Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 44
Kolaportið
er opið
laugardaga
og
sunnudaga
frá kl. 11-17
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
SKRAUTSPÖNG getur fullkomnað útlitið þegar eitt-
hvað mikið stendur til. Þessi leðurspöng er frá gbeta
og fæst fyrir 8.000 krónur í Krista/Quest í Kringlunni.
Bergþór Bjarnason flutti til Par-
ísar fyrir fjórtán árum og hefur
meirihluta þess tíma starfað sem
sölumaður nokkurra vel þekktra
tískuverslana. Hann hefur miðlað
af reynslu sinni úr háborg tísk-
unnar til lesenda Fréttablaðsins í
fjögur ár með vikulegum pistlum
um tísku.
„Það var nú í síðustu kreppu
sem ég ákvað að fara til Parísar
enda var þá ekki margt í spilunum
á Íslandi og mig langaði að prófa
eitthvað nýtt,“ segir Bergþór sem í
dag vinnur sem sölumaður hjá Val-
entino en áður hefur hann unnið
hjá Yves Saint Laurent og Chanel.
Helstu þekkingu sína á tísku
hefur Bergþór úr umhverfi sínu.
„Ég er ekkert menntaður á tísku-
sviðinu. Ég er með BA í íslensku og
diplómu úr hagnýtri fjölmiðlun og
það er líklega eins langt frá tísk-
unni og mögulegt er,“ segir hann
og bætir við hlæjandi að hann hafi
í raun aldrei haft mikinn áhuga á
tísku. „Ég var reyndar að vinna
í tískubúð í Reykjavík á háskóla-
árunum en það var nú bara til að
borga leiguna,“ segir Bergþór sem
bjó þó að þeirri reynslu þegar hann
kom til Parísar og var að leita sér
að vinnu. „Í rauninni hefur tísk-
unni verið þröngvað upp á mig,“
segir hann hlæjandi.
„Það sem mér finnst skemmti-
legt við tískuna er að skoða sög-
una á bak við hana. Hér í landi er
tískan mjög mikilvæg og miklu
fremur listgrein en framleiðsla.
Því er gaman að rekja sögu ein-
hvers stíls, persónu eða flíkur,“
segir Bergþór og nefnir til að
mynda rykfrakkann eða „trench
coat“ sem á uppruna sinn að rekja
til skotgrafanna í fyrri heimsstyrj-
öldinni.
Inntur eftir vor- og sumartísk-
unni segir Bergþór: „Það verður
áfram, eins og hefur verið, nokk-
urt afturhvarf til fortíðar enda
held ég að á krepputímum verði
það enn meira áberandi að leitað
sé leiða út úr vandanum með því að
horfa til baka,“ segir Bergþór og
bætir við að með harðnandi efna-
hagslífi verði tískan einnig mikið
praktískari. „Fantasían er á sýn-
ingarpöllunum en í búðunum eru
einfaldari föt til að tryggja sölu,“
útskýrir hann. En hvaða litir verða
á fötum í vor og sumar? „Hvítt
og ljóst verður áberandi. Einnig
mynstur og jafnvel sterkur plómu-
litur litur í bland við föla pastelliti.
Svo verður mikið meira af sterkum
litum í herratískunni en oft áður,“
segir Bergþór sem er síður en svo
útbrunninn þrátt fyrir ötul pistla-
skrif síðustu ár.
„Stundum líður mér reynd-
ar eins og ég viti ekkert hvað
ég ætla að skrifa um næst.
En á öðrum tímum hef ég
óteljandi hugmyndir,“
segir Bergþór sem
fær innblástur úr
umhverfinu en
hann er dug-
legur að líta
í k r i ng-
um sig og
safna áhuga-
verðum
greinum úr
blöðum.
Bergþór segist
hafa fengið mun meiri
viðbrögð við pistlum
sínum en hann hefði
getað ímyndað sér.
„Sumir þakka fyrir
eða eru að spyrja út í
eitthvað. Ég hef jafn-
vel lent í því að fólk
sendir mér póst til að
spyrja hvar það eigi
að versla í París,“
segir Bergþór glett-
inn.
solveig@frettabladid.is
Hafði ekki áhuga á tísku
Bergþór Bjarnason, sem býr og starfar í París, hefur skrifað tískupistla í Fréttablaðið í fjögur ár. Hann
segir að áfram muni ríkja afturhvarf til fortíðar í vor- og sumartískunni.
Hvítir og ljósir litir
verða áberandi
í vor og sumar.
Á vor- og
sumarsýningu
Elie Saab var
nokkuð um
hvíta kjóla á
borð við þennan.
Bergþór Bjarnason býr í París og starfar sem sölumaður hjá Valentino. Hann hefur
skrifað vikulega tískupistla í Fréttablaðið í fjögur ár.
For-
tíðarþrá
hefur verið
áberandi á
tískupöll-
um síðustu
mánuði
og verður
áfram
að mati
Bergþórs. Hér
er fyrirsæta í
kjól úr vor- og
sumarlínu
Jeans Pauls
Gaultier.
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...