Tíminn - 12.01.1993, Page 9
Þriðjudagur 12. janúar 1993
Tíminn 9
iDAGBÓKPiili
Breiöfiröingafélagiö
Félagsvist verður sunnudaginn 17.
janúar kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14.
Ameríska bókasafnið:
Kvikmyndavika á
sígildum nótum
Með nýju ári tekur Ameríska bókasafn-
ið upp þráðinn á ný með sýningum á
bandarískum bíómyndum frá ýmsum
tímum. Að þessu sinni hefúr kvikmynda-
vikan hlotið samheitið Á sígildum nót-
um (The Classics), enda eru nokkrar af
frægustu fdmum kvikmyndasögunnar
felldar hér undir einn hatt
Dagskráin er sem hér segin
Þriðjudagur 12. janúar kl. 1430: „Casa-
blanca“ (1942). Leikstjóri Michael Curt-
iz. í aðalhlutverkum Humphrey Bogart,
Ingrid Bergman, Paul Henreid og Claude
Rains.
Miðvikudagur 13. janúar kl. 14.30:
„Citizen Kane“ (1941). Leikstjóri Orson
Welles. í aðalhlutverkum Orson Welles,
Joseph Cotten, Agnes Moorehead og Ev-
erett Sloane.
Fimmtudagur 14. janúar kl. 14: „Gone
With the Wind“ (1939). Leikstjóri Victor
Fleming. í aðalhlutverkum Clark Gable,
Vivien Leigh, Leslie Howard, Olivia de
Havilland.
Föstudagur 15. janúar kL 14.30:
„Spartacus" (1961). Leikstjóri Stanley
Kubrick. í aðalhlutverkum Kirk Dou-
glas, Laurence Olivier, Jean Simmons,
Charles Laughton, Peter Ustinov og Tony
Curtis.
Sýningar eru á breiðskjá í húsakynnum
Menningarstofnunar Bandaríkjanna og
Ameríska bókasafnsins að Laugavegi 26
(inngangur og bílastæði einnig Grettis-
götumegin). Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Minningarfundur um fórnar-
lömb Persaflóastríðsins
Almennur borgarafundur, haldinn í
minningu fómarlamba Persaflóastríðs-
ins, verður haldinn sunnudaginn 17.
janúar kl. 16 í Kaffi Sólon íslandus (gall-
erí), Ingólfsstræti 7, Reykjavík.
Námskeiö í ættfræöi
Ný ættfræðinámskeið hefjast hjá Ætt-
fræðiþjónustunni í Brautarholti 4 upp úr
miðjum janúar. Þá em einnig fyrirhuguð
námskeið úti á landi. Boðið er upp á 20
og 24ra kennslustunda grunnnámskeið
og 20 stunda ffamhaldsnámskeið fyrir
lengra komna, en vemleg verðlækkun
hefur orðið á öllum námskeiðum. í byrj-
un er veitt öll nauðsynleg fræðsla um
ættfræðiheimildir, leitaraðferðir, skrán-
ingu og úrvinnslu upplýsinga. Þá fá þátt-
takendur þjálfun í vinnubrögðum með
því að rekja eigin ættir og frændgarð, en
rannsóknaraðstaðan er stórbætt frá því
sem fyrir var, þar sem Ættffæðiþjónust-
an er komin með örfilmur af kirkjubók-
um um allt land ffá upphafi til loka 19.
aldar, auk annarra fmmheimilda, hand-
rita og prentaðra bóka. Leiðbeinandi er
Jón Valur Jensson. Innritun er hafin f
sfmum 27100 og 22275.
Tímaritiö Þroskahjálp komiö út
Þroskahjálp, tímarit um málefni fatl-
aðra, er komið ÚL
í blaðinu em margar fróðlegar greinar
að venju. Þar má nefna grein um geð-
heilbrigðiskerfið eftir önnu Valgarðs-
dóttur, viðtal við Guðrúnu Ámadóttur,
sem er móðir fatlaðs drengs í Keflavík,
og umfjöllun um æfingar og leiki fyrir
þroskahefta eftir Margréti Hallgríms-
dóttur. Ásta B. Þorsteinsdóttir, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar, ritar
um ný lög um málefni fatlaðra og nefnir
hún grein sína Málefni fatlaðra á tíma-
mótum. Auk þess má nefna grein ffá
Noregi eftir önnu Sofie Rasmussen um
breytingu á þjónustu fatlaðra þar í landi
við færslu á málaflokknum frá ríki til
sveitar.
