Fréttablaðið - 28.02.2009, Page 82
54 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Hvað er að frétta? Er á fullu að æfa leik-
sýninguna Húmanímal. Við verðum með
fatasöfnun í dag, laugardag, milli 12 og 16
í Hafnarfjarðarleikhúsinu og Hagaskóla. Við
þurfum nefnilega tonn af fötum í leikmynd-
ina okkar.
Augnlitur: Blár.
Starf: Leikkona.
Fjölskylduhagir: Er lofuð og á eins árs
dóttur.
Hvaðan ertu? Vesturbænum.
Ertu hjátrúarfull? Njáei … stundum.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Dexter.
Uppáhaldsmaturinn: Avókadó og sætar
kartöflur, ekki saman samt.
Fallegasti staðurinn: Rauðisandur á Vest-
fjörðum, vá!
iPod eða geislaspilari: Bara útvarpið.
Hvað er skemmtilegast? Að leika, bæði
við dótturina og á sviðinu.
Hvað er leiðinlegast? Að hangsa
og bíða.
Helsti veikleiki: Óþolinmæði.
Helsti kostur: Lífsgleðin.
Helsta afrek: Fyrir utan fæð-
ingu frumburðarins er það mjög
minnisstætt þegar ég komst fyrst
í splitt.
Mestu vonbrigðin? Spillingin sem
hefur verið í gangi undanfarin ár
á Íslandi.
Hver er draumurinn? Að
Húmanímal verði skemmtileg-
asta sýning í heimi.
Hver er fyndnastur/
fyndnust? Frikki Frikk,
ekki spurning.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér? Leti og
neikvæðni.
Hvað er mikilvægast?
Að gleðja aðra, þá
verður maður sjálfur
glaður.
HIN HLIÐIN ÁLFRÚN HELGA ÖRNÓLFSDÓTTIR LEIKKONA
Lífsglöð og þolir ekki leti og neikvæðni
23. 03.
1981
HAFA FENGIÐ NÓG AF SLÚÐRI OG SKEMMDARVERKUM Þorsteinn Stephensen og félagar í Hr. Örlygi hafa sent frá sér yfirlýsingu
vegna ummæla blaðamannsins Bens Murray. Þar segir að ástæðulaust sé að óttast um framtíð Iceland Airwaves.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Þorsteinn Stephensen og
starfsmenn Hr. Örlygs
segjast þreyttir á slúðri og
skemmdarverkastarfsemi
um Airwaves-hátíðina.
Starfsmenn Hr. Örlygs, sem skipu-
leggur Iceland Airwaves-hátíðina,
hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna
viðtals við enska blaðamanninn
Ben Murray sem birtist í Frétta-
blaðinu í gær. Þar sagði hann að
Hr. Örlygur skuldaði sér peninga
og að hann óttaðist um framtíð
hátíðarinnar.
Í yfirlýsingunni kemur fram að
Ben sé nýjasti liðsmaður í þröng-
um hópi sem hafi tjáð ást sína
opinberlega á íslenskri tónlist og
Airwaves-hátíðinni en vinni síðan
skipulega gegn hagsmunum hátíð-
arinnar og þeirra sem að henni
standa.
„Ben Murray talar fjálglega um
starf sitt fyrir Iceland Airwaves
en staðreyndin er sú að umræddur
Ben hefur aldrei unnið við Iceland
Airwaves. Ben Murray var ráðinn
til að sinna ákveðnum og mjög tak-
mörkuðum verkefnum fyrir Hr.
Örlyg í tengslum við London Air-
waves, sem fram fór í London hinn
18. september síðastliðinn. Hátíð-
in í London gekk afburðavel en
því miður náðu endar ekki saman
þar sem styrktaraðilar gengu úr
skaftinu á síðustu stundu. Af þeim
sökum eru enn ógreiddir reikning-
ar; einn þeirra var frá Ben Murray.
Hann hljóðaði upp á 900 pund og
hefur verið greiddur,“ segir í yfir-
lýsingunni frá Hr. Örlygi. „Ben,
eins og fleiri, segist óttast að Air-
waves-hátíðin verði ekki hald-
in í ár. Sá ótti er, rétt eins og ótti
sama fólks um að Airwaves 2008
yrði ekki haldin, sennilega frekar
óskhyggja og algjörlega óþarfur.
Að öðru leyti óska aðstandendur
Hr. Örlygs og Iceland Airwa-
ves eftir að fá frið fyrir slúðri og
skemmdarverkastarfsemi svo við
getum gert það sem við höfum allt-
af gert, látið verkin tala.“
Undir þetta rita Árni Einar Birg-
isson, Egill Tómasson, Inga Dóra
Jóhannsdóttir, Kerstin Ganzemull-
er, Róbert Aron Magnússon, Sara
María Júlíudóttir og Þorsteinn
Stephensen.
freyr@frettabladid.is
Iceland Airwaves-fólk vill
frið fyrir skemmdarverkum
> NÝTUR STUÐNINGS
Leikkonan Gwyneth Paltrow segir
vandamál sín vera smávægi-
leg í samanburði við það sem
Madonna hefur gengið í gegn-
um og dáist að því hvernig
hún hefur sigrast á erfiðleik-
um sínum. Hún segir Mad-
onnu vera mjög áhugaverða
og hlýja persónu sem hafi
þurft að sæta mikilli gagnrýni
en sé langt frá því að vera
eins og fólk haldi.
