Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 88
60 28. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Bikarmeistarar Vals
og 1. deildarlið Gróttu mætast í
úrslitum Eimskipsbikarsins í dag.
Grótta er að koma með karlalið sitt
í fyrsta sinn í bikarúrslitin.
„Það er gríðarleg stemning
fyrir þessum leik á Nesinu og ég
geri ráð fyrir að fjöldi fólks muni
fylgja okkur. Það hefur verið mikil
vakning í handboltanum út á Nesi
í vetur. Vel mætt á leiki og mikil
stígandi. Við erum að byggja upp
lið á heimamönnum og fólk er að
koma til þess að sjá strákana sína,“
sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálf-
ari Gróttuliðsins.
Ágúst Þór er ekki ókunnugur í
herbúðum Vals. Hann var aðstoð-
arþjálfari karlaliðsins er Geir
Sveinsson stýrði því og þjálfaði svo
kvennalið félagsins. Hann gerði
þær einmitt að bikarmeisturum
og getur orðið aðeins annar þjálf-
arinn í dag til þess að vinna bikar-
meistaratitil með bæði körlum og
konum. Sá eini sem það hefur gert
er Viðar Símonarson.
„Við Óskar Bjarni erum góðir
vinir. Auðvitað þekki ég hann og
það hjálpar mér en á móti kemur
að hann þekkir mig líka. Það ætti
því ekki að vera neitt óvænt í
þessu,“ sagði Ágúst Þór en sigur
Stjörnunnar á KR í körfunni hvet-
ur hans drengi til dáða. „Það sýnir
okkur klárlega að við eigum mögu-
leika. Það er allt hægt í svona bik-
arúrslitaleikjum og við munum að
sjálfsögðu leika til sigurs,“ sagði
Ágúst ákveðinn.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari
Vals, segir verkefnið að mæta liði
eins og Gróttu vera mjög áhuga-
vert og talsvert frábrugðið því
sem hann á að venjast.
„Það er allt öðruvísi að mæta
Gróttu en til að mynda Hauk-
um. Við höfum varla séð þá spila
í vetur og leikmenn mínir þekkja
ekki einu sinni alla leikmennina
hjá þeim,“ sagði Óskar Bjarni sem
nýtur þessarar nýju áskorunar.
„Það er í raun auðveldara á
margan hátt að undirbúa liðið
núna. Í fyrra var bara talað um
baráttuna um borgina en nú snýst
umræðan um vanmat,“ sagði Óskar
Bjarni og segir að bikarleikurinn í
körfunni hafi þar skipt máli.
„Sá leikur gaf þeim von um að
það sé hægt að vinna en ekki endi-
lega bara spila góðan leik. Hann
vakti kannski okkur líka. Það verð-
ur líka gaman að mæta Gústa vini
mínum sem er klókur og sókndjarf-
ur þjálfari. Hans lið spilar agaðan
varnarleik og skipulagðan sókn-
arleik þar sem menn þekkja sína
styrkleika. Svo kemur líka alltaf
eitthvað óvænt frá honum.“
Valslið Óskars Bjarna getur
orðið það fyrsta í sögu Vals til
þess að vinna bikarinn tvö ár í röð
og Óskar segir það hvetja menn
áfram. Óskar segir líka að þolin-
mæði verði nauðsynleg í leiknum.
„Við megum ekki verða pirraðir
heldur vera þolinmóðir þó svo það
gangi kannski ekki allt að óskum
í upphafi. Vera tilbúnir að vinna
okkur út úr erfiðri stöðu því það
getur allt gerst í bikarleikjum,“
sagði Óskar Bjarni.
henry@frettabladid.is
Verður annað bikarævintýri í dag?
Ævintýrin gerast í Höllinni líkt og sást í bikarúrslitum körfuboltans á dögunum. Í dag fer fram annar
úrslitaleikur sem einnig mætti stilla upp sem Davíð á móti Golíat. Þá mætast 1. deildarlið Gróttu og núver-
andi bikarmeistarar Vals í úrslitum Eimskipsbikarsins. Þetta er fyrsti úrslitaleikur karlaliðs Gróttu.
ÆSKUVINIR OG ANDSTÆÐINGAR Atli Rúnar Steinþórsson, fyrirliði Gróttu, og Ólafur
Haukur Gíslason, fyrirliði Vals, eru æskufélagar sem báðir spiluðu með Val upp alla
yngri flokkana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í matreiðslu, fyrri hluti, verður haldið dagana 14.-.16. apríl. Sveinspróf í
framreiðslu, bakaraiðn, kjötiðn og matreiðslu, seinni hluti, verða haldin dagana, 11. - 15. maí.
Sveinspróf í prentsmíð - grafískri miðlun, prentun og bókbandi, verða haldin í maí,
nánari dagsetning
auglýst síðar. Mat á starfsreynslu í fjölmiðlatækni og bókasafnstækni fer fram í maí.
