Tíminn - 28.01.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 28. janúar 1993
Tíminn 9
Raddir
Whispers in the Dark ★* 1/2
Framleiðendur: Michael S. Bregman
og Martin Bregman.
Handrit og leikstjóm: Christopher
Crowe.
Aðalhlutverk: Annabella Sciorra, Jamey
Sheridan, Anthony LaPaglia, Alan Alda,
Jill Clayburgh, John Leguizamo og De-
borah Unger.
Háskólabió.
Bönnuð innan 16 ára.
í auglýsingum um þessa mynd má
lesa að áhorfendur finni hitann úr
Ógnareðli, spennuna úr Meðleigj-
andi óskast og óttann úr Hættuleg
kynni. Það er
nokkuð til í því. í
Röddum í myrkri
er einmitt bland-
að saman nokkrum þekktum form-
úlum og lítið er af frumleika. Hins
vegar er það ódauðlegt efni í kvik-
myndum, sem heldur henni vel
gangandi, því Raddir í myrkri er
fyrst og fremst morðgáta. Allir,
nema ein persóna, geta verið morð-
inginn, og auðvitað leysist gátan
ekki fyrr en í enda myndarinnar.
Annabella Sciorra leikur geðlækni,
sem hefur sjálf átt við vandamál að
stríða. Hún kynnist flugmanninum
Sheridan, sem henni líst mjög vel á,
en kemst að því að hann hefur átt
samskipti við einn sjúkling hennar,
sem er gullfalleg kona. Sjúklingur-
inn kemst að sambandi þeirra, hót-
ar þeim öllu illu, en Sciorra kemur
stuttu síðar að henni látinni. Hún
er komin í heilmikil vandræði, því
konan látna hafði stolið frá henni
skjölum um aðra sjúklinga og getur
það eyðilagt starfsferil hennar, ef
upp kemst. Lögreglumaðurinn LaP-
aglia er hæfur í sínu starfi og er
fljótur að komast að kjama málsins.
í myrkri
Einn af hinum gmnuðu hjá honum
er myndlistarmaður, sem er fyrrver-
andi kynferðisglæpamaður og er
þar að auki einn af sjúklingum Sci-
orra, sem gerir hlutina ekki auð-
veldari fyrir hana.
Christopher Crowe, leikstjóri og
handritshöfundur myndarinnar,
virðist hafa í nógu að snúast þessa
dagana, því ásamt Michael Mann
skrifaði hann handritið að Síðasta
Móhíkananum, sem hefur verið
sýnd í Regnboganum um nokkurt
skeið. Hann hefur
gert hér ágætt
verk, sem skilar
áhorfandanum
ekkert alvarlega þenkjandi út úr
bíóinu, en stenst vel flestar kröfur
um sæmilega skemmtun. Kvik-
myndatakan er góð og að viðbættri
tónlist við hæfi em spennuatriðin
ágætlega útfærð. Annabella Sciorra
kemst ágætlega frá sínu hlutverki,
enda er persóna hennar svipuð
þeirri, sem hún lék í Höndin sem
vöggunni ruggar. Alan Alda, sem
þekktur varð fyrir leik sinn f sjón-
varpsþáttunum Spítalalíf, er gletti-
lega góður í aukahlutverki sem geð-
læknir, sem Sciorra leitar aðstoðar
hjá. Deborah Unger er mjög góð
sem sjúklingurinn sem er myrtur,
og í raun hálfleiðinlegt að hún skuli
deyja svona snemma í myndinni.
Raddir í myrkri kemur manni
skemmtilega á óvart sem prýðisaf-
þreying. Efnið er að vísu keimlíkt
mörgu, sem maður hefur séð í bíó
upp á síðkastið, en myndin er
spennandi og ágætlega leikin.
Orn Markússon
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Halldór Jón Jónas Karen Eria
Almennir stjórnmálafundir
á Austurlandi
Þingmenn og varaþingmenn Framsóknarflokksins á Austurlandi boða til almennra
stjómmálafunda I kjördæminu sem hérsegirá tlmabilinu frá 31. janúartil 11.febni-
ar.
Reyóarfirói: I Verklýðshúsinu sunnudaginn 31. jan. kl. 16.00.
Eskifirði: I Slysavarnafélagshúsinu 31. jan. kl. 20.30.
