Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 51
11
Auglýsing um skipulag í Kópavogi
Skipulags- og umhverfi ssvið
Deiliskipulag Kársnesbrautar 106
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist hér með tillaga að deiliskipulagi Kársnesbrautar 106. Í
tillögunni felst að í stað verslunarrýmis er þremur íbúðum komið fyrir á 1. hæð og 7 íbúðum á 2. hæð í suðurenda
hússins í stað skrifstofu. Gert er ráð fyrir geymslum fyrir íbúðirnar í kjallara í suðurenda hússins. Engar breytingar eru
gerðar á útliti hússins. Grunnfl ötur og heildarfl ötur hússins er óbreyttur. Reiknað er með 1 stæði per 50m2 í atvinnu-
húsnæði eða alls 28 stæðum. Íbúðum fylgir 10 stæði. Nýtingarhlutfall er óbreytt. Tillagan er sett fram á uppdrætti í
mkv. 1:1000 dags. 12. febrúar 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Breyting á deiliskipulagi Kópavogstúns, Kópavogsbrún 1.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist hér með tillaga að breyttu deiliskipulagi Kópavogsbrúnar
1. Í tillögunni felst fjölgun íbúða úr 4 í 6. Grunnfl ötur hússins stækkar úr 282 m² í um 320 m² og heildarbyggingar-
magn eykst úr 564m² í um 640m². Byggingareitur stækkar til austurs, suðurs og vesturs. Bílakjallari stækkar og fjölgar
bílastæðum í kjallara og á lóð úr 8 í 12. Nýtingarhlutfall breytist úr 0.60 í 0.66. Hámarkshæð húss er óbreytt. Tillagan
er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 dags. 14. febrúar 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Breyting á deiliskipulagi Smiðjuvegar 68 - 72.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist hér með tillaga að breyttu deiliskipulagi Smiðjuvegar nr.
68 til 72 Í tillögunni felst að sótt er um breytingu á nýtingu þriðju hæðar hússins (húsanna) að Smiðjuvegi 68 til 72
á þann veg að í stað verslunar og þjónustuhúsnæðis komi gistiheimili/ hótel. Breytingin tekur eingöngu til notkunar
húsnæðisins og hefur ekki áhrif á útlit eða umfang byggingar né skipulag lóðar og bílastæða. Tillagan er sett fram á
uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 28. janúar 2009. Nánar vísast til kynningargagna.
Tillögurnar verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fi mmtu-
daga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00 frá 3. mars 2009 til 31. mars 2009. Einnig má sjá tillögunar á heimasíðu
bæjarins, www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skrifl ega Bæjarskipulagi eigi síðar en kl.
15:00 þriðjudaginn 21. apríl 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs
á auglýstum tillögum að deiliskipulagi og breyttu aðalskipulagi.
Kópavogsbær
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögum:
Arnarnesvegur, deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar sam-
þykkt þann 24. febrúar 2009 tillögu að deiliskipulagi Arnarnesvegar. Athugasemdir bárust og hefur þeim aðilum sem
sendu inn athugasemdir verið send umsögn skipulagsnefndar og greinargerð með endanlegri áætlun. Málsmeðferð
var skv. 1. mgr. 26 . gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind
lög mæla fyrir um. Hverjum þeim sem telur rétti sínum hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu
til úrskurðarnefndar með kæru sbr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Kærufrestur er einn mánuður frá
birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins í B- deild Stjórnartíðinda.
Kópavogstún 2-4, breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar
samþykkt þann 27. janúar 2009 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Kópavogstún 2-4. Athugasemdir bárust og hefur
þeim aðilum sem sendu inn athugasemdir verið send umsögn skipulagsnefndar. Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 26 .
gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Hverjum þeim sem telur rétti sínum hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar
með kæru sbr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar
um samþykkt deiliskipulagsins, sjá B- deild Stjórnartíðinda þann 27. febrúar 2009.
