Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 80

Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 80
52 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Það er engin furða að tískuheimurinn hafi það orðspor á sér að vera yfirborðs- og froðukenndur. Í fjölmiðlum sjáum við þetta iðulega, sér- staklega þegar við fáum að kíkja baksviðs á tískuvikurnar og sjáum fólk kyssa andrúmsloftið á báðar kinnar og æpa „Dahling“ „Dahling“ alveg eins og hinar snilldarlegu Edie og Patsy í Absolutely Fabulous. Þessir bresku sjónvarpsþættir náðu reyndar ýmsu réttu um tísku- bransann. Önnur vinkvennanna, Patsy, var í sífelldum vandræðum með auka- kílóin, hafði fylgt öllum tískubylgjum frá jóga og hassreykingum upp í harem-buxur og hárbönd með misgóðum árangri. Edie á hinn bóginn var keðjureykjandi, vodkastaupandi, kampavínsdrekkandi sorakjaft- ur sem hafði náð einhverjum frama með því að sofa hjá hinni og þess- ari rokkstjörnunni. Hver getur gleymt setningum eins og „Ef stutt pils verða styttri í ár þá verður heimurinn að kvensjúkdómalækninum þínum“. Það var erfitt að ímynda sér að það væri í raun og veru til fólk sem hafði ekkert annað að tala um heldur en nýjustu tísku og hversu stór- kostlega viðmælandinn liti út. En auðvitað er þetta til. Sumir gera ekki annað en henda myndum af sér inn á Facebook eða Myspace til þess eins að fá „komment“ eins og „Þú ert guðdómleg/ur“ „Þetta er stór- fenglegur kjóll“ eða „Guð minn góður, babycakes babydoll þú ert svo sssssjúklega bjútifúl ást og kossar“. Svo er þetta fólk svo … tja … hvað á maður að segja … undarlegt. Þegar ég var sextán ára fór ég á mína fyrstu „haute couture“-tísku- sýningu í París og laumaðist þar um á öftustu bekkjum meðan furðu- legt lið í skærlituðum fötum strunsaði um með stóra hatta eða sólgler- augu og talaði ofboðslega hátt. Ég varð eiginlega jafn skelkuð og ég hafði gaman af öllum látunum. Ég verð enn skelkuð ef ég lendi í hópi fólks sem klæðir sig í alla liti regnbogans og talar ofsalega hátt um föt. Ég fer alltaf að velta fyrir mér hvort það hafi virkilega ekki áhuga á neinu öðru en sjálfu sér og fötunum sem það gengur í. En þetta er víst það sem getur líka verið svo heillandi við tískubransann, þessi skraut- legi og skrýtni sirkus af sérvitru fólki sem lítur á sjálft sig sem lista- verk. Dahling, dahling! hvítan augnblýant frá Lancôme, sem gerir augun stærri og fallegri. Dásamlegan fjaðrakraga frá Einveru, Laugavegi sem poppar upp hvaða flík sem er. Fallega drapp- lita peysu með svartri slaufu frá Einveru, Laugavegi. OKKUR LANGAR Í … > TONN AF FÖTUM Leikhópurinn „Ég og vinir mínir“ er að safna tonni af fötum fyrir leiksýninguna Húmanímal í Hafnar- fjarðarleikhúsinu. Hópurinn hvetur fólk til þess að gefa gömlu fötunum sínum nýtt líf sem búningum eða leikmynd. Tekið verður á móti fötum í Hagaskóla og Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 28. febrúar frá 12-16. Tískuvikunni í London var að ljúka en sú í Mílanó er að hefjast. Gotnesk áhrif, svört og drungaleg, þóttu einkenna hönnun margra en breski frumleikinn þótti athyglisverður að vanda. Sýning- arnar sem vöktu mesta athygli voru hjá nýliðunum Louise Goldin og Josh Goot en einnig sló lína Christopher Kane rækilega í gegn. Hér gefur að líta nokkra hápunkta vikunnar. - amb GOTNESK ÁHRIF ÁFRAM RÁÐANDI HJÁ BRESKUM HÖNNUÐUM: Svart, hvítt og þröngt GRÍMUBALL Hárkolla og gríma til sýnis hjá Charlie Le Mindu. STUTT Grátt dress frá Osman Yousefzada. GRINDIN ÚTI Poppara- dóttirin Pixie Geldof á æfingu fyrir sýningu Luella í London. LEÐUR Hörku- legur kynþokki hjá Jasper Conran. EINFALT Frá sýningu athyglisverðs nýliða Josh Goot. KVENLEGT Frá sýningu á kvenfötum Paul Smith. SVART SKAL ÞAÐ VERA Sýning Louise Goldin vakti mikla athygli. Hjá FORTIS starfar samhentur hópur lögfræðinga með víðtæka reynslu af lögmannsstörfum. Við leitumst við að veita persónulega og alhliða þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar og sérhæfum okkur í skaðabótamálum vegna umferðar- og vinnuslysa, skilnaðar- og sambúðarslitamálum svo fátt eitt sé nefnt. Höfum áratuga reynslu af uppgjöri slysabóta. Átt þú rétt á bótum eftir slys? Gylfi Thorlacius hrl. Svala Thorlacius hrl. S. Sif Thorlacius hdl. Kristján B. Thorlacius hdl. Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl. www.fortis.is K R A FTA V ER K Laugavegi 7 • 101 Reykjavík • Sími: 520 5800 • fortis@fortis.is Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum þér að kostnaðarlausu!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.