Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 59

Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 59
Auglýsingasími – Mest lesið www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40 Rýmum lagerinn fyrir nýrri hjólasendingu P IP A R • S ÍA • 9 02 07 FJÖLÞJÁLFAR frá aðeins kr. 49.900 HLAUPABÖND frá aðeins kr. 149.900 „Sérstaða Saltfélagsins er fag- urt úrval toppklassa hönnunar- vöru eftir fræga hönnuði og vöru- merki sem í sífellu leita nýs hæfi- leikafólks til að hanna fyrir sig það heitasta sem fæst, í bland við sígilda gripi eldri hönnuða,“ segir Dóra Ingunn Vilhjálmsdóttir, inn- anhússarkitekt í Saltfélaginu, sem nú hefur opnað á nýjum stað en í smækkaðri útgáfu í húsnæði Penn- ans í Hallarmúla 4. „Fólk getur enn gert sér glað- an dag og skoðað heimilisvörur í kunnuglegu Saltfélagsumhverfi, en í Hallarmúla höfum við skipt upp sýningarsalnum í heimilisvörur og skrifstofuvörur.“ Að sögn Dóru Ingunnar mun Saltfélagið áfram leggja áherslu á þjónustu með vörur sem áður feng- ust í gamla Saltfélaginu, enda enn í traustu sambandi við öll af sínum gömlu umboðum. „Vitra-vörurnar verða í aðalhlutverki í nýja Saltfé- laginu, enda í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum, og á næstu dögum tökum við upp nýja sendingu með þeirra vinsælustu vörum. Úrvalið verður því áfram það sama, en lag- erinn minni þótt hægt sé um vik að sérpanta vörur að utan, auk þess sem við bjóðum áfram teikniþjón- ustu og allt sem þarf í sambandi við innréttingar frá Polyform/Varenna og Arc Linea,“ segir Dóra Ingunn um eina af vinsælustu hönnunar- búðum landsins, þar sem verðmiði í hærri kantinum velktist ekki fyrir kaupendum í góðærinu. „Við verðum með fjölbreytt úrval ódýrari muna í bland við dýrari mublur, en vonumst, eins og allir Íslendingar, til þess að krónan styrkist á ný svo verðið hjaðni til hins eðlilega aftur. Evran er öllum kaupmönnum dýr í þessu árferði, en vonandi fer élin að stytta upp.“ - þlg Besta fáanlega hönnun í heimi ❁ Saltfélagið stimplaði sig rækilega inn með formfagrar mublur og æðisgengna hönnun fyrir íslensk heimili. Nú hefur það flutt sig um set en í engu slegið úr í metnaði eða lúxus. Hér sést Dóra Ingunn Vilhjálmsdóttir innanhússarkitekt í nýjum húsakynnum Saltfélagsins í Pennanum við Hallar- múla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Porcupine-skrifborð fyrir listelsk börn eftir Hella Jongerius frá 2007. Porcupine þýðir broddgöltur, en eins og sjá má er hægt að stinga litapennum ofan í borðið eins og hárum broddgaltar, og geyma í því pappír og fleira til listsköpunar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Trédúkkurnar Wooden Dolls sem Alex- ander Girard hannaði árið 1963. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Diamond Clock og Watermelon Clock sem George Nelson hannaði 1953-54. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Auglýsendur vinsamlegast hafi ð samband við: Bjarna Þór Sigurðsson - sími: 512-5471 & 822-5062 - bjarnithor@365.is Stjórnarskrá Íslands Afl landsbyggðarinnar Össur Skarphéðinsson: Íslensk fyrirtæki geta ekki keppt í klofstígvélum krónunnar í sprett-hlaupinu á mörkuðum heimsins., að mati iðnaðar- og utanríkisráð-herra. Eina færa leiðin sé Evr-ópuleiðin að upptöku evru sem framtíðar gjaldmiðli. Hann telur að með aukinni fullvinnslu sjávarfangs felist nýir tekjumöguleikar fyrir landsbyggðina í fullum og tollfrjáls-um aðgangi að markaði ESB. Umræða á villistigumGunnar Karlsson: Hefði beint lýðræði forðað Íslandi frá efnahagslegum óförum? Lík-lega ekki, segir Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði. Fulltrúalýð-ræði Vesturlanda er sannarlega ófullkomið segir hann en væri ekki vænlegra ef við reyndum að tala okkur í átt til lausnar innan þess, í stað þess að hafna því fyrir eitthvað sem við vitum lítið hvert kann að leiða? Betra Ísland Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birkir Jón Jónsson og Eygló Harð-ardóttir: Öll rök hníga að því að lækka stýri-vexti, að mati forystu Framsóknar-flokksins, sem reifar nýjar tillögur flokksins í efnahagsmálum. Þau telja forsendur fyrir Íbúðalánasjóð að fella niður 20 prósent skulda og vilja að erlendir kröfuhafar eignist hlut í bönkunum. Stjórnmál verði þó að hætta að snúast um smámuni. EFNI BLAÐSINS MIðvikudagur 25. febrúar 2009 Í einu af grundvallarritum síðari tíma lög-fræði, The Province of Jurisprudence Determined (1832), taldi höfundurinn, John Austin, að stjórnlög væru í raun réttri ekki eiginleg lög, enda væru afleiðingar brots gegn þeim aðeins pólítískar og siðferðileg-ar. Hvað sem segja má um kenningu Austins, varpar hún ljósi á mikilvægt einkenni stjórn-laga: Þeim verður ekki framfylgt og virðing við þau tryggð með sama (einfalda hætti) og almenn lög. Ástæðan er sú að í stjórnlögum er einmitt kveðið á um stofnun og skipan þess samfélagsvalds sem stendur að baki hvers kyns lagareglum samfélagsins og tryggir framkvæmd þeirra. Í þessu felst raunar einn-ig það meginviðfangsefni stjórnlaga að beisla þetta vald og koma í veg fyrir misbeitingu þess. Hollusta við grunngildin En hvað koma okkur við pælingar réttar-heimspekinga um eðli stjórnlaga? Jú, grein-ing fræðimanna á stjórnlögum, svo og (hin tiltölulega stutta) saga ritaðra stjórnarskráa, hnígur öll að sömu niðurstöðu: Orð og texti stjórnarskráa eru til lítils ef ekki er fyrir hendi hollusta við grunngildi stjórnskipun-arinnar, þ.e. stjórnmálasiðmenning þar sem skilningur ríkir á því að hver stofnun þarf að virða sín stjórnskipulegu mörk. Í ljósi glað-beittra yfirlýsinga undanfarið um meinbugi á íslensku stjórnarskránni og að sjálfsagt sé að huga að grundvallarbreytingum, t.d. varð-andi þingræði og hlutverk forsetans, á vett-vangi stjórnlagaþings er óhjákvæmilegt að spyrja hversu hollir Íslendingar hafa verið núgildandi stjórnarskrá. Hugleiðum eftirfar-andi dæmi: Orðalag 26. gr. stjórnarskrárinnar um málskotsrétt forsetans er skýrt og í stjórn- skipulegu samhengi gegnir ákvæðið þýð-ingarmiklu hlutverki við dreifingu valdsins – forsetinn er eina stofnunin sem getur grip-ið (lagalega) inn í lagasetningarferli þings-ins og þannig veitt „ráðherraræðinu“ aðhald. Sömuleiðis fer tilefni ákvæðisins ekki á milli mála (þ.e. afnám konungsveldis og stofnun lýðveldis) og tiltæk lögskýringagögn (athuga-semdir við frumvarp og umræður) styðja ótvírætt orðalagið. Allt þetta kom þó ekki í veg fyrir, þegar reyndi á ákvæðið fyrir alvöru, í svokölluðu fjölmiðlamáli árið 2004, að lá við stjórnskipulegri kreppu vegna rétt-aróvissu um raunveruleg völd forsetans. Þótt þeim, sem vildu valdreifingu og hlut forseta lýðveldisins í stjórnskipuninni sem minnst-an, hafi ekki tekist ætlunarverk sitt, höfðu þeir þó það upp úr