Tíminn - 12.01.1993, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Þriðjudagur 12. janúar 1993
Nýárshappdrætti
Framsóknarflokksins 1993
Dregiö var í Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar
1993. Vinningsnúmer eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 12274
2. vinningur nr. 31527
3. vinningur nr. 37245
4. vinningurnr. 13827
5. vinningur nr. 32296
6. vinningur nr. 34595
7. vinningur nr. 1444
8. vinningur nr. 29884
9. vinningur nr. 7932
10. vinningur nr. 22700
11. vinningur nr. 4607
12. vinningur nr. 5839
13. vinningur nr. 21649
14. vinningurnr. 703
15. vinningurnr. 17415
Úgreiddir miðar eru ógildir. Vinnings skal vitja innan árs frá út-
drætti. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-28408 og
91-624480.
Framsóknarflokkurinn
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilum 10. og 24. janúar kl. 21.00.
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Þjóðmálanefnd SUF
Fundur verður haldinn I þjóðmálanefnd SUF, þriöjudaginn 12. januar n.k. kl. 17.00
aö Hafnarstræti 20 (3. hæð). Fundarefni: Lánasjóður islenskra námsmanna.
Halldór Guönl Jón
Selfoss — Suðurland
Alþingismennimir Halldór Asgrlmsson, Guðni Águstsson og Jón Helgason flytja
framsögu og svara fýrirspumum.
Benidorm
íbúðir og einbýlishús til sölu. Verðið aldrei hag-
stæðara. (slenskur söluaðili á staðnum.
Upplýsingar í síma 621750. Fax: 627850.
Hestamenn — Bændur
Tek að mér járningar. Vönduö vinna.
Tek einnig hross í tamningu frá 1. feb.
Arnar Bjarnason
Sími 98-22252
Umbrotsmenn —
Teiknarar
2 góð Ijósaborð til sölu. Stærð 85 x 120 sm.
Tæknideild Tímans. Sími 686300.
Skólaritari
Laus er til umsóknar staöa ritara við Hvaleyrarskóla í
Hafnarfirði.
Umsóknir berist skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu
4, eigi síðar en 18. janúar nk.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma 650200 og
skólaskrifstofa Hafnarfjarðar í síma 53444.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
FORELDRAR
KALLAÐIR TIL
ÁBYRGÐAR
Frá þingi Landssambandsins gegn áfengisbölinu
20. þing Landssambandsins gegn
áfengisbölinu var haldið 30. nóvem-
ber sl. og sóttu það um 40 fulltrúar
hinna ýmsu aðildarsamtaka sam-
bandsins.
Á þinginu var staðfest aðild tvennra
nýrra samtaka að sambandinu:
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og Vímulausrar æsku — for-
eldrasamtaka, og eru aðildarsamtök
þá alls 30.
Formaður flutti ávarp í upphafi og
minntist tveggja mætra liðsmanna:
Áma Böðvarssonar málfarsráðunaut-
ar og Sigurgeirs Þorgrímssonar ætt-
fræðings.
Minnti á kynningu þeirrar skýrslu
sem Hagfræðistofnun Háskólans
vann fyrir sambandið um hinn gífur-
lega kostnað samfélagsins af áfengis-
neyslunni.
Aðalerindi þingsins flutti Jóhannes
Bergsveinsson yfirlæknir. Kom hann
víða við í afar glöggu og ítarlegu
máli, en erindið nefndi hann: Áfeng-
ið og tíðarandinn.
Hann rakti skemmtileg og fróðleg
dæmi úr fortíð sem nútíð, vitnaði til
gagnmerkra skrifa og athugana víðs-
vegar að, svo og óskemmtilegra en
skýrra dæma um hinn makalausa tví-
skinnung í málum þessum.
Ætlunin er að gefa erindi Jóhannes-
ar út sérprentað. Umræður urðu
fjörlegar og fyrirspumum var svarað.
Fundinum stjórnaði Sigrún Sturlu-
dóttir, en Jón Hjörleifur Jónsson rit-
aði fundargerð.
