Tíminn - 16.06.1993, Qupperneq 3
Miðvikudagur 16. júní 1993
Tíminn 3
Stokkið
í teygju
Deildar meiningar um sjávarútvegsstefnuna á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins:
Alþýðubandalagiö telur að
kvótakerfið hafi brugðist
Miðstjóm Alþýðubandalagsins telur að núverandi stjórnkerfi fisk-
veiða hafi bmgðist í veigamiklum atriðum. Menn vom ekki sam-
mála á fundinum um hvaða kerfi ætti að taka við af núverandi kerfi.
Ályktun fundarins ber þess nokkur merki, en í henni er lögð
áhersla á að sköpuð verði samstaða með þjóðinni um heildstæða
stefnu í sjávarútvegsmálum.
í ályktun miðstjómar segir að
meðan á endurskoðun fiskveiði-
stefnunnar standi skuli tekið á þeim
vandamálum sem frjálst framsal
kvóta hefur skapað með reglum sem
takmarka það, m.a. þannig að for-
kaupsréttur sveitarfélaga verði lát-
inn ná til aflaheimilda en ekki ein-
ungis til skipa og athuga skuli hvort
aflaheimildir eigi að renna til ríkis-
ins við gjaldþrot til að þeim megi
ráðstafa með tilliti til atvinnusjónar-
miða.
Lagt er til að viðhaldið verði frjáls-
um aðgangi smábáta til veiða með
eðlilegum takmörkunum.
Megintillaga fundarins er að fram-
tíðarstefna í stjóm fiskveiða verði
mótuð í samráði við alla stjómmála-
flokka og hagsmunaaðila og að þessi
nýja stefna verði lögfest sem gmnd-
vöílur nýrrar sjávarútvegsstefnu fyr-
ir lok næsta fiskveiðiárs.
Á miðstjórnarfundinum vom stað-
festar reglur um kosningu for-
manns og varaformanns Alþýðu-
bandalagsins í samræmi við breyt-
ingar á lögum flokksins sem sam-
þykktar vom á síðasta Iandsfundi.
Samkvæmt hinum nýju reglum
mun fara fram skrifleg kosning
meðal almennra flokksmanna um
forystu flokksins þegar dregur að
landsfundi. -EÓ
Teygjustökk verður aftur í boði í
sumar en stærsta og þekktasta
teygjustökksfyrirtækið í heiminum,
World Bungee, hefur í hyggju að
bjóða upp á slíkt í samvinnu við
„Tveir með öllu“ á Bylgjunni. -GKG
Listahátíð í Hafnarfirði:
Konan hans Guðs
og G-bletturinn
Pé-leikhópurinn fmmsýnir tvö leikrit
á Listahátíð í Hafnarfirði í kvöld.
„Konan hans Guðs“ heitir það fyrra
og er eftir Kristínu Ómarsdóttur. Hið
síðara er eftir Áma Ibsen og heitir
„Knútur og Emma, Gummi og Góa“
eða „G-bletturinn“.
Andrés Sigurvinsson leikstýrir verk-
unum. -GKG.
Gróður á hálendi allt að hálfum mánuði seinna á
ferðinni en í venjulegu árferði:
Mikil snjóalög
á hálendinu
„Gróður tekur seinna við sér en venjulega um allt land og er allt að
hálfum mánuði seinni á ferðinni á hálendinu," segir Sveinn Run-
ólfsson landgræðslustjóri og telur að umferð um hálendi tefiist af
þeim sökum en þar eru enn mikill snjóalög. Hann óttast helst að
bleyta verði ekki farin úr jörðu í upphafi ferðamannatímans.
„Þar er hins vegar raki í jörðu þó
að efsta yfirborð sé orðið þurrt. Þeg-
ar hlýnar vonar maður að gróður
taki fljótt við sér. Þar er allur gróður
svona hálfum mánuði á eftir því sem
gerist í venjulegu árferði," segir
Sveinn.
Það fylgja því samt kostir að snjó
taki seint upp á hálendi að mati
Sveins. „Við erum alsælir með að
enn sé snjór á hálendinu því þá
verður þar ekki uppblástur á með-
an,“ segir Sveinn.