Frá Nuddskóla Rafns Geirdals
Nuddnám, vorönn 1993:
l. Nuddkennsla. Nám hefst mánudaginn
11. janúar kl. 9. Kennt er alla virka daga
kl. 9-12 og 13-16. Námi lýkur miðviku-
daginn 7. apríl kl. 12. Kennslustunda-
fjöldi: 500.
Meginmarkmið er að kenna almennt
líkamsnudd. í lokin er aðgreint á milli
slökunamudds, klassísks nudds, íþrótta-
nudds, heildræns nudds og nudds við
vöðvaspennu, hverri aðferð lýst nánar
m. LL hraða og nákvæmni.
Kynntar eru ýmsar aðrar nuddaðferðir,
eins og svæðanudd og shíatsú.
Jafnframt er fjallað um aðrar leiðir til
heilsuræktar, eins og heilun, jóga,
heilsufæði, jurtalækningar og fleira.
Töluverður tími fer f fræðslu um helstu
vöðva líkamans, bæði bóklega og verk-
lega, til að styrkja kunnáttu nemandans í
nuddi.
II. Starfsþjálfun hefst mánudaginn 11.
janúar kl. 16. Þjálfað er alla virka daga kl.
16-22. Starfsþjálfun lýkur 31. desember
1994. Klukkustundafjöldi: 500.
ílLAÍÍmNTAÍr)
w w
I YMIS HVERFI
Lynghálsi 9. Sími 686300
Viö mætingar á mjóu (einbreiðu) slitlagi
þarf önnur hliö bílanna aö vera utan slitlagsins
ALLTAF ÞARF AÐ DRAGA ÚR FERÐ!
UMFERÐAR
RÁÐ
Lassie sjöunda gefur formóöur sinni ekkert eftir! Þúsundir bandarlskra krakka öfunda Will Nipper af
því aö fá aö leika meö eftirlætishundinum þeirra. Mamma Wills er llka ánægö meö félagsskapinn.
Sjöundi ættliðurinn
frá Lassie er líka
kvikmyndastjarna!
Þeir, sem komnir eru til fullorð-
insára, muna vel eftir hinni vitru
Lassie, sem drýgði marga hetju-
dáðina á hvíta tjaldinu fyrir um
hálfri öld. Hundurinn Pal, sem
fyrst gegndi hlutverki Lassie, kom
fyrst fram í myndinni „Lassie
Come Home" 1943.
Nú er sjöundi ættliður frá þeirri
frægu Lassie að gera garðinn
frægan í sjónvarpsþáttum í
Bandaríkjunum og nýtur óhemju
vinsælda, rétt eins og ættmóðirin.
Will Nipper, 14 ára strákur sem
þegar hefur leikið í sjónvarpsþátt-
unum „Highway To Heaven" með
Michael Landon heitnum (voru
sýndir hér í sjónvarpi) og Santa
Barbara, þurfti að keppa við 500
aðra stráka áður en hann fékk
þetta eftirsótta hlutverk.
Það er Bob Weatherwax, sem á
heiðurinn af frammistöðu Lassie.
Það kostaði tveggja ára stranga
þjálfun að kenna Lassie allt það
sem hún nú kann, en það er held-
ur ekkert smáræði.
Aðdáendur Lassie-þáttanna hafa
óttast að þeir hættu innan tíðar,
en nú mun hafa verið ákveðið að
ný þáttaröð og kvikmynd verði
gerð árið 1993 í tilefni 50 ára af-
mælisins.
Bob Weatherwax hefur þjálfað nýjustu stjörnuna I Lassie-ættarveldinu, sem hefur þegar náö svo
langt á ferlinum aö hafa fengiö stjörnuna slna á hina frægu stjörnugangstétt viö Hollywood Boulevard.