Fréttablaðið - 28.02.2009, Side 42

Fréttablaðið - 28.02.2009, Side 42
 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR2 Gunnlaugur Bragi Björnsson er tvítugur sjálfboðaliði Rauða kross Íslands. Í komandi viku ætlar hann að heimsækja stríðshrjáð börn í Palestínu. „Þetta verður eflaust mjög spennandi þótt ómögulegt sé að vita við hverju á að búast, því Pal- estína er allt annar heimur en fóstur jörðin hér. Þetta verður án efa mjög gefandi um leið og átak- anlegt og erfitt, en ég hef heyrt að Palestínubúar séu ótrúlega opnir, skemmtilegir og léttlyndir, miðað við þær aðstæður sem þeir lifa við, en trúlega er það eina leiðin til að komast í gegnum þær,“ segir Gunn- laugur sem í gærmorgun hélt utan í félagi við Sólveigu Ólafsdóttur, sviðsstjóra upplýsingasviðs RKÍ, og Kristínu Helgu Magnúsdóttur sjálfboðaliða, en bæði standa þau Gunnlaugur á tvítugu. „Rauði kross Íslands vinnur með Rauða krossi Ítalíu, Frakklands og Danmerkur að þessu verkefni sem hefur verið í gangi síðan 2002, en samtökin halda úti stöðvum í Pal- estínu þar sem stríðshrjáðum börnum er veittur sálrænn stuðn- ingur. Árlega sendir svo hvert land tvo unga sjálfboðaliða á svæðið, sem ferðast um og hitta krakka í skólum og öðru umhverfi þeirra. Markmið ferðarinnar er að kynna aðstæður palestínskra barna í okkar heimalöndum, opna augu landa okkar og auka víðsýni þeirra gagnvart stríðandi þjóð.“ Fylgjast má með ferðabloggi þeirra Gunnlaugs Braga og Krist- ínar Helgu á www.palestinufarar. blog.is. thordis@frettabladid.is Augu opnuð og víðsýni aukin fyrir þjóð í nauð Rauði kross Íslands tekur þátt í samstarfsverkefni franskra, ítalskra og danskra systurfélaga sinna með því að veita stríðshrjáðum börnum í Palestínu sálrænan stuðning, en þangað héldu tvö ungmenni í gær. Gunnlaugur Bragi Björnsson hefur starfað með Rauða krossi Íslands síðan 2005. Hann vonast til að geta farið aftur utan til Palestínu og lagt ungmennum þar lið í framtíðinni, sem og öðrum þjóðum sem eiga um sárt að binda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA GRÆNIR DAGAR Norræna hússins og Gaia, félags nemenda í umhverfis- og auðlindafræði, verða haldnir 2. til 6. mars. Á Grænum dögum verður meðal annars boðið upp á málþing, fatamarkað og kvikmyndasýningu. Námskeið byggt á reynslusögum mæðra hefst í Kramhúsinu. Leikkonan og leikstjórinn Charlotte Böving er að fara af stað með námskeið í Kramhúsinu sem er ætlað mæðrum í fæðingarorlofi og ungbörnum þeirra. Þar verður megináhersla lögð á að þátttak- endur næri sálina með sköpun og hreyfingu. Á námskeiðinu verður unnið með reynslusögur þátttak- enda og annarra af móðurhlut- verkinu í bland við hreyfingu. „Hugmyndin byggir á leikritinu Mamma mamma sem ég leikstýrði í Hafnarfjarðarleikhúsinu en það var byggt á reynslusögum leikar- anna og viðtölum við konur. Þá er ég sjálf tiltölulega nýbökuð tví- buramamma og finn hversu auð- velt er að einangrast í fæðingar- orlofi og hversu mikilvægt er að næra sjálfa sig og fá tækifæri til að skapa.“ Að sögn Charlotte er markmiðið með námskeiðinu ekki endilega að búa til leikrit þó að það sé ekki úti- lokað. „Við erum umfram allt að opna á gleðina og virkja sköpun- arkraftinn með börnin okkur við hlið en þau hafa gaman af því að fylgjast með og róast þegar móð- irin nærir sjálfa sig. Námskeiðið, sem stendur í fjórar vikur, hefst mánudaginn 9. mars. - ve Skapandi mæður Charlotte segir mikilvægt að mæður fái tækifæri til að næra sálina og skapa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Velkomin í Skrúfudagur Tækniskólans er í dag, laugardaginn 28. febrúar, frá kl. 12 – 16. Komdu í heimsókn og taktu þátt í skemmtilegri dagskrá og kynntu þér um leið það nám sem er í boði. Þú gætir unnið útsýnisflug, tíma í flug- hermi eða námskeið. • Flugskólinn. • Véltækniskólinn. • Skipstjórnarskólinn. • Endurmenntunarskólinn. • Stálsmiðjan Framtak. • Slysavarnaskóli sjómanna. • Barkasuða Guðmundar. • Scubaiceland köfunarskóli. • Opnar vinnustöðvar í Vélasölum. • Siglingahermir. • Vélahermir. • Kökuhlaðborð. • Leiðsögn um húsið. • Opið í flughermi. • Siglingastofnun. • Félag skipstjórnarmanna. • Kælismiðjan Frost. • Eimskip. • Fjórhjólaævintýri. • Danfoss. • Antlantsolía. • Kafbátur. Dagskrá á Háteigsvegi (Sjómannaskólahúsinu)

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.