Sveinspróf í húsasmíði verður haldið dagana 13. - 15. maí, í pípulögnum,
4. - 6. maí og 11. - 13. maí. Sveinspróf í múrsmíð og málaraiðn verða haldin í maí,
nánari dagsetning auglýst síðar.
Sveinspróf í húsgagnasmíði og dúklögnum og veggfóðrun verða haldin í maí/júní ef
næg þátttaka fæst.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Nánari tímasetningar verða auglýstar á heimasíðu okkar www.idan.is.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfi rlit og burtfararskírteini
með einkunnum eða staðfesting skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2009.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður, er mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, www.idan.is og á skrifstofunni.
IÐAN - fræðslusetur, • Skúlatúni 2 • 105Reykjavík • sími: 590 6400
bréfsími: 590 6401 • netfang: idan@idan.is
HANDBOLTI Stjarnan og FH mætast
í úrslitum Eimskipsbikarkeppni
kvenna í Laugardalshöllinni klukk-
an 13.30 í dag. Staða liða í N1-deild
kvenna er ólík þar sem Stjarnan er
í öðru sæti með 28 stig en FH í því
sjötta með tíu.
Stjarnan hefur unnið báðar inn-
byrðisviðureignir liðanna til þessa
í vetur en þetta hafa verið fremur
naumir sigrar. Guðmundur Karls-
son, þjálfari FH, segir því verkefn-
ið ekki of stórt fyrir sitt lið.
„Við höfum staðið í Stjörnunni í
þessi skipti sem við höfum mæst.
Við höfum yfirleitt spilað vel á
móti betri liðum deildarinnar og
unnum til að mynda Val á útivelli.
Ég tel að það sé lítill munur á liðun-
um og að þetta verði jafn og spenn-
andi leikur. Stjarnan er með tvo af
bestu leikmönnum deildarinnar og
við þurfum að stöðva þær,“ sagði
Guðmundur.
FH hefur ekki orðið bikarmeist-
ari síðan 1981 en Stjarnan á titil
að verja í ár. „Þetta er mikill heið-
ur fyrir mig og þessar stelpur sem
eru flestar uppaldar hjá félaginu.
Þetta sýnir það góða uppbygging-
arstarf sem hefur verið unnið hjá
félaginu, bæði í karla- og kvenna-
flokki.“
FH hefur alls fjórum sinnum
komist í bikarúrslitaleik kvenna,
síðast fyrir sautján árum síðan,
árið 1992.
Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörn-
unnar, tekur í svipaðan streng.
„Staðan í deildinni segir ekkert
til um hvernig þessi leikur þróast.
Aðalatriðið er að reyna að hafa
sem mest gaman af þessu. Við
erum búin að vinna Val og Hauka
á leið okkar í úrslitin og ætlum
því að fara í leikinn í dag til að
skemmta okkur.“
FH vann lið KA/Þórs í undanúr-
slitunum en Stjarnan vann sigur á
Haukum í sinni undanúrslitaviður-
eign. - esá
Stjarnan og FH mætast í bikarúrslitum kvenna:
Ekki of stórt verkefni
BARIST UM BIKARINN Ragnhildur Rósa
Guðmundsdóttir og Kristín Jóhanna
Clausen, fyrirliðar FH og Stjörnunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÚRSLIT
Iceland Express deild karla:
Stjarnan - Keflavík 84-96
Stig Stjörnunnar: Kjartan Atli Kjartansson 20,
Justin Shouse 18, Jovan Zdravevski 14, Fannar
Freyr Helgason 13, Guðjón Lárusson 11, Ólafur
Sigurðsson 4, Birkir Guðlaugsson 2, Hjörleifur
Sumarliðason 2.
Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 20,
Gunnar Einarsson 18, Sverrir Þór Sverrisson 17,
Sigurður Þorsteinsson 16, Elvar Sigurjónsson 10,
Gunnar Stefánsson 10, Jón Nordal Hafsteinsson
4, Axel Margeirsson 1.
Njarðvík - KR 93-115
Stig Njarðvíkur: Magnús Gunnarsson 23, Friðrik
Stefánsson 18, Heath Sitton 17, Fuad Memcic 15,
Hjörtur Einarsson 10, Elías Kristjánsson 4, Sævar
Sævarss. 3, Grétar Garðarss. 2, Friðrik Óskarss. 1.
Stig KR: Jakob Sigurðarson 30, Jón Arnór
Stefánsson 26, Jason Dourisseau 19, Helgi Már
Magnússon 16, Darri Hilmarsson 6, Skarphéðinn
Ingason 6, Fannar Ólafsson 4, Páll Helgason 3,
Ólafur Ægisson 3, Brynjar Þór Björnsson 2.
Tindastóll - Þór 102-105
Stig Tindastóls: Svavar Birgirsson 28, Helgi Marg-
eirss. 22, Friðrik Hreinss. 20, Alphonso Pugh 13,
Ísak Einarss. 12, Helgi Viggóss. 5, Óli Reyniss. 2.
Stig Þórs: Óðinn Ásgeirsson 26, Konrad Tota 25,
Guðmundur Jónsson 18, Daniel Bandy 18, Hrafn
Jóhannesson 10, Bjarki Oddsson 3, Jón Orri
Kristjánsson 3, Baldur Már Stefánsson 2.
STAÐAN:
KR 19 18 1 1857-1430 36
Grindavík 19 17 2 1873-1514 34
Snæfell 19 13 6 1563-1380 26
Keflavík 19 12 7 1642-1469 24
Njarðvík 19 10 9 1567-1642 20
Stjarnan 19 8 11 1623-1659 16
ÍR 19 8 11 1557-1567 16
Tindastóll 19 7 12 1572-1644 14
FSu 19 7 12 1545-1566 14
Breiðablik 19 7 12 1464-1685 14
Þór, Akureyri 19 5 14 1553-1714 10
Skallagrímur 19 2 17 1199-1745 4
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express
deild karla í körfubolta í gær og reyndust
útivallarliðin hlutskörpust í þeim öllum. KR
endurheimti toppsætið með sigri á Njarðvík,
Þór heldur enn í vonina um að halda sæti
sínu í efstu deild eftir nauman sigur á Tinda-
stóli og þá vann Keflavík mikilvæg tvö stig í
Garðabænum með sigri á bikarmeisturum
Stjörnunnar.
Keflavík hafði á endanum tólf stiga sigur,
96-84, eftir að Stjarnan hafði skyndilega náð
sex stiga forystu í þriðja leikhluta eftir að
bakvörðurinn Kjartan Atli Kjartansson gerði
sér lítið fyrir og setti niður þrjá þrista í röð.
„Stundum fær maður opin færi gegn
svæðisvörn og þá verður maður bara að
setja skotin niður,“ sagði Kjartan. „En annars
komumst við aldrei almennilega í takt við
leikinn. Svæðisvörnin þeirra sló okkur út af
laginu í byrjun leiksins. Þegar þeir skiptu svo
í maður á mann varnarleik sló það okkur
líka út af laginu.“
Stjarnan er nú með sextán stig í
sjötta sæti deildarinnar, rétt eins og
ÍR sem er í því sjöunda. Þrjú lið
- Tindastóllk, FSu og Breiðablik
- bítast svo um áttunda og síð-
asta sætið sem veitir þátttöku-
rétt í úrslitakeppninni en þau
eru öll með fjórtán stig.
„Sextán stig eru ekki nóg,“
sagði Kjartan. „Næsti leikur er
grannaslagur gegn Breiðabliki
og við erum alls ekkert öruggir.“
Sigurður Ingimundarson
var ánægður með sigur sinna
manna og sagði Keflvíkinga á
ágætri siglingu sem veit á gott
fyrir úrslitakeppnina.
„Þeir voru að spila fantavel í þriðja
leikhluta og vörnin okkar fór alveg
úr skorðum við það. Við þurftum því
að gjörbreyta henni en það virkaði
vel því vörnin var frábær í fjórða
leikhlutanum,“ sagði Sigurður.
Hann segir þó sína menn ekki
einblína aðeins á að ná þriðja sæt-
inu á Snæfellinga sem hafa tveggja
stiga forskot á Keflavík þegar þrjár
umferðir eru eftir.
„Nú á mánudaginn eigum við leik
gegn liði sem er tveimur leikjum á eftir
okkur. Við ætlum okkur fyrst og fremst
að vinna hann. Þegar svo lítið er eftir
af deildinni er mikilvægt að halda
einbeitingunni góðri og hugsa bara
um næsta leik.“
ICELAND EXPRESS DEILD KARLA: EKKERT NEMA ÚTISIGRAR Í GÆRKVÖLDI
Mikilvægur sigur Keflavíkur í Garðabænum
> Viktor Bjarki skiptir um félag
Greint var frá því í gær á heimasíðu norska
úrvalsdeildarfélagsins Lilleström að
Viktor Bjarki Arnarsson væri á leið í 1.
deildarfélagið Nybergsund. Félögin
hafi í öllum meginatriðum komist að
samkomulagi um það. Sjálfur sagðist
Viktor Bjarki ánægður með þessa
lausn mála en hann hefur lítið sem
ekkert fengið að spila með Lilleström
síðan hann kom þangað frá Víkingi í
Reykjavík árið 2006 en hann var lánaður
til KR á síðasta keppnistímabili.