Tíminn - 28.01.1993, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.01.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 28. janúar 1993 Tíminn 7 Verslunarráð og VSÍ mótmæla reglum um VSK-bíla: Aukinn kostnaður, vinnutap og óþægindi Verslunarráð íslands og Vinnuveitendasambandið hafa mótmælt því við við dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra að eigendum svo- nefndra VSK-bfla sé gert skylt að kaupa ný númeraspjöld og koma með bflana til sérskoðunar vegna skipta á númeraspjöldum á eigin kostnað og greiða fyrir þá skoðun. Iðnó endurbyggt Ennfremur leggur Verslunarráðið til að felldar verði úr gildi sérregl- ur fjármálaráðuneytisins umfram almennar reglur í Evrópu um skilgreiningu þessara ökutækja. Þessar sérkröfur lúta m.a. að lengdarmælingu vörurýmis í hlutfalli við heildarinnrými, en breytingar þar að lútandi geta numið allt að 140 þúsund krón- um og þil milli farþegarýmis og vörurýmis, en kostnaður við það getur numið 35-45 þúsund krón- um. En eigendum vask-bíla mun vera gert að greiða 3.750 krónur fyrir hverja númeraplötu, koma með ökutækin á skoðunarstöðvar Bif- reiðaskoðunar íslands hf. með til- heyrandi kostnaði og greiða einn- ig sérstakt skoðunargjald. Af hálfu Verslunarráðsins er dregið í efa að þessi gjaldtaka sé lögmæt og m.a. að hér sé um aft- urvirka gjaldtöku að ræða auk þess sem hér sé um ástæðulaus aukakostnaður sem eigendur við- komandi bifreiða eru látnir bera. Nær væri að skipti á númeraplöt- um fari fram við aðalskoðun við- komandi ökutækja og þá án sér- staks kostnaðar fyrir eigendurna. í mótmælaorðsendingu sinni telur VSÍ að innköllun eldri bif- reiða muni afla Bifreiðaskoðun fslands allt að 7 milljónum í auknar tekjur. Að mati VSÍ eru hvorki efnisleg né lagaleg rök fyr- ir þessum áformum þótt þau komi sér án efa vel fýrir Bifreiða- skoðunina. VSÍ telur einnig að sú lagabreyting sem stuðst sé við miði að því að efla skatteftirlit en Lífsbjörg í Norðurhöfum: Sýnd í sænska TV2 gefi enga heimild til nýrrar gjald- töku. Til að auðvelda skatteftirlit og draga úr skattsvikum vegna svo- nefndra vask-bíla, gaf fjármála- ráðuneytið út reglugerð um síð- ustu áramót þar sem skylt er að hafa sérstök skráningarmerki á sendi- eða vörubifreiðum, með innan við 5 tonna heildarþyngd, ef eigandi hennar óskar eftir að fá endurgreiddan virðisaukaskatt vegna kaupa á bifreiðinni. Jafn- framt hafa þeir sem fengu virðis- aukaskattinn endurgreiddan af samsvarandi bifreiðum fyrir gild- istöku reglugerðarinnar, frest til 1. júlí n.k. til að skipta um skrán- ingarmerki. -grh Áætlað er að veija 110 millj. kr. til endurbyggingar á Iðnó og þar af 40 millj. kr. á þessu ári. Fram- kvæmdum á að vera lokið árið 1994. Gert er ráð fyrir leikstarf- semi Og annarri menningarstarf- semi í húsinu. Á fundi borgarráðs í fyrradag, var áætlun hússtjómar Iðnó sam- þykkt. Hún hljóðar upp á 110 milljónir kr. og á að færa húsið sem næst sinni upprunnalegu mynd. Unnið er eftir hugmyndum Ingimundar Sveinssonar arid- tekts. Þær miða m.a. að því að að- alinngangur hússins verði frá Vonarstræti þar sem hann var upphaflega. Þá verður rifln stein- viðbygging sem var byggð fyrir 60 árum og tengir Iðnó og Iðnskól- ann. í stað hennar kemur gler- skáli. Iðnaðarmannahúsið viö Vonar- stræti, eða Iðnó, var reist af Iðn- aðarmannafélagi Reykjavíkur fyrir hart nær einni öld. Þar var Leikfé- Iag Reykjavíkur til húsa þar tíl fyr- ír fjórum árum. Síðan þá hefur húsið nánast staðið autt og á tímabili var mikil óvissa um fram- tíð þess. Á sfðasta ári eignuðust þijú verkalýðsfélög húsið og gerðu samning við borgaryfirvöld um að borgin legði fram fé