Neskaupstað: I Egilsbúð mánud. 1. febr. kl. 20.30.
Stöðvarflrði: Félagsheimilið þriöjud. 2. febrúar kl. 20.30.
Breiðdalsvík: Hótel Bláfell miðvikud. 3. febrúar kl. 20.30.
Höfn: Framsóknarhúsið fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.30.
Bakkafiröi: Miðvikudag 10. febrúar kl. 20.30.
Vopnafiröi: Fimmtudag 11. febmarkl. 20.30.
Fundarefni: Atvinnumál — stjómmálaviðhorfið — staða EES- samningsins.
Allir em velkomnir á fundina. Nánar auglýst á viökomandi stöðum. Athugið breytt-
an fundartima á Eskifirði og Fáskrúðsfirði.
Fundarboðendur
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilum sunnudaginn 31. janúar og sunnudaginn 14. febrúar kl. 21.00.
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Framsóknarvist —
Reykjavík
Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag 31. jan. I Hótel
Lind, Rauðarárstig 18, og hefst kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun, karla og kvenna.
Finnur Ingólfsson alþingismaður flytur stutt ávarp I kafRhléi.
Framsóknarfélag Reykjavikur
Finnur
Ingibjörg
Vesturland
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður
og Sigurður Þórólfsson varaþingmað-
ur verða með fundi um stjómmálaviö-
horfið og málefni héraðsins á eftirtöld-
um stöðum:
Mánudagur 1. febr. n.k.: I Logalandi
kl. 14.00 og I Lyngbrekku kl. 21.00.
Miðvikudagur 3. febr. n.k.: I Félags-
heimilinu Suðurdölum kl. 14.00 og I
Breiðabliki kl. 21.00.
Fimmtudagur 4. febr. n.k.: I Röst,
Hellissandi, kl. 21.00.
Sigurður
Enginn skiptir sér nú af framtíöaráformum blökku feguröardísarinnar og hvíta veitingahússeigandans.
Hvítu forsætisráðherra-
hjónin vildu hana ekki
sem tengdadóttur
Erica Adams, blökk fegurðar-
dís og fyrrum fegurðardrottn-
ing í Suður-Afríku, komst í
heimsfréttimar þegar trúlofun
hennar og sonar forsætisráð-
herra landsins, Willem de
Klerk, var opinberuð. Þau
höfðu verið saman í rúm tvö
ár áður en sambandið var gert
opinbert.
Foreldrar Willems brugðust
þannig við að þau kölluðu Er-
icu inn á teppið í embættisbú-
stað forsætisráðherra í febrúar
fyrir ári — Willem var þá ekki
í landinu — og sögðu henni
skýrt og skorinort að ekkert
gæti orðið úr hjónabandinu
vegna litarháttar hennar. Hún
yrði þó sjálf að taka af skarið,
þar sem Willem treysti sér
ekki til þess.
Erica hitti frúna ekki oftar,
en forsætisráðherrann kallaði
hana aftur á sinn fund og ít-
rekaði afstöðu þeirra hjóna.
Að lokum gafst Erica upp,
enda segir hún að óbærilegt
hefði verið að lifa við allan
gauraganginn í kringum trú-
lofunina og óvild fjölskyldu
Willems.
En nú hefur á ný heldur bet-
ur birt til í lífi Ericu. Hún hef-
ur kynnst veitingahússeigand-
anum Nino Zanasi og sam-
rýndri fjölskyldu hans, sem
hefur tekið Ericu opnum örm-
um. Hann er 52 ára, en hún
26, og hefur búið í Suður-Afr-
íku í 28 ár.
Raunum Ericu virðist lokið
og hún segist vera ákaflega
ánægð með lífið og tilveruna
þessa dagana, enda sé Nino
þroskaður maður, rólyndur og
traustur. Og ekki sé það verra
að þau eiga mörg sameiginleg
áhugamál, ekki síst ást á leik-
húsi og kvikmyndum.
m
Erica Adams og Willem de Klerk voru trúlofuö, enEW.de Klerk og
Marika kona hans böröust af alefli gegn því aö úr því yröi hjóna-
band.
Nino Zanasi setur ekki fyrir sig aö Erica er af öörum kynþætti, og
hún setur ekki fyrir sig aö hann er 26 árum eldri en hún.