Fréttablaðið - 28.02.2009, Side 38
HEIMILISHALD
RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR
● Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók mynd í
Saltfélaginu Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skafta-
hlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald
Eyvindsson roald@frettabladid.is og Emilía Örlygs-
dóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór
Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
heimili&hönnun
Fermingartilboð 2009
Sjá nánar á www.betrabak.is
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009
Í SÁTT OG SAMLYNDI
Margrét Birna Þórarinsdóttir
sálfræðingur telur upp kosti þess
að láta systkini vera saman í
herbergi.
BLS. 6
SJÁLFBÆRNI Viðbúið er að
fleiri Íslendingar snúi sér
að sjálfsþurftarbúskap á
næstunni í ljósi breyttra
aðstæðna í þjóðfélaginu.
BLS. 4-5
FÖGUR FORM
Saltfélagið opnað að nýju í húsakynnum Pennans í Hallarmúla
BLS. 7
● heimili&hönnun
H
eimilisfriðurinn er mikiklvægur hluti í lífi hverrar fjöl-
skyldu og það sem fólk elst upp við á æskuheimilinu hefur
mótandi áhrif á framtíðina. Meðal annars hversu háan þolin-
mæðiþröskuld fólk hefur gagnvart öðrum. Ömmur okkar og
afar rifja gjarnan upp þegar margfalt fleiri manneskjur deildu sama
fermetrafjölda og hver og einn hefur út af fyrir sig í dag. Oft bjuggu
fleiri en ein fjölskylda saman í íbúð eða húsi og var þá raðað þétt
í hvert herbergi. Börn deildu herbergjum með eldra fólki. Þessum
sögum fylgja yfirleitt fullyrðingar um að samkomulag milli fólks hafi
verið betra í þá daga en nú. Hjónaskilnaðir nánast óþekkt fyrirbæri og
fjölskyldan hélt saman gegnum súrt og sætt.
Við systurnar sváfum inni hjá foreldr-
um okkar fyrstu árin, áður en við flutt-
um saman í herbergi. Því her-
bergi deildum við í sæmilegri
sátt allt þar til önnur okkar
flutti að heiman. Svo gengum
við í heimavistarskóla
þar sem við deild-
um herbergi með
fleiri stúlkum allt
til unglingsára.
Ég er ekki frá því að þetta nána sam-
býli hafi aukið á tillitssemi og þannig
verið til góðs. Hins vegar var ekki
mikið um næði sem var erfitt, sérstak-
lega á unglingsárum þegar þolin-
mæði gagnvart yngri systkinum
minnkaði. Þannig gæti ég eins trúað að
hið nána sambýli sem eldri kynslóðir vitna til
með rómantík í augum, hafi ekki alltaf verið dans á rósum. Aðstæður
buðu bara ekki upp á annað svo fólk lét sér lynda sama hvað á gekk.
Með meiri peningum hafa aðstæður fólks breyst og kröfurnar þar
með. Frelsi einstaklingsins og réttur hans á næði varð mikilvægara og
heil kynslóð hefur alist upp við sérherbergi, sérsjónvarp, nettengingu
og einkasíma. Nú er aftur á móti spurning hvort við séum að sigla inn
í svipaða tíma og ömmur okkar og afar töluðu um. Peningar vaxa ekki
á trjánum lengur og óvíst er um atvinnu margra. Í dag þurfa því marg-
ir að minnka við sig húsnæði og raða þéttar í herbergin. Þá er gott að
rifja upp sögur ömmu og afa og taka sér þolinmæði fyrri kynslóða til
fyrirmyndar.
Þú getur sjálfur gert greiðslumat á netinu. Ef
þú þarft á aðstoð að halda geturðu hringt
í okkur, komið á staðinn og hitt ráðgjafa
okkar eða haft samband á netinu.
Þegar þú hefur fundið draumaíbúðina sækir
þú um lánið á www.ils.is. Lánið er afgreitt á
fjórum virkum dögum.
Gengið frá greiðslumati
Sótt um íbúðalán
Sótt um lengingu og
styttingu á lánstíma
Á ils.is getur þú:
Bráðabirgðamat
Reiknivélar
Netsamtal við ráðgjafa
Ýmsar þjónustubeiðnir
Önnur þjónusta á ils.is:
Þolinmæði afa og ömmu
„Eins gæti ég trúað
að hið nána
sambýli sem eldri
kynslóðir bjuggu
við og vitna til með
rómantík í augum,
hafi ekki alltaf verið
dans á rósum.“
„Ég er að sýna leirlistaverk sem
ég hef verið að vinna síðan árið
2008. Meðal annars verk undir
áhrifum frá gömlum hlutum sem
hafa fylgt mér í gegnum tíðina.
Ég meira að segja stilli stundum
verkunum og hlutunum upp hlið
við hlið til að taka af öll tvímæli
um þessi tengsl,“ segir listakonan
Margrét Jónsdóttir, sem sýnir
leirlistaverk á Listasafninu á
Akureyri undir yfirskriftinni
Hvítir skuggar.
Að sögn Margrétar er hug-
myndin með sýningunni sú að
afmá hin tilbúnu landamæri milli
listaverka og nytjalistar. „Það
er alltaf verið að tala um list og
nytjalist og muninn þarna á milli.
Sjálf hef ég verið að vinna með
hvort tveggja og aðhyllist því ekki
þessa aðgreiningu. Sem dæmi um
það er ég þarna með vasa og sæki
innblásturinn í fjöldaframleidd-
an vasa sem ég keypti eitt sinn og
hefur fylgt mér um nokkurt skeið.
Þarna er líka til sýnis borð sem
kallast Hringborð hvítra skugga,
en ofan á það hef ég staflað
ýmsum nytjahlutum svo úr verður
skúlptúr.“ Margrét segist hafa
gert ýmsar tilraunir með samspil
leirs og annarra efna í gegnum
tíðina, svo sem steinsteypu, kop-
ars, silfurs og mósaíks. Á sýning-
unni heldur hún þessu tilrauna-
starfi áfram. „Í þetta sinn er ég til
dæmis að vinna með plast í fyrsta
sinn,“ bendir hún á og bætir við:
„Svo bað ég nokkra rithöfunda að
semja texta um hluti sem hægt er
að leira, vann verk út frá þeim og
sýni síðan hvort tveggja.“
Óhætt er að segja að marg-
breytileiki sé áberandi á sýning-
unni, en eitt eiga þó allir hlutirn-
ir sameiginlegt og það er liturinn.
„Verkin eru öll hvít og vísar yf-
irskrift sýningarinnar til þeirrar
staðreyndar,“ útskýrir Margrét.
Þess skal getið að sýningunni
lýkur 8. mars næstkomandi.
Nánar á vefsíðunni www.lista-
safn.akureyri.is. - rve
Tilraunastarf fyrir norðan
● Listakonan Margrét Jónsdóttir sýnir tilraunakennd leirlistaverk á Listasafninu á Akureyri.
Þar leitar hún ýmissa leiða við að afmá hin tilbúnu landamæri milli listarverka og nytjalistar.
Margrét hefur farið óhefðbundar leiðir í listsköpun sinni í gegnum tíðina.
Verkin á sýningunni eru undir áhrifum frá nytjahlutum sem Margrét hefur eignast. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
28. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR2