Fréttablaðið - 28.02.2009, Blaðsíða 84
56 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
„Það má setja sokk í þá
sem halda að Den Störe
kunni ekki póker,“ segir
Egill Einarsson, einka-
þjálfari og fyrirliði
íslenska landsliðsins í
póker.
Egill, sem kallar sig
Den Störe, þykist nú
heldur betur geta stung-
ið upp í alla þá sem hafa
haft efasemdir uppi um
getu hans í póker. Und-
anfarna þrjá mánuði
hefur staðið yfir móta-
röð í póker sem heitir
ÍSOP, Icelandic Series
Of Poker, sem er eitt
helsta mót sem haldið
er í íþróttinni. „Spilað á
hverjum fimmtudegi upp
á stig og níu stigahæstu
mennirnir mætast á loka-
borði þar sem spilað er
upp á 610 þúsund krón-
ur. Den Störe er kominn
á lokaborðið þrátt fyrir
að hafa einungis spilað 4
mót af 12. Sem er magn-
aður árangur,“ segir Den
Störe. Og talar um sjálf-
an sig í 3. persónu eins og
Davíð Oddsson. Og held-
ur áfram: „Í þessu móti
mætast bestu pókerspil-
arar landsins. Lokaborð-
ið verður spilað næst-
komandi fimmtudag á
hinum glæsilega Póker-
klúbb.“ - jbg
Störe í úrslit á stóru pókermóti
Löngu fyrir Eurovision voru
danslagakeppnir helsti vettvang-
ur nýrra íslenskra dægurlaga.
Sígild lög eins og „Nú liggur vel á
mér“ og „Laus og liðugur“ fædd-
ust í svona keppnum. Rás 2 vitn-
ar nú í þessar keppnir fortíðar
og hefur blásið til „Bjartsýnis-
söngvakeppni hins nýja lýðveldis
– sönglagakeppni fólksins“. Lagið
verður að „fylla okkur baráttu-
vilja til að takast á við framtíð-
ina“, eins og það er orðað. Lögin
streyma nú inn og meðal þeirra
sem taka þátt eru Halli Reynis
og hljómsveitirnar South River
Band, Árstíðir, Múgsefjun og
Ljótu hálfvitarnir.
Bjartsýni og
baráttuvilji
LJÓTU HÁLFVITARNIR Nógu bjartsýnir
fyrir Rás 2.
Síðasta myndin í Harry Potter-
seríunni, Harry Potter and the
Deathly Hallows: Part II, kemur í
bíó sumarið 2011. Ákveðið var að
gera tvær kvikmyndir upp úr sjö-
undu og síðustu Potter-bókinni og
kemur sú fyrri út 19. nóvember á
næsta ári.
Næsta Harry Potter-mynd er
aftur á móti væntanleg í sumar
en í ágúst í fyrra var ákveðið að
fresta henni um átta mánuði til að
tryggja að framleiðandinn Warn-
er Bros fengi öruggan sumar-
smell. Einnig hafði verkfall hand-
ritshöfunda í Hollywood í fyrra
áhrif á ákvörðunina.
Fyrstu fimm Potter-
myndirnar hafa
aflað gríðarlegra
tekna og eru nú
orðnar tekjuhærri
en James Bond- og
Star Wars-mynd-
irnar.
Lokamyndin
í bíó 2011
HARRY POTTER
Síðasta
myndin
í Harry
Potter-
seríunni
kemur
í bíó
sumarið
2011.
Mischa Barton segist ekki vilja stunda einnar
nætur gaman. Í viðtali við breska tímaritið
FHM sagðist leikkonan aðeins stunda kynlíf
þegar hún er í föstu sambandi.
Mischa, sem hefur sést með Luke Pritchard,
söngvara Kooks, upp á síðkastið, segist vera á
lausu. Hún segist laðast að mönnum sem eru
sjálfsöruggir og komi sér til að hlæja, en seg-
ist finna fyrir því að karlmenn séu stundum
hræddir við sig því hún sé búin að vera mikið í
sviðsljósinu. Leikkonan segist oft eiga í erfið-
leikum með að eignast góðar vinkonur og kjósi
frekar að vera með karlmönnum því það sé
ekki eins flókið.
Ekkert kynlíf utan
sambanda hjá Barton
Á LAUSU? Mischa Barton hefur sést með Luke Pritchard,
söngvara Kooks, upp á síðkastið, en segist vera á lausu.
THE SIMPSONS Vinsældum Simpsons-fjölskyldunnar virðist aldrei ætla að linna.
Staðfest hefur verið að The
Simpsons verði langlífasta sjón-
varpsþáttaröðin frá upphafi í
Bandaríkjunum því framleið-
andinn Fox hefur ákveðið að
gera tvær nýjar þáttaraðir.
Tuttugasta þáttaröð af Simp-
sons er sýnd um þessar mund-
ir og jafnar það met þáttanna
Gunsmoke sem luku göngu
sinni árið 1975. 21. þáttaröðin af
Simpsons hefst í haust og sú 22.
verður sýnd á næsta ári. Fyrsti
Simpsons-þátturinn var sýnd-
ur vestanhafs í desember árið
1989. Með tveimur nýju þátta-
röðunum, sem samanstanda
af 44 þáttum, verða Simpsons-
þættirnir orðnir 493 talsins
þegar þeim lýkur.
Simpsons langlíf-
asta þáttaröðin
Hljómsveitin U2 hefur
vísað á bug gagnrýni um
að hún notfæri sér erlend
skattaskjól til að komast hjá
því að borga háan skatt í
heimalandi sínu, Írlandi.
Umræðan kemur upp á slæmum
tíma fyrir hljómsveitina því hún er
um þessar mundir að gefa út nýja
plötu, No Line on the Horizon. Sam-
tökin The Dept and Development
Coalition, sem berjast fyrir réttind-
um þriðja heims ríkja, stóðu fyrir
mótmælum fyrir utan fjármálaráðu-
neyti Írlands fyrir skömmu þar sem
þau gagnrýndu U2 fyrir að borga
skatta sína í Hollandi. Sögðu sam-
tökin að meðlimir U2 væru hræsn-
arar því með þessu fengi írska ríkið
minni peninga til að aðstoða fólk í
fjárhagskröggum og fátæk erlend
ríki, en söngvarinn Bono hefur ein-
mitt verið í herferð gegn fátækt í
gegnum tíðina. Paul McGuinness,
umboðsmaður U2, vísar þessu á
bug og segir alla meðlimi sveitar-
innar vera fjárfesta og starfsmenn á
Írlandi. Hann segir sveitina hvergi
brjóta írsk skattalög. „U2 er alþjóð-
legt fyrirtæki og það borgar skatta
sína á alþjóðlegan máta,“ sagði
McGuinness. „Að minnsta kosti
95% af viðskiptum U2, þar á meðal
plötu- og miðasala vegna tónleika,
fer fram utan Írlands og þess vegna
borgar hljómsveitin mismunandi
skatta víðs vegar um heiminn. Með-
limir hennar eru áfram með bæki-
stöðvar sínar á Írlandi og eru þar
fjárfestar og starfsmenn.“
U2 flutti útgáfustarfsemi sína til
Hollands árið 2006 þar sem skatta-
umhverfið er þeim hagstæðara.
„Það er ekkert ólöglegt við það að
nýta sér skattalög sem hentuðu
þeim betur. En vitandi það að Bono
hefur eytt miklum tíma í að berj-
ast gegn fátækt þá sjáum við alveg
mótsögnina í þessu,“ sagði McGu-
inness.
Nessa Ni Chasaide hjá The Dept
and Development Coalition segir að
samtökin hafi viljað vekja athygli
á því að Bono berjist gegn fátækt
og óréttlæti á meðan hljómsveitin
hans hafi fært hluta af viðskipt-
um sínum í skattaskjól í Hollandi.
„Þegar menn komast hjá skatti eða
notfæra sér glufur í skattalögunum
verða þróunarríkin af að minnsta
kosti 18,2 milljörðum króna á
hverju ári. Þessi peningur er nauð-
synlegur til að fólk geti brotist út
úr fátækt sinni,“ sagði hún. „U2 er
bara hluti af vandamálinu. Þetta
er miklu stærra og kerfisbundnara
vandamál sem er til staðar í okkar
alþjóðlega fjármálakerfi. Öll fyrir-
tæki og einstaklingar eiga að bera
þá ábyrgð að borga rétta upphæð
í skatt.“
U2 borgar skatt í Hollandi
U2 Rokkararnir í U2 hafa verið gagnrýndir fyrir að borga hluta af sköttum sínum í
Hollandi í stað Írlands. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
ENGINN AUKVISI Í PÓKERNUM Den Störe er kominn á loka-
borðið sem hann segir magnaðan árangur í ljósi aðstæðna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR