Fréttablaðið - 28.02.2009, Side 74

Fréttablaðið - 28.02.2009, Side 74
46 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Eftir að þvottadrengurinn stal sen-unni á bóndadaginn með framúrskar-andi eldamennsku og uppvaski á eftir, kveið ég konudeginum. Var hrædd um að ég yrði krafin um kvöldverð en það er alls ekki mín sterka hlið. Kvíði minn reyndist þó óþarfur þegar dagurinn rann upp því þvottadrengurinn stóð sína plikt. Hefur sjálfsagt ekki viljað hleypa mér í eldhúsið hvort sem var. Hann þekkir þennan hæfi- leikaskort minn og hefur ekki viljað hætta á hlaupsoðið spagettí í matinn. Þegar fólk er farið að þekkja hvort annað þetta vel hlýtur það að þýða að sam- bandið sé komið í sæmilegar skorður. Ef þú veist hvað gleður makann mest, hver uppáhaldsmat- urinn hans er og hvar takmark- anir hans liggja ætti ástandið að vera sæmilegt á heimilinu. Gott er að læra strax við hverju þarf ekki að búast þegar kemur að rómantískum málum. Drengurinn veit að ég kann ekki að elda og sjálf hætti ég fyrir mörgum árum að búast við því að hann gæfi mér klassískar konu- dagsgjafir eins og nærföt. Eins hefur hann ekki lagt í vana sinn að gefa mér blóm því í hjarta sínu er hann hálfgerður nirfill og finnst illa farið með þá aura sem fara í afskorin blóm og blúndur. En þegar ég hélt að ég vissi hvar ég hefði drenginn brá hann út af vananum. Á konudaginn góða kom hann mér nefnilega á óvart með því að færa mér búnt af appelsínugulum túlípön- um. Og eins og það væri ekki nóg dró hann líka upp pakka sem innihélt þessar fínu naríur. En það má samt sjálfsagt líta á það sem merki um þann þroska sem hjónaband okkar hefur náð, að nærhöldin voru úr þéttri bómull og náðu mér upp að nafla. Blóm en engar blúndur á konudag NOKKUR ORÐ Ragnheiður Tryggvadóttir Mjög skrýtið, lögfræðingar eru venjulega ekki með svona... Við verðum að gæta okkur á fótgangandi Elsa! Þeir eru í sífelldri hættu! Hættu og ekki hættu! Sérðu hvað hann gerði við framrúðuna! Má ég fá gemsa? Má ég fá gemsa? Má ég fá gemsa? Nei. Nei Nei Það er ágætt að líta svona á þetta: Þið hafið ekki talað svona mikið saman í nokkrar vikur. Síma? Síma? Síma? Má ég fá gemsa? Má ég fá gemsa? Má ég fá gemsa? Nei. Nei Nei Hey, komið hingað inn! Ha? Borð fyrir fimm, einn háan stól, tvo barnamatseðla og plastsmekk. Fannst þér þetta fyndið? Ertu að grínast? Sástu svipinn á yfir- þjóninum?? Litli ljósrauði sokkur Litli ljósrauði sokkur Hurðu, þetta eru einkatónleikar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.