Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 60
● heimili&hönnun
Konfetti-ljósakróna úr diskókúlum eftir
sænsku hönnuðina í FRONT.
MYND/BELYSNINGSBOLAGET.SE
Sænski hönnunarhópurinn Front á heiðurinn að þessari ljósakrónu
sem ber heitið Konfetti. Ljósakrónan
er samsett úr mörgum diskókúlum í
mismunandi stærðum sem hengdar
eru á stálsúlu með halogen-perum
sem varpa daufri birtu.
Krónan er hluti af Found-línu Front
þar sem hugmyndin er að nota til-
búna hluti og setja þá saman í nýju
samhengi og eru þá upphafleg kar-
aktereinkenni hlutanna látin ráða ferð-
inni í nýju samsetningunni. Í umsögn
sinni um hlutinn segja hönnuðirn-
ir sjálfir að skilja þurfi að samhengi er
milli hluta og hönnun sé alltaf undir
áhrifum og byggist á hlutum og hug-
myndum sem þegar eru til.
Ljósakrónan er um 70 sentimetr-
ar í þvermál og 90 sentimetrar á hæð
og sómir sér vel í hvaða salarkynnum
sem er. - rat
Diskókúlan
endurvakin
Hátölurunum er komið fyrir inni í veggj-
um þannig að þeir sjást ekki en gefa frá
sér góðan hljóm. MYND/NÝHERJI
Fyrirtækið Sense, sem er í eigu Nýherja, hefur til sölu einstaka
hátalara frá AmbienTech sem komið
er fyrir inni í veggjum þannig að þeir
sjást ekki og falla inn í umhverfi sitt.
Hátalararnir henta vel þar sem
pláss er af skornum skammti eða til að
halda í stílhreint umhverfi. Þeir henta
hvort sem er í fyrirtækjum, á matsölu-
stöðum eða heimilum. Hátalararnir
sóma sér vel í stofunni eða jafnvel inni
á baðherbergi, allt eftir óskum hvers
og eins. Enginn verður þeirra var fyrr
en tónlistin tekur að óma. Ambien-
Tech-hátalararnir búa yfir djúpum og
tærum tóni og geta náð 180 gráðu
dreifingu á hljóði. Sense annast ráð-
gjöf um uppsetningu og rétta stað-
setningu á hátölurunum. - hs
Ósýnilegir
hátalarar
PRAKTÍSK HÖNNUN SEM VEKUR KÁTÍNU Japanski hönnuðurinn Makoto Tojiki
leggur mikið upp úr stílhreinni hönnun líkt og samlandar hans eiga til. Newton-borðið,
sem hann framleiðir í tveimur stærðum, ber þess glöggt merki.
Með hönnun sinni leitast Tojiki við að kalla fram bros af vörum fólks og brjóta upp fyrir-
fram ákveðnar hugmyndir þess um hversdagslega hluti. Dældin í miðju Newton-borðinu
ber þess vitni. Hún hentar vel undir ávexti, nammi eða skraut og vekur kátínu og undrun.
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
1
8
7
GERÐU GÓÐ KAUP
Notað og Nýtt > Mörkinni 1 > sími: 517 2030
Suðurlandsbraut
Sk
eið
av
og
ur
Miklabraut
Gnoðavogur
Mörkinni 1
>
Opnunartími:
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Sunnudaga 13-16
Tökum á móti vörum utan opnunartíma,
upplýsingar í síma 517-2030
>
> Húsgögn, húsbúnaður, skrifstofuhúsgögn, lampar, ljós
fatnaður, skór, töskur og fleira á frábæru verði.
Komdu og skoðaðu úrvalið!
ENN
LÆG
RA V
ERÐ
Á VÖ
LDU
M VÖ
RUM
8 28. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR