Fréttablaðið - 28.02.2009, Síða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Nú í vikunni henti sá voveifl-egi atburður íslenskt efna-
hagslíf að Davíð Oddsson seðla-
bankastjóri tjáði sig opinberlega.
Slíkt hefur einatt leitt af sér hinar
mestu hörmungar, enda hefur nú
verið komið í veg fyrir að þetta
endurtaki sig. Tjón af þessum
toga er nefnilega „fyrirbyggjan-
legt“. Viðtalið var þó hið athyglis-
verðasta, einkum vegna þess hve
glögga innsýn það veitti í hugar-
heim Davíðs. Til að mynda byrj-
aði hann á að kannast ekkert við
að hann væri óvinsæll. Þótt skoð-
anakannanir sýndu að 90% þjóðar-
innar vildu losna við hann af fóðr-
unum tók hann ekkert mark á því,
enda birtust þær í Baugsmiðlum.
Hann dró í efa að þessar kannanir
hefðu nokkurn tímann verið gerð-
ar. Hann trúir því m.ö.o. einlæg-
lega að á ritstjórnarskrifstofum
Fréttablaðsins sitji þeir Bónus-
feðgar og skáldi upp skoðanakann-
anir, sem aldrei eru framkvæmd-
ar, til að koma höggi á hann.
ÞESSU til áréttingar sagði hann
að fjöldi manna segði hann einan
hafa haldið haus í útrásarfárinu
og goldið við því varhug. Farið á
Youtube og leitið að myndbandinu
„Útrásarsöngur Davíðs“. Annað-
hvort er þar illur tvífari Davíðs
á ferð að koma á hann óorði eða
minni Davíðs af orðum sínum og
gjörðum í fortíðinni er svo sel-
ektíft að það hlýtur að jaðra við
hreina ósannsögli. Þetta sýnir
auðvitað betur en nokkuð annað
hvílík nauðsyn það var að koma
æðstu peningastofnun þjóðarinn-
ar í hendur fólks sem ekki stendur
alveg svona völtum fótum í raun-
veruleikanum.
VIÐTALIÐ fór illa af stað og síðan
hélt áfram að syrta í álinn. Ný lög
um Seðlabanka beindust gegn
honum persónulega og það þótti
honum ógeðfellt. Það var ekki eins
og þessi sami Davíð hefði forðum
daga keyrt fjölmiðlalög í gegn-
um Alþingi, sem augljóslega mið-
uðu aðeins að því að knésetja per-
sónulega óvildarmenn hans sjálfs.
Hér mætti láta gamminn geisa um
grjót og glerhús, flísar og bjálka,
en ég læt það ógert.
BURTSÉÐ frá því hve geðfellt
slíkt er, hlýtur það þó að mega telj-
ast ótrúleg bíræfni að sami Davíð
og ákvað upp á sitt eindæmi að sví-
virða stjórnarskrá íslenska lýð-
veldisins með því að gera þjóðina
meðseka um stríðsglæpi Banda-
ríkjahers í Írak skuli nú telja sig
þess umkominn að upplýsa okkur
um geðfellda stjórnsýslu.
FARVEL, nafni. Þín verður ekki
saknað.
Álftagarg úr
Svörtuloftum
Í dag er laugardagurinn 28.
febrúar, 59. dagur ársins.
8.38 13.40 18.43
8.28 13.25 18.24