Tíminn - 13.03.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.03.1993, Blaðsíða 1
Þórður H. Hilmarsson, forstjóri Globus, og Magnús Ingþórsson, forstöðumaður búvéladeildar Globus: „Salan er upphaf samstarfsins" Globus hf. á sér liðlega 30 ára feril sem innflytjandi búvéla og hefur löngum haft frumkvæði að kynningu tækninýjunga á sviði landbúnaðartaekja. Tíminn ræddi við þá Þórð H. Hilm- arsson forstjóra og Magnús Ingþórsson sölustjóra. „Það er mark- mið okkar hjá Globus að styðja við bakið á íslenskum landbúnaði með því að leitast við að hafa á boðstólum vélar og tæki í hæsta gæóaflokki og á viðráðanlegu verði, þannig að það skili hámarksarði til viðskiptavina okkar. Þannig teljum við að við getum best stuðlað að aukinni samkeppnishæfni landbúnaðarins á því mikla breytinga- skeiði sem framundan er,“ sagði Þórður H. Hilmarsson. Globus hf. á sér liðlega 30 ára feril sem innflytjandi búvéla og hefur löngum haft frumkvæði að kynningu tækninýjunga á sviði landbúnaðar- tækja. Tíminn ræddi við þá Þórð H. Hilmarsson forstjóra og Magnús Ing- þórsson sölustjóra. „Það er markmið okkar hjá Globus að styðja við bakið á íslenskum land- búnaði með því að leitast við að hafa á boðstólum vélar og tæki í hæsta gæðaflokki og á viðráðanlegu verði, þannig að það skili hámarksarði til viðskiptavina okkar. Þannig teljum við að við getum best stuðlað að auk- inni samkeppnishæfni landbúnaðar- ins á því mikla breytingaskeiði sem framundan er,“ sagði Þórður H. Hilmarsson. Verð lægra hér en erlendis Þórður sagði ennfremur að verð á þýðingarmiklum tækjum til land- búnaðar væri í mörgum tilfellum lægra hér á landi en á meginlandi Evrópu, og það væri eingöngu að þakka virkri samkeppni á milli inn- flytjenda. „Við sjáum engar breyting- ar verða á þessu sviði í náinni framtíð og teljum reyndar að samkeppni eigi eftir að harðna enn frekar með minnkandi tækjaljárfestingu í land- búnaðinum," sagði Þórður. Globus hefði á undanfömum árum styrkt stöðu sína á þessum markaði og búið sig af kappi undir framtíðina. „Heildarlausn með til- komu Alfa-Laval-um- boðsins“ „Við leggjum áherslu á að vera fær- ir um að bjóða bændum heildarlausn við búreksturinn. f reynd getum við boðið vömúrval sem nær yfir mest alla tækjaþörf jafnt innan dyra sem utan. Það var okkur mikið fagnaðar- efni að vera valdir til þess að taka við Alfa-Laval- umboðinu í byrjun þessa árs og má segja að með þessu umboði höfum við nálgast markmiðin um heildarlausn íyrir bóndann all veru- lega,“ sagði Þórður. Reyndar mun Globus brydda upp á ýmsum nýjungum í þjónustunni við Alfa-Laval-viðskiptavini. Ber þar hæst að nú er að hefjast tilraun með fyrirbyggjandi viðhald á mjaltakerf- um, sem við teljum að muni leiða til talsverðrar lækkunar á viðhalds- kostnaði þeirra, auk þess sem mjólk- urgæðin munu enn aukast. „Við er- um afskaplega ánægðir með þau við- brögð, sem þetta þjónustutilboð hef- ur fengið, og gerum ráð fyrir að sú verðlækkun, sem næst á varahlutum frá framleiðanda með þessu fyrir- komulagi, fari beint til bóndans. Raunar hefúr okkur tekist að fá verð- lækkun á mikilvægum varahlutum sem og á rekstrar- og fjárfestingar- vörum af ýmsu tagi. Sem dæmi má nefna stórfellda lækkun á sogskipt- um, þvottavélum, básamottum og Magnús Ingþórsson, forstööu- maöur búvéladeildar Globus, og Þóröur H. Hilmarsson, forstjóri Glóbus, fyrir framan eina Fiatagri- dráttarvél. Tímamynd Ámi Bjama fleira,“ sagði Þórður H. Hilmarsson forstjóri. „Salan er upphaf sam- starfs“ Magnús segir að Globus leggi mikla áherslu á að salan á tækinu marki í raun upphaf samstarfs, en ekki lok viðskiptanna. „Þetta kemur fram í þeirri viðleitni okkar að rækja þjón- ustuþáttinn í samræmi við þarfir við- skiptavinar okkar og tryggja að tækið nýtist honum út líftímann. Globus hefur í tímans rás komið sér upp um- fangsmiklu sölu- og þjónustuneti. Við viljum vera þekktir fyrir góða þjónustu og teljum umboðsmenn okkar vera þýðingarmikla hlekki í þjónustunni á hverjum stað. Hið mikla umfang varahlutaverslunar Globus og okkar eigin þjónustuverk- stæðis skapar viðskiptavinum okkar mikilvæga tryggingu fyrir rekstrar- öryggi og ósjaldan hefur það verið svo að þekking starfsmanna og um- boðsmanna okkar hefur skipt sköp- um við lausn bráðaviðgerða þegar mikið hefur legið við,“ sagði Magnús Ingþórsson. Hann sagði þekkingu starfsmanna þeirra staðgóða og fjárfestingu í þjálf- un þeirra og umboðsmannanna hafa gert þeim framar öllu kleift að styrkja samkeppnisstöðu sína á undanföm- um árum. Nýr Fiatagrí Globus mun með vorinu kynna nýja

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.