Tíminn - 13.03.1993, Page 7

Tíminn - 13.03.1993, Page 7
FRÁ VÉLBOÐA HF. VÉLBOÐA RÚLLU- BAGGAVAGNINN Undanfarin Ijögur ár hefur Vélboði hf. í Hafnarfirði unnið að þróun og smíði á rúllubaggavagni sem getur tekið plastaðar rúllur upp af túni og skilað þeim af sér heim við hlöðu án þess að skemma plastið. Vagninn er núna tilbúinn til sölu og markaðssetningar, enda hefur verið lokið við allar styrkleika- og vinnsluprófanir sem taldar hafa verið nauðsynlegar. Vagninn er mjög auðveldur í vinnslu og því á færi hvers og eins að vinna með honum. Öll stjórnun er framkvæmd úr ekilssæti með rafstýrðum búnaði sem haldið er í annarri hendi. Þeim búnaði má líkja við stjómbúnað fyrir rafmagnsspil. Stjómkerfið er byggt upp fyrir 12 V rafkerfi. Vökvatjakkar em notaðir til að framkvæma alla vinnu sem þarf til að nota vagninn, enda em þeir í hópi þess vélbúnaðar sem hefur hvað lægsta bilanatíðni vélbúnaðar. Einnig er mjög auðvelt og ódýrt að halda þeim við. Algjörlega sjálfvirkur búnaður sér um að stjórna því hvenær og hvemig allir tjakkar eiga að vinna. Óflugur lyftiarmur með þrem fingmm, tengdur tveim öflugum vökvatjökkum, lyftir rúllunni upp af túninu og upp á vagninn mjög auðveldlega. Þegar armurinn er látinn síga niður fýrir rúiluna, fjariægjast fingurnir sjálfkrafa hvorn annan. Við það verður auðveldara að keyra að rúllunni án þess að valda skemmdum á plastinu. Þegar rúllunni er lyft upp á vagninn, dragastfing- urnir fyrst saman í fyrri stöðu. Síðan gengur stuðningsarmur sjálfvirkt niður með lyftaraarminum, til þess að halda á móti er rúllan lyftist upp á vagninn. Með því að nota þennan sjálfvirka stöðuarm, má losna við að fergja vagninn niður hinum megin, svo hann velti ekki á hliðina, enda er gert ráð fyrir að arm- urinn geti lyft rúllum sem eru allt að 1200 kg. Sjálfvirk færsla færir rúllurnar aftur eftir vagninum þar til hann er orðinn fullur. Aftan á vagninum er vökvastýrður gafl, sem vamar því að rúllur geti dottið af á keyrslu. Einnig er hann notaður sem renna við losun og til þess að stjórna því hvort rúllan eigi að lenda á endanum eða hliðinni. Auðvelt er að tengja vagninn við hvaða dráttarvél sem er. Undir beislinu er þriggja þrepa stöðufótur, og aðeins þarf að tengja tvær vökvaslöngur til þess að mynda hringstreymi fyrir stjómbúnaðinn. Breið flotdekk eru notuð undir vagninn, og geta menn valið um einfalda eða tvöfalda hásingu. Vagninn er hannaður til þess að þola álag við islenskar aðstæður. Vagninn var afkastaprófaður síðastliðið sumar. Tínt var af túni sem var í um þriggja kilómetra fjariægð frá hlöðu, og notuð var til verksins 80HK. dráttarvél með 40KM gírkassa. Keyrt var eftir malarvegi út að túninu. Með því að tína fimm rúllur upp, sem allar vógu um 900 kg hver, keyra þeim heim að hlöðu og losa þar, tók ferðin rétt um fimmtán mínútur. Þetta gefur ti! kynna að á einum tíma má sækja um tuttugu rúllur miðað við þessa flariægð, sem gerir um 18 tonn, eða sem svarar 500 heyböggum af eldri gerðinni. VELJIÐ ÍSLENSKT VÉLBOÐA mykjudreifarar í dag hefur fyrirtækið náð stærsta hluta markaðarins á Islandi í sölu á mykjudreifurum. VELBOÐA mykjudreifaramir og VÉLBOÐA snekkjudæluðreifar- amir eru nú allsráðandi á markað- inum í dag við góðan orðstír. Má þar til helst þakka að þeir em fram- leiddir í mörgum stærðum og gerð- um þannig að alltaf má finna út- færslu sem hentar hverjum og ein- um. Einnig notar fyrirtækið skipa- stál í tankana sem kemur í veg fyrir sýrutæringu, þetta tryggir lengri endingu og minna viðhald. VELBOÐA snekkjudæludreif- arinn er nú sem stendur mikið að sækja á og má ætla að um helming- ur sölu mykjudreifara fyrirtækisins séu þannig. Helstu kostir snekkjudæludreifarans eru þeir að hann má nota til að hræra upp í haughúsi, taka úr því og dreifa á völlinn. Einnig er hann ekki háður því að aðstæður þurfi að vera eitthvað sérstakar svo hægt sé að koma honum við. Snekkjudælu- dreifarinn hefur líka reynst mjög vel til að taka úr kjöllurum fjár- húsa. I dag framleiðir fyrirtækið allar gerðir í stærðunum 4, 5, 6, 8 og 10 þúsund lítra og geta menn valið úr ýmsum stærðum af dekkjum, frá 290x15 til 500x26,5, einnig tvöfald- ar hásingar. VÉLBOÐA rafgirðingar Vélboði hf. hefur undanfarandi ár verið leiðandi á íslenskum markaði með efni til rafgirðinga. Fyrirtækið hefur boðið upp á fyöl- breytt val af úrvals vöru til þeirra hluta, ásamt ráðgjöf við uppsetn- ingu rafgirðinga. Við Boða rafgirðingar hefur Vélboði hf. selt undanfarin ár með góðum árangri GRAND spennu- gjafa, þeir hafa verið boðnir í ýms- um gerðum og stærðum. Verð spennugjafanna miðað við styrk- leika er eitt það besta sem gerist á markaðinum í dag, enda tekur fyr- irtækið þá beint af framleiðanda í Danmörku og selur milliliðalaust. Fyrirtækið selur einnig efnis- mikla rafgirðingaharðviðarstaura sem mikil reynsla er komin á hér á landi, ásamt galvaniseruðum há- gæðastálvír með miklu slitþoli. Bændur eru hvattir til að kynna sér kosti Vélboða tækjanna, því verðið kemur þægilega á óvart. KJÖRORÐ FYRIRTÆKISINS ER: Sjáirðu vörufrá Vélboða, geturðu treyst henni VÉLBOÐI HF. HVALEYRARBRAUT 2 . HAFNARFIRÐI. SÍMI651800

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.