Stjóm sambandsins til næstu
tveggja ára skipa: Helgi Seljan for-
maður og aðrir í stjóm: Esther Guð-
mundsdóttir, Guðsteinn Þengilsson,
Hanna Kolbrún Jónsdóttir, Jón Hjör-
leifur Jónsson, Ólafur Haukur Árna-
son, Páll V. Daníelsson og Þórarinn
Bjömsson.
Eftirfarandi ályktanir sendi þingið
frá sér:
Markviss barátta gegn
aukinni áfengisneyslu
20. þing Landssambandsins gegn
áfengisbölinu, haldið mánudaginn
30. nóvember 1992, skorar á alla
landsmenn, eldri sem yngri, að hug-
leiða hvert stefnir í áfengis- og fíkni-
efnavandanum og kynna sér vel þær
staðreyndir, sem við blasa í íslensku
þjóðfélagi í þeim efnum.
Þingið vekur athygli á þeim stað-
reyndum, að samkvæmt könnunum,
sem gerðar hafa verið, hefur áfengis-
neysla landsmanna aukist með til-
komu bjórsins og þá ekki síst hjá
unglingum og ungmennum. Nú er
svo komið í dag, að talið er að um
60% 13 ára krakka hafi neytt áfengis
og eru nokkur þeirra svo illa farin af
drykkjunni, að nauðsynlegt hefur
þótt að koma þeim fyrir á meðferðar-
stofnunum fyrir drykkjusjúka.
Þeim heimilum fer sífellt fjölgandi,
sem verða fórnarlamb ofneyslu
áfengis, jafnframt því að ölvunar-
akstur og afbrot, sem rekja má til
áfengisneyslu, fara ört vaxandi. Sá
einstaklingur mun vandfundinn á ís-
landi, sem ekki þekkir einhvern sér
nákominn sem illa er kominn vegna
áfengisneyslu.
Milljónatugum er varið árlega til
meðferðarstofnana áfengissjúklinga,
til lækninga á fólki sem orðið hefúr
Bakkusi að bráð. Enginn veit umfang
þeirra fjármuna, sem tapast árlega á
íslenskum vinnumarkaði vegna
áfengisneyslu manna í öllum at-
vinnugreinum, en þar er um ótrú-
lega háar upphæðir að ræða.
Því síður er hægt að mæla hörm-
ungar og sársauka, angist og örvænt-
ingu fjölmargra barna og fúllorð-
inna, heimila og fjölskyldna, sem á
rætur að rekja til áfengisneyslu. Slíkt
verður aldrei hægt að meta til verðs.
Með þessar staðreyndir í huga skor-
ar Iandsþingið á öll aðildarfélög sín,
svo og landsmenn alla, að skera upp
herör og taka upp markvissa baráttu
gegn ört vaxandi áfengisneyslu.
Landsþingið leggur áherslu á, að
forvamir og fyrirmyndir skipta
miklu máli fyrir þróun áfengisvama í
nútíð og framtíð. Forustumenn fé-
lagasamtaka og fyrirmenn í þjóðfé-
laginu hafa þar þýðingarmiklu hlut-
verki að gegna með því að gefa rétta
tóninn og gott fordæmi á þessu sviði.
Þeir skyldu ætíð hafa í huga, að for-
ystuhlutverki fylgir ábyrgð af ýmsu
tagi, líka í áfengismálunum.
20. landsþing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu minnir á mikil-
vægi þess að byrja forvamir í áfengis-
málum nógu snemma, að þær hljóta
og eiga að byrja á heimilunum og þar
eru það foreldrarnir sem kallaðir eru
til ábyrgðar. Heimili, þar sem áfeng-
isneysla á sér aldrei stað, er góður
grunnur til að byggja á framtíðar-
heill barna sinna.
Að lokum sendir landsþingið lands-
mönnum öllum bestu óskir um
gleðileg, áfengislaus jól, og vonar að
nýtt ár færi okkur íslendinga til
minnkandi áfengisneyslu og meiri
lífshamingju.
Banni við áfengisaug-
lýsingum verði fram-
fylgt betur
20. þing Landssambands gegn
áfengisbölinu átelur harðlega beinar
og óbeinar áfengisauglýsingar í blöð-
um, tímaritum og öðrum fjölmiðl-
um, en auglýsingar af því tagi eru
bannaðar samkvæmt landslögum.
