Tíminn - 12.01.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 12. janúar 1993
Tíminn 3
Heildaráhrif EES-samningsins á efnahagslíf
landsmanna. Þjóðhagsstofnun:
Sex milljarðar
á átta árum
Andlát:
Ingimar Eydal, hljóm-
listarmaður og kennari
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofhunar, segir að í
fjárhæðum talið séu heildaráhrif
EES-samningsins á efnahagslíf
þjóðarinnar hagstæð um sex
milljarða á átta ára tímabili, en
allt að tveimur og hálfum millj-
arði á fjórum árum.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir
að þetta séu áhrif samningsins
svona í grófum dráttum á mæli-
kvarða hagvaxtar. Sé litið á áhrif
samningsins á landsframleiðslu sé
um að ræða aukningu frá 0,6% -
1.4% á átta ára tímabili. „Lands-
framleiðslan verður allt að því 1.4%
meiri eftir átta ár en hún annars
yrði eða sem nemur allt að sex millj-
örðum. Sé litið til fjögurra ára þá er
reiknað með 0,6% aukningu lands-
framleiðslu eða allt að tveimur og
hálfum milljarði, auk margsvíslegra
annarra áhrifa sem EES-samning-
urinn mun hafa í för með sér.“
Þórður Friðjónsson segir að það sé
umdeilt meðal hagfræðinga hversu
mikil hagvaxtaráhrifin eru af sam-
runa markaða og stækkun þeirra en
hins vegar séu menn sammála um
að áhrifin séu jákvæð. Að sama skapi
sé það mikilvæg forsenda í þessu
mati að íslensk fyrirtæki standi sig í
samkeppninni á evrópska efnahags-
svæðinu.
Hins vegar hefur verið á það bent
að íslensk fyrirtæki séu alls ekki til-
búin til að standast samkeppni við
önnur fyrirtæki innan evrópska
efnahagssvæðisins sökum smæðar
og þess að efnahagslegur styrkur
þeirra sé mun minni en þeirra fyrir-
tækja sem þau þurfa að etja kappi
við.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir
að þetta sé að mörgu leyti rétt að ís-
Kvennakór
Reykjavíkur
stofnaöur
Um næstu helgi verður stofnaður
kvennakór í Reykjavík en slíkur kór
hefur ekki verið starfandi í Reykja-
vík. Hugmyndin er að Kvennakór
Reykjavíkur starfi með hliðstæðum
hætti og Karlakór Reykjavíkur
starfar.
Hugmynd að stofnun kvennakórs
vaknaði eftir tónleika sem konur í
kórskóla Margrétar J. Pálmadóttur
héldu síðastliðið vor til styrktar
Stígamótum. í desember hélt sami
hópur aðra tónleika fyrir fullu húsi í
Kristskirkju. Á tónleikunum komu
fram auk kórskólans stúlkur úr kór
Flensborgarskóla, Bamakór Grens-
áskirkju og Úlrik Ólason orgelleik-
ari.
Nú hefúr verið tekin ákvörðun um
að stofna Kvennakór Reykjavíkur og
verða inntökupróf haldin að Hall-
veigastöðum 13. janúar kl. 17-22 og
17. janúar kl 13-17. Undirbúnings-
nefndin hvetur konur að láta slag
standa og taka þátt í stofhun
Kvennakórs Reykjavíkur. Þeim kon-
um sem ekki standast inntökuskil-
yrði sem sett eru verður bent á ýmsa
möguleika til undirbúnings. -EÓ
PÓSTFAX
TÍMANS
lenskt efnahagslíf sé tiltölulega veikt
bæði hvað varðar það að íslensk fyr-
irtæki eru lítil og eins að fjárhags-
staða margra þeirra er veik í saman-
burði við fjárhagsstöðu fyrirtækja í
öðrum löndum innan EES- svæðis-
ins.
„Þannig að í þessu er fólgnir
ákveðnir veikleikar. Engu að síður
er engin ástæða til að ætla það fyrir-
fram að íslendingar standi sig eitt-
hvað verr en aðrir í þessari sam-
keppni," segir forstjóri Þjóðhags-
stoftiunar sem stefnir að birtingu
nýrrar þjóðhagsspár í lok vikunnar.