Samuel L. Jackson hefur sam-
þykkt að leika Nick Fury í hasar-
myndinni Iron Man 2 og hugsan-
lega átta öðrum myndum fyrir
framleiðandann Marvel. Á meðal
þeirra eru Captain America,
Thor, The Avengers, The Shield
og mögulegar framhaldsmyndir
þeirra.
Jackson kynnti Fury til sög-
unnar í lok Iron Man þegar hann
bað Tony Stark um að ganga til
liðs við njósnadeild sína The Shi-
eld. Jackson átti í launadeilum
við Marvel og neitaði að leika
Fury nema hann fengi eitthvað
fyrir sinn snúð og nú hefur sam-
komulag loks náðst. Iron Man 2
er væntanleg í bíó sumarið 2010 í
leikstjórn Jons Favreau.
Leikur Fury í
Iron Man 2
Kate Winslet hefur valið heldur
óvenjulegan stað á heimili sínu
fyrir Óskars-
verðlaun sín,
en hún ætlar að
geyma styttuna
sína inni á klós-
etti. Í viðtali við
breska dagblaðið
Daily Mail segist
leikkonan, sem
er gift Óskars-
verðlaunaleik-
stjóranum Sam
Mendes, ætla
að stilla sinni
styttu upp við
hlið styttu eig-
inmannsins inni
á klósetti því
hún vill ekki að
verðlaunin hafi
áhrif á vinnu
sína. Jafnframt
segist hún vona
að verðlaunin
breyti ekki sam-
starfi sínu við
aðra leikstjóra
og leikara.
Winslet, sem
er tveggja barna
móðir, viður-
kennir að hún
sé komin með nóg af fínum verð-
launahátíðum og síðkjólum í bili
og segist vera að skipuleggja
sumarfrí fjarri Hollywood.
Geymir
Óskarinn á
klósettinu
ÓBREYTT EFTIR
ÓSKARINN Kate
Winslet vonar að
Óskarsverðlaunin
sem hún hlaut
fyrir leik sinni í
myndinni The
Reader breyti ekki
samstarfi sínu við
aðra leikara og
leikstjóra.
Söngkonan Lay Low hitar upp
fyrir Emilíönu Torrini á þrenn-
um tónleikum í Bandaríkjunum
í lok mars.
Fyrstu tón-
leikarnir
verða í New
York 28.
mars, þeir
næstu í San
Francisco
kvöldið eftir
og þeir síð-
ustu í Los
Angeles 30.
mars.
Tónleika-
ferð þeirra
saman um
Evrópu,
sem lauk
á dögun-
um, gekk
mjög vel og
í framhaldinu af því bauð Emil-
íana Lay Low að hita upp fyrir
sig á fyrstu tónleikunum sínum
í Bandaríkjunum í tengslum við
útgáfu plötunnar Me and Arm-
ini. Áður en að þessum tónleikum
kemur munu þær stöllur spila í
London 13. mars og er þegar upp-
selt á giggið.
Hitar upp
vestanhafs
LAY LOW Söngkonan
Lay Low hitar upp
fyrir Emilíönu Torrini í
Bandaríkjunum í lok
mars.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL
Hemmi Gunn verður á Aldrei
fór ég suður hátíðinni á Ísafirði
um páskana eins og Fréttablaðið
greindi frá á dögunum. Samtals
verða um 20-30 atriði á hátíð-
inni og nokkur nöfn hafa nú bæst
við prógrammið. Þetta eru Dr.
Spock, Agent Fresco, Sin Fang
Bous og hljómsveitin múm, sem
leggur nú lokahönd á nýja plötu.
Einnig spila mörg frambærileg
heimabönd á hátíðinni eins og
vanalega, til að mynda Reykja-
vík!, Stórsveit Vestfjarða, Skúli
Þórðarson og Sökudólgarnir og
Klikkhausarnir.
Aldrei múm
VIÐ FÆRÐUM OKKUR TIL
Edda Brynja Nanna
Við stöllurnar höfum fært okkur frá Rauðhettu og úlfinum yfir á hárgreiðslustofuna
Kompaníið. Kompaníið er staðsett í Turninum í Kópavogi, Smáratorgi 3, 2. hæð. Við
hlökkum til að taka á móti nýjum sem gömlum viðskiptavinum á nýjum stað. Pantanir í
síma 588 9911 eða á www.kompaniid.is. Kveðja Edda, Brynja og Nanna.