Hér er m.a. átt við ýmsar bjóraug-
lýsingar, sem margar hverjar orka
mjög tvímælis hvað þetta snertir, svo
og ýmsa umfjöllun blaða og afþrey-
ingarrita um áfengi, sem oft er með
þeim hætti, að umfjöllunin verður
Íítið annað en bein eða óbein auglýs-
ing.
Þingið skorar á lögreglustjóraemb-
ættin víðs vegar um landið að taka
sig verulega á um allt eftirlit á þessu
sviði og halda vöku sinni gagnvart
þessum lögbrotum.
Ennfremur mælist þingið eindregið
til þess við dómsmálaráðherra, að
hann láti endurskoða eftirlitskerfið
varðandi áfengisauglýsingar með til-
liti til þess að kerfið verði skilvirkara
en það er nú. Jafnframt væri æskilegt
að viðurlög vegna lögbrota f sam-
bandi við meintar áfengisauglýsingar
verði hert verulega.
Burt með áfengt
jólaglögg
20. þing Landssambands gegn
áfengisbölinu hvetur landsmenn til
að forðast að neyta eða nota áfengt
,jólaglögg“ á vinnustöðum eða í
heimahúsum og minnir á að öll
áfengisneysla er í hrópandi mótsögn
við boðskap jólanna.
Þingið vekur athygli þeirra, sem
vilja fagna nánd jólanna með ,jóla-
glöggi" á því, að til er fjöldi ágætra
uppskrifta að ljúffengu, bragðgóðu
og óáfengu ,jólaglöggi“, sem auðvelt
er að laga og hættulaust að njóta.
Hægt er að fá slíkar uppskriftir hjá
Áfengisvarnaráði ríkisins á Eiríks-
götu 5, Reykjavík.
(Millifyrirsagnir eru blaðsins).
Athugasemd frá Max hf:
Pollux/Max er al-
íslensk framleiðsla
í Tímanum þann 7. janúar sl. er
haft eftir Albert Albertssyni,
framkvæmdastjóra tæknisviðs
Hitaveitu Suðumesja, varðandi
val á erlendum fatnaði í stað ís-
lensks: „íslenskt og íslenskt;
sumt er saumað hér og annað inn-
flutt hjá öilum, þannig að það er
ekki alíslenskt, þótt hitt hafí verið
valið.“
Það verður ekki hjá því komist að
Ieiðrétta ummæli Alberts. Allur
saumaður vinnufatnaður merktur
Pollux/Max, er þarna var boðinn,
er íslensk framleiðsla. Svo hefur
verið á liðnum árum, þó með
tveimur undantekningum. Meðan
á endurskipulagningu á sauma-
stofu stóð árið 1987 var ein send-
ing vinnusamfestinga fengin frá
Portúgal, og árið 1991 fluttum við
inn nokkur hundruð fóðraðra
samfestinga úr samstarfsverkefni
vegna útflutnings með norska fyr-
irtækinu Djupvik. Var það gert til
prófana á þeim við íslenskar að-
stæður. Tekið skal fram að þeir
voru seldir undir merkjum Djup-
vik, svo ekki fór á milli mála að um
innflutta vöru var að ræða.
Albert er ekki einn um þá skoðun
að vara okkar sé seld undir röng-
um merkjum. Því miður hafa
óvandaðir söluaðilar innflutnings
haldið því fram við tjölmarga við-
skiptavini okkar að svo sé, til að
auðvelda sér markaðsaðgang.
Ástæða er því til að eyða þessum
misskilningi f eitt skipti fyrir öll og
gera ljóst að gæðaframleiðsla okk-
ar er íslensk, bæði að vinnu og
hönnun, og erum við hjá Max
stoltir af því að hönnun okkar hef-
ur orðið slíkur staðall í vinnufatn-
aði að aðrir framleiðendur hafa
ekki séð betri leið að markaði en
eftirlíkingar, þótt skorta kunni
stundum á gæði vinnu þeirra.
Virðingariýllst,
Sigmundur M. Andrésson