Fréttablaðið - 28.02.2009, Qupperneq 58
● heimili&hönnun
heimili
● ÓDÝR EN SKEMMTILEG VEGGSKREYTING Auða veggi má
auðveldlega skreyta á ódýran og fallegan hátt. Nældu þér í gamla muni
úr geymslunni, leikfangakassa barnanna, eldhússkúffunum eða úr fjöl-
skyldualbúminu.
Þú getur notað myndir, leikfangadýr, sleifar, playmo-karla eða gamlar
blúndur. Raðaðu hlutunum saman
á smekklegan hátt og festu á vegg-
inn. Með lakkúða er hægt að
lakka hlutina í sama lit, en
oft er fallegast að leyfa
hlutunum bara að
njóta sín eins og
þeir eru.
Þróunin hin síðari ár hefur verið í
þá átt að börn hafa fengið sérher-
bergi jafnvel frá unga aldri. Við
því er að búast að sú þróun snúist
við nú þegar fólk hefur ekki eins
mikil ráð á að stækka við sig hús-
næði eins hratt og það gerði áður.
En hverjir eru kostir og gallar þess
að vera með systkini saman í her-
bergi? Til að svara þeirri spurn-
ingu var leitað til Margrétar Birnu
Þórarinsdóttur sálfræðings.
„Við megum ekki gleyma því að
sú þróun að börn hafi sérherbergi
hefur aðeins verið undanfarna ára-
tugi. Hefðin er kannski frekar sú
þegar litið er til lengri tíma að fólk
búi frekar þétt. Sérstaklega var
það þannig að fólk bjó oft þröngt,
nándin var mikil og þeir sem eru
af eldri kynslóðinni deildu jafn-
vel rúmi með öðrum. Það er ekki
endilega sjálfsagt að fjölskyldu-
meðlimir hafi heilt herbergi út af
fyrir sig,“ segir Margrét Birna og
telur upp kosti þess að deila her-
bergi:
„Það eru margir kostir við það
að systkini deili herbergi. Börn
læra að taka tillit til annarra,
sýna virðingu og umburðarlyndi.
Þau læra ákveðna samningatækni,
þurfa að vera virkari í að finna far-
sælar lausnir og semja. Til dæmis
hvernig eigi að skipta rými, hver
megi ganga í hvað og hvernig eigi
að leika. Svo læra börn örugglega
að passa hlutina sína betur þegar
einhver annar getur komist í þá,“
segir Margrét Birna sem telur
mesta kostinn þó vera þann
að við að deila
herbergi sé lík-
legt að systkini
hafi félagsskap
hvort af öðru og
þá myndist svig-
rúm til þess að
styrkja tengslin
enn frekar.
Margrét segir
að það geti verið
erfitt fyrir stálpuð
börn sem eru vön
því að vera ein í
herbergi að þurfa
að fara að deila
rými. „Það er al-
mennt erfitt fyrir
fólk að gera breyting- ar þegar
það hefur á annað borð vanist ein-
hverju en það er alveg gerlegt. Það
þarf bara að setjast niður og ræða
hlutina. Hvernig þeir eigi að vera
og af hverju, og þá geta börnin
komið með hugmyndir um hvernig
best sé að standa að hlutunum
og hvaða væntingar og þarfir
þau hafa,“ segir Margrét. Hún
telur þó mikilvægt fyrir börn
að eiga eitthvert pláss sem þau
eiga ein þótt þau deili herbergi.
Til dæmis eigin skúffu með
fötum, pláss í hillum og á skrif-
borði.
„Þau þurfa að eiga eigið pláss
sem þau eru viss um að fá að
eiga í friði og að þau viti að rétt-
indi þeirra verði virt,“
segir Margrét Birna
sem sér því fátt nei-
kvætt við að systkini
deili herbergi. - sg
Systkini í sátt og samlyndi
● Þegar systkini deila herbergi læra þau að taka tillit hvort til annars. Þó er nauðsynlegt að
börnin eigi eitthvert pláss sem þau eiga ein og fá að hafa í friði.
Gott getur verið fyrir
systkini að eiga sínar eigin
skúffur. Þessari kommóðu
geta börnin auðveldlega
skipt á milli sín. Hún fæst
í Ikea.
Systkini geta haft gott af því
að deila herbergi. Þau læra að
taka tillit auk þess sem þau
hafa félagsskap af hvort öðru.
N
O
RD
ICPH
O
TO
S/G
ETTY
Flestum kojum má breyta í hvort
sitt rúmið. Hér er hvítlökkuð koja
frá Húsgagnaheimilinu.
28. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR6