Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 36
Fleiri spennandi námskeið fyrir
göngufólk í mars, apríl og maí.
Kynnið ykkur göngudagskrá FÍ
á www.fi .is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Ferðafélag Íslands
www.fi .is
Æfi ngar í Esjunni
Gönguferðir í mars.
Fjallaskíðanámskeið með Jökli Bergmann
Göngugleði á sunnudögum
Sjá nánar á www.Fi.is
Mæðgin Þorgerður og Hilmir Páll.Mæðgur Aðalheiður ásamt dætrunum Hönnu og Hrönn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ast í kringum bleiuleysi en þó að
hugmyndin sé góð eru ekki marg-
ir sem treysta sér til að taka börn
af bleiu svo snemma.
Því stendur eftir valið á milli
einnota bleia og taubleia og þó að
meirihluti velji pappírsbleiur full-
yrða þeir sem til þekkja að notk-
un á taubleium hafi aukist til mik-
illa muna undanfarin ár, og ekki
síst síðan þrengja tók að hjá fólki
í kjölfar þrenginga, verðbólgu og
hruns.
Sparnaðarsjónarmið ráða
Guðbjörg Eggertsdóttir, eigandi
verslunarinnar Litlu Kistunnar,
sem meðal annars selur taublei-
ur segir söluna hafa tekið mik-
inn kipp eftir efnahagshrunið.
„Áður voru kaupendur taubleyia
fyrst og fremst að velta umhverf-
issjónarmiðum fyrir sér en síðan
harðna tók á dalnum fóru pening-
arnir að skipta máli,“ Guðbjörg
bendir á að þó að stofnkostnaður-
inn sé töluverður þá séu bleiur nú
til dags svo góðar að þær endist á
fleiri börn en eitt og fólk selji þær
jafnvel þegar bleiutímabili lýkur
ætli það ekki að eignast fleiri
börn. „En góðu taubleiurnar eru
svo eftirsóttar að þær seljast um
leið og þær eru auglýstar á vefnum
hef ég tekið eftir.“ Guðbjörg segir
kúnnahópinn fjölbreytilegan hjá
sér, en þó séu mæður eldri en þrí-
tugar algengastar, þær leggist oft
í dýpri pælingar í kringum barn-
eignir en þær yngri.
Guðbjörg segir að sér virðist að
þegar mæður venji sig á að nota
taubleiur þá finnist þeim það ekk-
ert vesen.
Minna vesen að nota tau
Undir það tekur Þorgerður
Pálsdóttir sem byrjaði að nota
taubleiur á son sinn, Hilmar Pál,
þegar hann var sjö mánaða. „Þá
keypti ég tólf taubleiur, það reynd-
ist vera of lítið og fljótlega bætti
ég fjórum við, sem er hæfilegt.
Ég set notuðu bleiurnar í körfu og
þvæ bleiur annan hvern dag, sem
er ekkert mál. Sumir spyrja mig
hvort að þetta sé ekki vesen, en
mér finnst þetta bara minna vesen
en að þurfa að fara út í ruslatunnu
með óhreinar bleiur.“
Þorgerður keypti sínar bleiur í
Bandaríkjunum, fyrir hrun þannig
að hennar byrjunarpakki með tólf
bleium kostaði aðeins fimmtán
þúsund, síðar bætti hún við fleiri
bleium en hennar sett kostaði þó
eigi að síður bara tuttugu þúsund
sem er mjög vel sloppið reyndar og
ekki verð sem er raunhæfur stofn-
kostnaður í dag. „Við erum búin að
spara heilmikinn pening á þessu,
það er alveg á hreinu,“ segir Þor-
gerður sem segir það þó fyrst og
fremst hafa verið umhverfissjón-
armið sem ýttu sér af stað á sínum
tíma. „Ég las að hverju barni
fylgdu tvo tonn af pappírsbleium
og ég hafði bara ekki samvisku í
að fara þá leið.“
Þorgerður myndi þó ekki mæla
með taubleium fyrstu mánuðina
á meðan reglan er lítil á börn-
um en það eru skiptar skoðanir á
því í bleiufræðunum. Þorgerður
mælir með taubleiunum sem hún
notar, Bumgenius, en upplýsingar
um hinar ýmsu tegundir er meðal
annars að finna á ýmsum netsíð-
um t.d. www.natturulegt.is.
