á landi frá árinu 1915
átti sér nokkurn aðdraganda eins
og gengur. Fram til 1. mars 1989
stóð skýrum stöfum í tollalögum
að einungis áhöfnum skipa og flug-
véla væri heimilað að koma með
nokkurt magn af bjór til landsins í
hverri ferð. Árið 1979 var lögunum
breytt á þann hátt að allir ferða-
menn sem aldur höfðu til fengu
leyfi til að hafa með sér ákveðið
magn bjórs inn í landið.
Það var svo árið 1988 sem frum-
varpið sem varð að lögum númer
38/1988 var lagt fram, sem heim-
ilaði ÁTVR að hefja sölu á áfeng-
um bjór. Frumvarp þetta var þó
ekki samþykkt fyrr en eftir miklar
umræður og deilur á Alþingi, þar
sem meðal annars Geir H. Haarde
barðist fyrir brautargengi frum-
varpsins. Steingrímur J. Sigfús-
son var ekki jafn hrifinn og greiddi
atkvæði gegn frumvarpinu.
Á bjórdeginum, 1. mars 1989,
seldust 340.000 dósir í Vínbúð-
um landsins, sem þá voru einung-
is sautján talsins, og fyrstu þrjá
dagana sem bjór var í boði komu
60 milljónir króna í kassann hjá
ÁTVR. Í dag eru Vínbúðirnar 49 og
selja alla jafna samtals um 250.000
dósir á hefðbundnum föstudegi í
mars.
Áhugi heimspressunnar
Fjölmiðlar, innlendir sem erlendir,
voru í viðbragðsstöðu dagana fyrir
bjórdaginn og spáðu margir hverj-
ir fullkomnu ölæði og stjórnleysi í
landinu þegar stóra stundin rynni
upp. Raunin varð þó sú að þrátt
fyrir töluverða ölvun á knæpum
landsins fór allt vel fram. Starfs-
menn lögreglunnar, sem þrátt fyrir
mannfæð og fjárþurrð höfðu búið
sig undir mikla aukningu í ölvunar-
akstri, voru á flestum stöðum hæst-
ánægðir með daginn og hrósuðu
bjórdrekkandi landanum í hástert.
Sums staðar mynduðust biðraðir
við áfengisútsölur og einhverjir létu
sig hafa það að sofa í svefnpokum
fyrir utan næsta ríki til að freista
þess að ná í bjórinn kjallarakaldan
af færibandinu, en hvergi mynd-
aðist örtröð nema þá á vinsælustu
knæpunum þar sem gleði og glaum-
ur ríktu fram eftir kvöldi.
Almenna bókafélagið gaf út „Bók-
ina um bjórinn“ í tilefni dagsins, og
var lesendum lofað upplýsingum
um „ … framleiðslu bjórs, mismun-
andi bragð, glös, froðu, bjórkrár
og, síðast en ekki síst, ... yfirlit yfir
allt það sem bjórsnobbari þarf að
vita.“
Skemmtileg hefð
Enn þann dag í dag er haldið upp
á afmæli bjórsins á Íslandi hinn
1. mars, til að mynda með ýmsum
uppákomum og tilboðum á bjór-
krám og skemmtistöðum. Ósagt
skal látið hvort landsmenn sleppi
frekar fram af sér beislinu á
bjórdögum en aðra daga, en víst
er að hér á landi hefur myndast
skemmtileg hefð í kringum afmæl-
isdag bjórsins, og vonandi að hefð-
in sú festi sig enn frekar í sessi.
Bjórbylgjan skellur á landanum
SANITAS Þúsundum lítra af bjór skipað
upp fyrir bjórdaginn. Þrjár tegundir voru
bruggaðar á Akureyri; Sanitas Pilsner- og
Lager og Löwenbräu-inn þýski.
BEST Í HEIMI Margir höfðu beðið óþreyjufullir eftir bjórdeginum og skelltu því í sig nokkrum vel völdum um leið og færi gafst á.