tll við- gerða og eignaðist þannig meiri- hlutann í lönó. -HÞ Raunlækkun samsvarar 6,8% Tegund N p2o5 k2o Ca s Verb í jan/júní Verb í júlí Verb í ágúst Verb í sept. Kjarni 33 0 0 2 0 25.320 25.620 25.920 26.200 Magni 1 26 0 0 9 0 21.080 21.320 21.560 21.820 Magni 2 20 0 0 15 0 17.440 1 7.640 17.840 18.040 Móði 1 26 14 0 2 0 28.840 29.160 29.500 29.820 Móði 2 23 23 0 1 0 30.880 31.240 31.580 31.940 Áburbarkalk 5 0 0 30 0 9.580 9.700 9.800 9.920 Blákorn 12 12 17 2,6 7,7 36.660 37.080 37.500 37.920 Græ&ir 1 a 12 12 19 0 6 31.820 32.180 32.560 32.920 Græ&ir 1 14 18 18 0 6 32.440 32.820 33.200 33.560 Græbir 3 20 14 14 0 0 28.740 29.080 29.400 29.740 Græbir 5 15 15 15 1 2 27.700 28.020 28.340 28.660 Græbir 6 20 10 10 4 2 26.960 27.280 27.580 27.900 Græbir 7 20 12 8 4 2 27.300 27.600 27.920 28.240 Græðir 8 18 9 14 4 2 26.320 26.620 26.940 27.240 Græbir 9 24 9 8 1,5 2 28.440 28.780 29.100 29.440 Þrífosfat 0 45 0 0 0 25.820 26.120 26.420 26.720 Kalíklóríð 0 0 60 0 0 23.140 23.400 23.660 23.920 Kalisúlfat 0 0 50 0 17,5 34.020 34.420 34.800 35.200 í ofangreindu verbi er virðisaukaskattur 24,5% innifalinn. Verbið gildir á öllum í febrúar- mánuði Sænska ríkissjónvarpið TV2 hefur ákveðið að taka til sýningar heim- ildamyndina Lífsbjörg í Norðurhöf- um og verður hún sýnd flmmtudag- inn 11. febrúar á besta tíma, eða strax að loknum fréttum. Klukkutíma umræðuþáttur verður að lokinni sýningu myndarinnar í sjónvarpinu og hefúr höfundi myndarinnar, Magnúsi Guðmunds- syni, verið boðið að taka þátt í hon- um. Jafnframt er þess vænst að ein- hverjir fulltrúar Grænfriðunga mæti þar líka, en í myndinni er m.a. greint frá vafasömum starfsaðferð- um Greenpeace fyrirtækisins í fjár- öflunarskyni og ýmsum afleiðingum gerða þeirra. Þetta er í fýrsta sinn sem myndin er sýnd opinberlega í Svíþjóð en út- sendingin sést ekki aðeins í Svíþjóð heldur einnig í Danmörku, Noregi og í stórum hluta Póllands. Til stóð að sýna myndina í TV2 árið 1989 en af því varð ekki þar sem ekki náðist samkomulag milli aðila um fýrirkomulag umræðuþáttar. Nýir dagskrárstjómendur TV2 sáu síðan myndina fyrst í fyrra og fengu þá áhuga á að sýna hana í kjölfar máia- rekstrar Grænfriðunga gegn Magn- úsi Guðmundssyni í Osló. Magnús Guðmundsson býst við hörðum við- brögðum Grænfriðunga vegna sýn- ingar myndarinnar í TV2. —sá höfnum landsins. I Gufunesi er veittur afsláttur kr. 500.- pr. tonn, afgreitt á bíla. a) Staðgreiðsla með staðgreiðsluafslætti sem er 5,6% í febrúar, 4,4% í mars og 3,2% í apríl og síðan 2,0% afsláttur. b) Kaupandi greiði með 10 jöfnum mánaðarlegum greiðslum og hefjist greiðslurnar í febrúar og ljúki í nóvember. c) Kaupandi greiði með 8 jöfnum mánaðarlegum greiðslum og hefjist greiðslurnar í mars o gljúki í október. d) Kaupandi greiði með 6 jöfnum mánaðarlegum greiðslum og hefjist greiðslurnar í apríl og ljúki í september. e) Kaupandi greiði með 4 jöfnum mánaðarlegum greiðslum og hefjast greiðslurnar í maí og ljúki í ágúst. Gjalddagi samkvæmt liðum b) til e) er 25. hvers mánaðar. Gerður skal samningur um lánsviðskipti Vextir reiknast frá og með 1. júlí 1993. Vextir reiknast síðan á höfuðstól skuldar eins og hún er á hverjum tíma fram til síðasta greiðsludags. Vextir skulu vera þeir sömu og afurðalánavextir auglýstir af Landsbanka íslands. Vextir greiðast effirá á sömu gjalddögum og afborganir. Fyrir þeim hluta viðskiptanna sem eru lánsviðskipti skal leggja fram fullnægjandi tryggingu að mati Aburðarverksmiðjunnar, t.d. í formi bankaábyrgðar. ABURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS Sími 91-67 32 00

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.