Vatnsendahlíð – Þing, deiliskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar
samþykkt þann 14. október 2008 tillögu að deiliskipulagi í Vatnsendahlíð – Þingum. Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 26.
gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki voru talin koma fram atriði í athugasemdum og ábendinum sem
fram komu á auglýsingartíma skipulagstillögunnar sem gáfu tilefni til breytinga á henni í grundvallaratriðum. Með
breytingunni fylgdi umhverfi sskýrsla dags. í júlí 2008 og greinargerð með endanlegri áætlun. Uppdrættir hafa hlotið
þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Hverjum þeim sem telur rétti sínum hallað með samþykkt þessari er
heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar með kæru sbr. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Kæru-
frestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsins, sjá B- deild Stjórnartíðinda þann 27.
febrúar 2009.
Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi aðalskipulagi:
Dalvegur 24. Breytt aðalskipulag.
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar
samþykkt þann 24. febrúar 2009 tillögu að breyttu aðalskipulagi við Dalveg 24. Málsmeðferð var skv. 18. gr. Skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki voru talin koma fram atriði í athugasemdum og ábendinum sem fram komu
á auglýsingartíma skipulagstillögunnar sem gáfu tilefni til breytinga á henni.
Gögnin um breytingu á aðalskipulagi hafa verið send Skipulagsstofnun til yfi rferðar. Auglýsingin um gildistöku
aðalskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfi rferð Skipulagsstofnunar og staðfestingu umhverf-
isráðherra.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar skipulagsáætlanir er hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fann-
borg 6, 200 Kópavogi milli kl. 8:30 og 16:00 mánudaga til fi mmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00.
Smári Smárason.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Frá Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
KYNNINGARFUNDUR Á FERÐUM SUMARSINS
verður haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða
þriðjudaginn 3. mars nk. kl. 20:00
Orlofsferðir sumarið 2009
Austurland og Vestfi rðir 19.-22. júní
Snæfellsnes 17.- 18. júlí
Suðurland 4.- 7. sept.
Prag-Dresden-Berlín 14. - 21.maí
Toskana-Flórens-Elba 30. maí - 6. júní
Alparnir 23. - 30.júní
Í lögum um orlof húsmæðra segir svo:
“Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili
forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á
að sækja um orlof”.
Stjórnin
Nýr leikskóli við Aðalþing í Kópavogi óskar eftir
leikskólakennurum eða öðru starfsfólki sem
hefur brennandi áhuga á skapandi og gefandi
starfi með börnum. Umsóknir sendist á
netfangið sigalda@sigalda.is fyrir 15. mars nk.
Um er að ræða reyklausan vinnustað. Allar
frekari upplýsingar um starfið í leikskólanum er
að finna á www.sigalda.is
Störf
í nýjum
leikskóla
Kjarvalsstofa í París er íbúð með aðgengi að
vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir
íslenska listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkur-
borgar, menntamálaráðuneytisins og Seðlabanka
Íslands og er staðsett í miðborg Parísar, skammt
frá Notre Dame dómkirkjunni.
Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem
ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des
Arts er rekur stofuna og miðast við kostnað af
rekstri hennar. Á árinu 2009 verða þau 350 evrur
á mánuði fyrir einstakling en 445 evrur á mán-
uði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark tveir mánuðir
í senn en vegna fjölda umsókna undanfarin
ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir.
Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité
Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði
og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að þeir nýti
stofuna allan úthlutunartíma sinn.
Auglýst er eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu
tímabilið 1.8.2009 til 31.7.2010. Umsóknareyðu-
blöð má fi nna á www.reykjavik.is/menningog-
ferdamal. Einnig má nálgast umsóknareyðublöð,
ásamt reglum um afnot af Kjarvalsstofu, í upp-
lýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur. Umsóknir
skulu stílaðar á stjórnarnefnd Kjarvalsstofu,
Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar,
Ingólfsnausti, Vesturgötu 1, 101 Reykjavík.
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi miðvikudag-
inn 1. apríl 2009.
Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu
KJARVALSSTOFA Í PARÍS