Allt fór þó vel fram og dómsdagsspár sumra fjölmiðla reyndust ekki á rökum reistar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég man heldur betur eftir þessum degi því
þetta var eitt af okkar mestu ævintýrum í
sambandi við þættina,“ segir Hermann Gunn-
arsson fjölmiðlamaður, en þáttur af hinum
geysivinsæla spjallþætti „Á tali hjá Hemma
Gunn“ var á dagskrá RÚV að kvöldi bjórdagsins
1989. Gestir Hemma í þættinum voru meðal
annars söngvarinn Eiríkur Hauksson, sem hélt
tónleika á Hótel Íslandi þetta kvöld ásamt
félögum sínum í þungarokkssveitinni ARTCH,
írska þjóðlagahljómsveitin The Dubliners,
bandarísku diskóboltarnir í Village People, tón-
listarmaðurinn Finnur Eydal og Lögreglukórinn.
„Það hafði verið þrúgandi spenna í þjóðfé-
laginu, jafnvel árum saman, vegna þess að til
stóð að bjórbanninu mikla yrði aflétt. Áhorfið
á þáttinn minn var svo svakalega mikið á
þessum tíma að við vissum að kveikt yrði á
sjónvarpinu á öllum krám og skemmtistöð-
um á landinu, þar sem bjórinn átti samtímis
að flæða. Við ákváðum því að taka þátt í
veislunni,“ segir Hemmi sposkur.
„Þarna var enn notast við gömlu leikmynd-
ina í þáttunum, þar sem ég kom gangandi
niður stiga og inn á sviðið í upphafi hvers
þáttar. Þegar hljómsveitin hóf að spila upp-
hafsstefið slagaði ég niður stigann í helvíti
fínum hvítum jakkafötum, bindið komið út á
kant og allt leit út fyrir að ég hefði skellt mér í
➜ ÞJÓÐARSKELFING Í KJÖLFAR BJÓR-GRÍNS
HERMANN GUNNARSSON
„Ég man vel eftir þessum degi,“ segir Skjöldur
Sigurjónsson veitingamaður, sem hefur verið
lengi í bransanum, eða „fyrir og eftir bjór“ eins
og hann orðar það.
Á þessum tíma starfaði Skjöldur á veitinga-
húsinu Naustinu við Vesturgötu. „Það var mikil
stemning í veitingamönnum og menn höfðu
beðið lengi eftir þessum degi. Það þótti voða-
lega mikið „erlendis“ að geta sest niður og
snætt og fengið sér öl með, og það gerði það
að verkum að oft voru nokkrir bjórar teknir í
hvert skipti fyrstu dagana. Það var því gríðarleg
ölvun í miðbænum dagana í kjölfar bjórdags-
ins, sem sýndi nú ekki það sem koma skyldi,“
segir Skjöldur.
Hann segir komu bjórsins hafa bætt
drykkjumenningu Íslendinga til muna. „Fram
að bjórdeginum hafði þetta verið þannig að
barinn lokaði klukkan hálf þrjú en húsið ekki
fyrr en þrjú. Þess vegna voru margir í því að
hamstra á barnum og þau urðu oft ansi mörg
glösin sem þurfti að þamba úr fyrir lokun.
Þú getur ímyndað þér ölvunina sem úr varð.
Friðsömustu menn urðu bandbrjálaðir með
víni. Síðan hefur menningin þróast á allt
annan hátt. Nú er þetta orðið meira félagslegt.
Fólk hittist kannski í einn öl án þess að fara á
fyllirí.“
➜ BJÓRINN BÆTTI DRYKKJUMENNINGUNA
Bjórsala hófst að nýju á
Íslandi eftir 74 ára langt
bann hinn 1. mars árið
1989. Í tilefni af tvítugs-
afmæli B-dagsins svo-
kallaða rifjaði Kjartan
Guðmundsson upp þessi
tímamót í sögu þjóð-
arinnar og ræddi við
menn sem muna eftir
atburðum dagsins líkt
og þeir hefðu gerst í
gær. Skál í boðinu!
SKJÖLDUR SIGURJÓNSSON
FRAMHALD Á SÍÐU 37
VITA er lífi ð
Alicante
Flugsæti
Verð frá 39.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
Beint morgunfl ug
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Beint flug með Icelandair
í allt sumar til Alicante,
Mallorca og Tyrklands
Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig
í ferðaklúbbinn á VITA.is