Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 74
46 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Eftir að þvottadrengurinn stal sen-unni á bóndadaginn með framúrskar-andi eldamennsku og uppvaski á eftir,
kveið ég konudeginum. Var hrædd um að
ég yrði krafin um kvöldverð en það er alls
ekki mín sterka hlið. Kvíði minn reyndist
þó óþarfur þegar dagurinn rann upp því
þvottadrengurinn stóð sína plikt. Hefur
sjálfsagt ekki viljað hleypa mér í eldhúsið
hvort sem var. Hann þekkir þennan hæfi-
leikaskort minn og hefur ekki viljað hætta
á hlaupsoðið spagettí í matinn. Þegar fólk
er farið að þekkja hvort annað þetta
vel hlýtur það að þýða að sam-
bandið sé komið í sæmilegar
skorður. Ef þú veist hvað gleður
makann mest, hver uppáhaldsmat-
urinn hans er og hvar takmark-
anir hans liggja ætti ástandið að
vera sæmilegt á heimilinu. Gott er
að læra strax við hverju þarf ekki að búast
þegar kemur að rómantískum málum.
Drengurinn veit að ég kann ekki að elda og
sjálf hætti ég fyrir mörgum árum að búast
við því að hann gæfi mér klassískar konu-
dagsgjafir eins og nærföt. Eins hefur hann
ekki lagt í vana sinn að gefa mér blóm því
í hjarta sínu er hann hálfgerður nirfill
og finnst illa farið með þá aura sem fara
í afskorin blóm og blúndur. En þegar ég
hélt að ég vissi hvar ég hefði drenginn brá
hann út af vananum. Á konudaginn góða
kom hann mér nefnilega á óvart með því að
færa mér búnt af appelsínugulum túlípön-
um. Og eins og það væri ekki nóg dró hann
líka upp pakka sem innihélt þessar fínu
naríur. En það má samt sjálfsagt líta á það
sem merki um þann þroska sem hjónaband
okkar hefur náð, að nærhöldin voru úr
þéttri bómull og náðu mér upp að nafla.
Blóm en engar blúndur á konudag
NOKKUR ORÐ
Ragnheiður
Tryggvadóttir
Mjög skrýtið,
lögfræðingar
eru venjulega
ekki með
svona...
Við verðum að gæta
okkur á fótgangandi Elsa!
Þeir eru í sífelldri hættu!
Hættu og ekki
hættu!
Sérðu hvað hann
gerði við framrúðuna!
Má ég fá
gemsa?
Má ég fá
gemsa?
Má ég fá
gemsa?
Nei.
Nei
Nei
Það er ágætt að
líta svona á þetta:
Þið hafið ekki
talað svona mikið
saman í nokkrar
vikur.
Síma?
Síma?
Síma?
Má ég fá
gemsa?
Má ég fá
gemsa?
Má ég fá
gemsa?
Nei.
Nei
Nei
Hey, komið
hingað inn! Ha?
Borð fyrir fimm, einn háan stól,
tvo barnamatseðla og
plastsmekk.
Fannst þér þetta
fyndið? Ertu að grínast? Sástu
svipinn á yfir-
þjóninum??
Litli ljósrauði sokkur
Litli ljósrauði sokkur
Hurðu, þetta eru
einkatónleikar.