Tíminn - 28.01.1993, Blaðsíða 1
Sighvatur Björgvinsson segir BSRB Ijúga til um tölur í sambandi við 930 millj. kr. álögur á sjúklinga, en...:
Ekkert óeðlilegt
þótt fólk kvarti
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra ásamt aðstoðarmanni sínum Þorkatli Helgasyni.
milij. kr. spamaði í læknis- og
Iyfjakostnaði. ,JHér finnst ekk-
ert óeðiilegt þó fólk kvarti yfir
þessu. Það hefði verið mjög gott
að komast hjá því að gera
þetta,“ segir Sighvatur Björg-
vinsson heilbrigðisráðherra, að-
spurður um hvort ekki skyti
skökku við að leggja auknar
álögur á almenning til viðbótar
við skattahækkanir o. fi..
Hann telur málflutning formanns
BSRB um að krabbameinssjúklingar
greiði meira vegna niðurfeliingu að-
stöðugjaldsins, bera vott um gap-
uxahátt.
Á fundi í gær fór ráðherra yfir þær
breytingar sem gerðar hafa verið í
heiíbrigðisþjónustu. Þar var áréttað
að áætlað sé að ná 280 millj. kr.
spamaði í greiðslu á læknishjálp og
650 millj. kr. spamaði í Iyfjakostnaði
eða samtals 930 milljónir króna.
„Það er ekkert óeðlilegt við það þó
verkalýðshreyfingin kvarti yfir
þessu. Það sem mér finnst óeðlilegt
er að menn fari vísvitandi með rangt
mál. Það er óeðlilegt þegar menn
vísvitandi virðast vera að reyna að
hræða fólk með því að magna þenn-
an vanda upp, það er ekki eðlilegt,"
bætir hann við og vitnar til mál-
flutnings formanns BSRB sem hann
segir vera gjörsamlega út í hött. Þar
bendir Sighvatur m.a. á ummæli
Ögmundar Jónassonar, formanns
BSRB, um að álögur á krabbameins-
sjúklinga séu til að mæta aðstöðu-
gjaldi sem var velt af stórfyrirtækj-
um í ársbyrjun. Sighvati finnst þessi
málflutningur dæmalaus þar sem
allir viti að aukin staðgreiðsla skatta
eigi að mæta þessum kostnaði en
ekkert annað.
„Frétt BSRB og fréttatilkynning er
sett fram án þess að þeir hafi svo
mikið sem reynt að nálgast upplýs-
ingar frá ráðuneytinu. Á krabba-
meinsdeildum sjúkrahúsanna fer
engin innheimta fram fyrir ríkis-
sjóð. Sú innheimta gengur beint til
Tímamynd Ámi Bjama
viðkomandi sjúkrahúss," segir Sig-
hvatur.
Stallone filmar ekki á
íslandi í bráð:
Kvikmynd yfir-
skin barnsráns
Kvikmyndataka á íslandi með Syl-
vester Stallone og Kim Basinger
sem greint var frá í Tfmanum sl.
fdstudag, var aðeins yfirvarp að
tvöfoldu bamsráni. Jaquline
Uavies sem bjó á Hótel Sögu og
þóttist leita tökustaða hér ásamt
lífverði Stallones voru í raun
bamsræningjar.
Samkvæmt Stöð 2 var tveimur
bömum rænt af heimili þeirra {
gær. Lögregla náði öðru barninu,
stúlku á sjötta ári, í Leifsstöð í
Kefiavík. Hltt, 10 ára stúlka náð-
ist ásamt föður sfnum í Luxem-
bourg og var sent til baka í gær.
Jaquline Davies hafði ráðiö móð-
ur bamanna sem rænt var í gær-
morgun sem umboðsmann kvik-
myndafélagsins í þeim eina tÖ-
gangi að ræna bömum hennar og
látið hana taka þátt í riðabrugg-
inu óafvitandi.
Fimm manns tóku þátt í ráða-
brugginu hér á landi; tveir Banda-
ríkjamenn, feður síns hvors
bamsins, áðumefnd Jaquline og
,4í(vörðurinn“. Auk þeirra hafa
fleiri verið í vitorði með fútldnu f
Bandaríkjunum, m.a. maður sem
gaf sig út við Tímann fyrir að veta
blaðafulltrúi kvikmyndafélagsins
og kvaðst helta Lewis Barger. Við
þann mann talaði blaðam. Tím-
ans til að staðrcyna fyrirhugaöa
Jcvikmyndun".
-HÞ
Enn ein breytingin í heilbrigðiskerfinu 1. apríl nk:
Tilvísanir teknar upp að nýju
Tilvísunarkerfi verður tekið upp
þann 1. apríl n.k. „Þá munu
greiðslur breytast þannig að það
verður gert eftirsóknarverðara að
hafa fyrst samband við heimilis-
lækni áður en tekin er ákvörðun
um að leita til sérfræðings sem er
dýrasta læknisþjónustan," segir
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráherra.
Þetta kom fram á fundi með
heilbrigðisráðherra í gær. Sig-
hvatur telur að með þessu muni
greiðslur sjúklinga fyrir sérfræði-
læknishjálp lækka fá því sem nú
er. Hann vitnar til OECD til að
rökstyðja þessa breytingu. „Þar
voru skoðuð samanburðarlönd
þar sem annars vegar voru slík
tilvísunarkerfi í gildi og hins veg-
ar ekki. Niðurstaðan úr þeirri at-
hugun er að þar sem slík tilvísun-
arkerfi voru í gildi hefði verið
hægt að halda niðri kostnaði en
annars ekki,“ segir Sighvatur.
Með lagabreytingu sem tók gildi
um áramót, hefur ráðherra heim-
ild til að setja það sem skilyrði
fyrir greiðsluþátttöku Trygginga-
stofnunar í sérfræðilækniskostn-
aði að fyrir liggi tilvísun frá
heimilislækni. Þetta kerfi var af-
lagt árið 1984 en eftir það gat
hver og einn farið til þess sér-
fræðings sem hann sjálfur kaus.
—HÞ
Ríkið hyggst spara 35-40 milljónir með útboði á farseðlakaupum:
Útboðið brýtur í bága
við reglur IATA og
Fjármálaráðuneytið hefur valið fjórar ferðaskrifstofur sem ráðu-
neytin eiga að beina viðskiptum við vegna kaupa á farseðlum. Fjár-
málaráðuneytið leitaði tilboða frá ferðaskrifstofum í flugfarseðla
fyrir ríkisstarfsmenn og var gert að skilyrði að flogið yrði með Flug-
leiðum.
Ef EES-samningurinn væri kominn
í gildi myndi slíkt skilyrði ekki
standast samninginn. Skarphéðinn
Steinarsson, viðskiptafræðingur í
fjármálaráðuneytinu, segir að við
framkvæmd útboðsins hafi verið far-
ið eftir þeim reglum sem nú gilda.
Hann sagði að ríkið muni spara 35-
40 milljónir á ári vegna þess.
Þær ferðaskrifstofur sem ríkið ætl-
ar að semja við eru Úrval-Útsýn,
Ferðaskrifstofa íslands, Ferðaskrif-
stofa stúdenta og Söludeild Flug-
leiða. Mikil óánægja er meðal stjóm-
enda Samvinnuferða- Landsýn með
að fá ekki að vera með í hópi þeirra
ferðaskrifstofa sem ríkið semur við.
Skarphéðinn sagði að ástæðan fyrir
því að Samvinnuferðir-Landsýn sé
ekki með, væri sú að tilboð Sam-
vinnuferða hefði ekki verið nægilega
gott miðað við önnur tilboð.
Helgi Pétursson hjá Samvinnuferð-
um-Landsýn, sagði að það sé ekki
hægt að veita afslátt með þeim hætti
sem ríkið ætlist til öðruvísi en að
taka hann af sölulaunum. Það sé al-
veg skýrt í samþykktum Alþjóða-
samtaka flugfélaga, IATA, að það sé
óheimilt að bjóða afslátt af sölulaun-
um.
Helgi sagði að Félag ísienskra
ferðaskrifstofa hefði gengið frá sam-
starfsreglum við Flugleiðir um þetta
mál og þannig haft forgöngu um að
reglur IÁTA séu haldnar hér á landi.
Helgi minnti á í þessu sambandi að
fyrir fáum árum hefði lítil ferða-
skrifstofa hér á landi haft uppi til-
burði um að veita afslátt á fargjöld-
um. Flugleiðir hefðu þá brugðist
hart við og hótað aö meina þeim að
selja miða frá þeim.
„Það er ansi hart að fá ekki að vera
með í þessum potti vegna þess að við
erum að halda í heiðri reglur sem
gilda í þessum viðskiptum," sagði
Helgi.
„Við höfum ekki ástæðu til að ætla
annað en að ferðaskrifstofum sé
heimilt að veita magnafslátt til
svona stórra viðskiptavina," sagði
Skarphéðinn og bætti því við að
hann segist ekki hafa ástæöu til að
ætla að hinar ferðaskrifstofurnar
hafl farið að bjóða þetta vitandi um
að þær séu að brjóta IATA-reglur.
Helgi Pétursson sagði að þó að
menn reyni að halda því fram að
ekki sé verið að brjóta IATA-reglurn-
ar, þá geti menn ekki horft framhjá
því að eðli samningsins sé þannig að
hann feli í sér brot á reglunum. Það
sé verið að bjóða út farmiðasölu.
Menn geti í raun og veru ekki keppt
í öðru en í að veita þjónustu.
Ýmsir hafa bent á að útboðsskil-
málar ríkisins stæðust ekki lög ef
EES-samningurinn væri kominn í
gildi, en hann bannar að í útboð sé
sett það skilyrði að einungis megi
beina viðskiptum til eins fyrirtækis.
í þessu tilfelli til Flugleiða. Skarp-
héðinn sagði að þetta væri rétt.
EES-samningurinn sé hins vegar
ekki kominn í gildi og menn fari eft-
ir þeim reglum sem nú gilda. Samn-
ingurinn um farseðlakaupin gildir í
tvö ár og að sjálfsögðu verði hann
ekki endurnýjaður nema að tryggt
sé að hann sé í samræmi við þær
reglur sem þá gilda.
-EÓ