krafsinu að flestir telja nú að vafi ríki um túlkun 26. gr. stjórnarskrár, skýra þurfi hlutverk forsetans að þessu leyti eða þá fella það niður. Sú rödd heyrist hins vegar hvergi að sýna mætti ákvæðinu og rökum þess hollustu, m.a. með þeim hætti að setja almenn lög því til skýringar og fram-kvæmdar. Stjórnskipuleg óvissuferð Er það sanngjörn niðurstaða að stjórnarskrá-in hafi brugðist íslensku samfélagi í megin-atriðum og það hljóti að vera óhjákvæmileg-ur þáttur í viðreisn Íslands að byrja hér upp á nýtt? Eða hefur okkur hugsanlega mistek-ist að sýna núgildandi stjórnarskrá nægi-lega hollustu og ræktarsemi? Hér verður því haldið fram að án skilnings og trúnaðar við grunngildi stjórnskipunarinnar sé hætt við að ný stjórnarskrá fögur ásýndar verði létt á metunum og þegar frá líði geti sótt í gamalt far. Yfirvegaðar breytingar á afmörkuðum atriðum stjórnarskrárinnar eru af hinu góða og það eru vissulega atriði í íslenskri stjórn-skipun sem þarf að koma til betri vegar. Öðru máli gegnir um stjórnskipulega óvissuferð á umbrotatímum sem kann að lykta með því Hefur stjórnarskráin brugðist? SKÚLI MAGNÚSSON Lögfræðingur NÝJA ÍSLAND - HVENÆR KEMUR ÞÚ? Hálfköruð háhýsi og átök milli lögreglu og mótmælenda hafa sett svip sinn á Ísland eftir bankahrunið síðasta haust. Á þingi er boðið í nefið. Eldhúsdagur er nýtt vikulegt fylgirit Fréttablaðsins sem leggur áherslu á umræðu og skoðanaskipti um stjórnmál og þjóðmál . Leitast verð-ur við að birta vandaðar og upp-lýsandi greinar um ýmis álitamál. Leitað verður eftir sjónarmiðum valinkunnra einstaklinga auk þess sem senda má gagnorðar greinar á netfangið greinar@frettabladid.is. Afl landsbyggðarinnar Össur Skarphéðinsson: Íslensk fyrirtæki geta ekki keppt í klofstígvélum krónunnar í sprett-hlaupinu á mörkuðum heimsins., að mati iðnaðar- og utanríkisráð-herra. Eina færa leiðin sé Evr-ópuleiðin að upptöku evru sem framtíðar gjaldmiðli. Hann telur að með aukinni fullvinnslu sjávarfangs felist nýir tekjumöguleikar fyrir landsbyggðina í fullum og tollfrjáls-um aðgangi að markaði ESB. Umræða á villistigumGunnar Karlsson: Hefði beint lýðræði forðað Íslandi frá efnahagslegum óförum? Lík-lega ekki, segir Gunnar Karlsson, prófessor í sagnfræði. Fulltrúalýð-ræði Vesturlanda er sannarlega ófullkomið segir hann en væri ekki vænlegra ef við reyndum að tala okkur í átt til lausnar innan þess, í stað þess að hafna því fyrir eitthvað sem við vitum lítið hvert kann að leiða? Betra Ísland Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birkir Jón Jónsson og Eygló Harð-ardóttir: Öll rök hníga að því að lækka stýri-vexti, að mati forystu Framsóknar-flokksins, sem reifar nýjar tillögur flokksins í efnahagsmálum. Þau telja forsendur fyrir Íbúðalánasjóð að fella niður 20 prósent skulda og vilja að erlendir kröfuhafar eignist hlut í bönkunum. Stjórnmál verði þó að hætta að snúast um smámuni. „Eldhúsdagur“ er nýtt vikulegt fylgirit Fréttablaðsins sem leggur áherslu á umræðu og skoðanaskipti um stjórnmál og þjóðmál. Leitast verður við að birta vandaðar og upplýsandi greinar um ýmis álitamál. Leitað verður eftir sjónarmiðum valinkunnra einstaklinga auk þess sem lesendur geta sent inn gagnorðar greinar á netfangið greinar@frettabladid.is LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 2009 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.