-grh
Látinn er Ingimar Eydal, hljóm-
listarmaður og kennari á Akur-
eyri. Ingimar Eydal fæddist 20.
október 1936 á Akureyri. Hann
var landsþekktur hljómlistarmað-
ur um áratugi. Hann starfrækti
hljómsveitina góðkunnu undir
eigin nafni frá árinu 1960 og nær
óslitiö þar til fyrir skemmstu.
Ingimar gaf úr fjölda hljómplatna
á tónlistarferli sínum sem nutu
mikilla vinsælda hjá þjóðinni og
með honum hafa margir bestu
hljómlistarmanna og dæguriaga-
söngvara starfað.
Aðalstarf Ingimars mestan hluta
starfsævi hans auk hljóðfæraleiks-
ins var tónmennta- og eðlisfræði-
kennsla á Akureyri og Dalvík en
auk þess var hann um árabil for-
stöðumaður útibúa ferðaskrifstofa
á Akureyri.
Þrátt fyrir að hann væri þannig
störfum hlaðinn og ynni langan
vinnudag kom það ekki í veg fyrir
virka þátttöku hans í félagsstarfi:
Ingimar var þannig m.a. varabæj-
arfulltrúi fyrir Framsóknarflokk-
inn á Akureyri um skeið og sat
lengi í æskulýðsráði, áfengisvarna-
nefnd og félagsmálaráði bæjarins.
Þá starfaði hann lengi innan Góð-
templarareglunnar og gegndi þar
trúnaðarstörfum. Einnig var Ingi-
mar formaður Norræna félagsins á
Akureyri frá árinu 1976.
Eftirlifandi kona Ingimars Eydals
er Ásta Sigurðardóttir sjúkraliði.
Þau eignuðust fjögur börn.
—sá
/-
'LwVr-
\rn<'
J IV/-
~ M-V
h>
'j\\i c4N
> c Js
ik;>Sí\
4_V4
\ i~yí
Breytingar á reglum
um kílómetragjald og
ökutækjastyrk
Sönnun akstursþarfar
- akstursdagbók
Þeir launþegar sem hyggjast í fram-
tali 1994 gera kröfu um að fá kostnað
dreginn frá ökutækjastyrk og/eða
kílómetragjaldi sem þeir fá greitt á
árinu 1993 þurfa frá byrjun þess árs
að sanna akstursþörf með því að
færa akstursdagbók eða aksturs-
skýrslu.
í akstursdagbók eða akstursskýrslu
skal skráð hver ferð í þágu launa-
greiðanda, dagsetning, ekin vega-
lengd, aksturserindi, nafn og kenni-
tala launamanns og skráningar-
númer ökutækis. Skal færa þessi
gögn reglulega og skulu þau vera
aðgengileg skattyfirvöldum þegar
þau óska þess.
Krafa um útfyilingu akstursdagbókar
eða akstursskýrslu vegna sönnunar
á akstri í þágu launagreiðanda er
óháð því hvort launþegi fær fastan
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
ökutækjastyrk eða fær greitt sam-
kvæmt framlögðum akstursreikn-
ingi.
Frádráttarbær kostnaður
Til þess að fá kostnað á móti öku-
tækjastyrk frádreginn við álagningu
1994 þurfa launamenn að skila með
framtali sínu eyðublaði RSK 3.04,
nefnt ökutækjastyrkur og ökutækja-
rekstur, og gera þar grein fyrir
sannanlegum kostnaði við rekstur
ökutækisins. Gildir þetta um alla,
hvort sem greiddur er fastur öku-
tækjastyrkur eða kílómetragjald.
Samkvæmt þessu verða allir þeir
sem fá greidda ökutækjastyrki eða
kílómetragjald að halda saman
öllum upplýsingum um kostnað
vegna reksturs ökutækisins, svo
sem bensín, viðgerðir, tryggingar,
hjólbarða o.s.frv.
Varðandi nánari upplýsingar er
vísað til skattmats ríkisskattstjóra í
staðgreiðslu samkvæmt auglýsingu
RSK nr. 3/1993.
t , 1-r \ — l / 1 ! I
"L, VC
VV
>
—. v i \ Vv) ^f' /n,,