KOPPURINN Það getur krafist þolinmæði að venja börn á koppinn en skilar sér
vissulega í miklum létti þegar bleiutímabili lýkur. Koppar fást af ýmsum stærðum
og gerðum. Sá sem sést á myndinni er frá Babybjörn og er mjög þægilegur,
Skálin er laus og auðvelt að tæma í klósettið, jafnvel fyrir litla snillinga.
Taubleia
Kostir
Minna rusl
Ódýrara þegar upp er staðið
Umhverfisvænt
Börn fá síður útbrot
Gallar
Dýrt í upphafi
Meiri þvottur
Meiri rafmagns- og vatns-
notkun
Pappírsbleiur
Kostir
Einfalt og þægilegt
Hendir bleium eftir notkun
Gallar
Þarft að eiga bleiur.
Dýrar og rándýrar í öðrum
verslunum en lágvöruversl-
unum.
Svo rakadrægar að börn eru
lengur á bleiu en þau væru
ella segja sumir.
KOSTIR
&GALLAR
MISDÝRAR BLEIUR
Stór pakki af merkjableiu, 54 stk. 2.000 krónur, stykkið kostar 37 kr. Stór pakki af ódýrari gerð: 1.000
kr., stykkið á 20 kr. Taubleia - 3.500 krónur.
Dæmi 1: Barn notar átta bleiur á sólarhring að meðaltali, eða 2.920 bleiur á ári. Bleiukostnaður yfir
árið er þá 108.040 krónur ef dýrari bleiur eru notaðar en 58.400 ef ódýrari tegund er valin.
Dæmi 2: Ef keyptar eru 16 bleiur á 3.500 krónur stykkið þá gera það 52.500 kr. Þar með er útgjöldum
lokið sé þessi fjöldi látinn duga. Flestir nota samt pappírsbleiur með, til dæmis á ferðalögum en það
eru þá nokkrir pakkar á ári í mesta lagi.
Breytingar á bleiunotkun í dýrtíðinni
Taubleiunotkun hefur aukist síðan í haust eins og fram kemur í greininni hér á síðunni en það er ekki
eina breytingin sem hefur átt sér stað. Ýmsar vísbendingar benda til þess að Íslendingar kaupi nú í
mjög auknum mæli ódýrari gerðir af bleium. Á smábarnaleikskólanum 101 Rvk fengust til dæmis þær
upplýsingar að eftir hrunið í haust hefði fólk farið að kaupa ódýrari bleiur en áður. Hjá Bónus fengust
þær upplýsingar að söluaukning væri á Euroshopper, merki sem þeir flytja sjálfir inn og er helmingi
ódýrara en Pampers og Libero, sem hafa hingað til verið þekktustu bleiumerkin. Þegar neytendafröm-
uður Fréttablaðsins, Dr. Gunni, benti á það sparnaðarráð í pistli að nota ódýrari bleiur til að spara
spannst mikil umræða um þá færslu á Netinu, fólk hafði mjög sterkar skoðanir á því hvort ódýrari
merki væru verri eða jafn góð og þau dýru og sýndist sitt hverjum. Ekki skal fullyrt um það hér.
Hvað kosta bleiur fyrir barnið?*
*Ath. verðið miðast við verð í lágvöruverslun, og eru upphæðirnar
námundaðar enda er taflan hugsuð til hliðsjónar en ekki sem algildur
sannleikur.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
2 fjölskyldan
umhverfið
veljum grænar vörur...