Sveinn bendir á að síðasti mánuður
hafi verið landsmönnum erfiður
hvað uppblástur varðar. „Það var
mjög vindasamt. Á Suðurlandsund-
irlendinu var æði oft mikið mold-
rok, sérstaklega í Ámessýslu, og þá
vorum við þakklátir forsjóninni fyrir
þau snjóalög sem ennþá voru á
sunnlenskum afréttum, annars
Óháða listahátíðin:
Ball langt
fram á nótt
Tónleikar verða í Faxaskálanum í
kvöld á vegum Óháðu listahátíðar-
innar.
Þær hljómsveitir sem koma fram eru
Mug, Blimp, Bölmóður, Fallega gul-
rótin, trúbadorinn Þór, Óskýrt, Pan-
demorium, Synir Raspútíns og Síðan
skein sól.
Leikið verður til kl. 3.00 enda eiga
flestir frí daginn eftir. Meðal þeirra
eru aðstandendur Óháðu listahátíðar-
innar en að loknum þjóðhátíðardeg-
inum heldur hátíðin áfram. -GKG.
hefði farið hræðilega illa,“ segir
Sveinn.
Hann segir að talsvert hafi borið á
uppblæstri á Mývatnsöræfum. „Þar
er búið að vera mjög þurrt í maí og
það sem af er júní,“ segir Sveinn.
Nýlega var Sveinn á ferð í nágrenni
Grímsstaða á fjöllum. „Þar var einn-
ig mjög þurrt og ég lenti í grenjandi
sand- og moldroki," bætir hann við.
Bændur reka almennt fé sitt á af-
rétt í byrjun júlí og á Sveinn ekki
von á öðru en það eigi eftir að ganga
þrátt fyrir ástand hálendisins nú.
-HÞ
VEIÐAR HÓFUST I ELLIÐAÁM í gær og hér er Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagnsstjóri með stöng-
ina á lofti undir niðandi umferðinni. Hann var búinn að krækja í silung en laxinn lét bíða eftir sér.
Timamynd Ami Bjama
Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu í Malaví breyta miklu um áfram-
haldandi þróunaraðstoð að sögn Þrastar Ólafssonar:
Bein samskipti við
Malaví hugsanleg
„Við höfum aldrei í stjóm Þróunarsamvinnustofnunar gefið nein
fyrírheit um það að við myndum halda áfram aðstoð við Malaví eft-
ir að núverandi samkomulag, sem við gerðum samkvæmt beiðni
Norðuríandanna, rynni sitt skeið á enda.
Við tökum afstöðu til þess þegar þar
að kemur,“ segir Þröstur Ólafsson,
aðstoðarmaður utanríkisráðherra, í
samtali við Tímann. Eins og blaðið
greindi frá í gær er lagt til, í úttekt á
verkefni ÞSSÍ í Malaví, að stofnunin
haldi áfram aðstoð sinni eftir að
henni á ljúka árið 1994, annars
muni starfsemi sú, sem Islendingar
hafa haft umsjón með í Malaví, lam-
ast.
Samkvæmt fréttum f gær beið
Hastings Kamazu Banda, einræðis-
herra í Malaví, lægri hlut fyrir lýð-
ræðissinnum í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Hverju breytir sú niður-
Kvennalistakonur vilja
fá aö stjórna
„Nýir hugmyndavindar þurfa að blása um íslenskt samfélag
meö tilheyrandi pilsaþyt og er löngu tímabært að Kvennalista-
konur komlst þangað sem ráðum er ráðið,“ segir í orðsendingu
frá Kvennalistanum um niðurstöður vorþings listans að Núpi í
Dýrafirði um helgina. Á þinginu kom fram sterkur vilji Kvenna-
listakvenna til þess að taka sæti í næstu ríkisstjórn.
Jívennalistakonur treysta núver- framtíðar og undirbúa þá stórsókn
andi ríkisstjóm ekki til þess að jafna sem þarf að hefja í atvinnumálum,"
áfallinu réttlátlega niður á lands- segir ennfremur í orðsendingunni.
menn og enn síður til að horfa til Á þinginu var einnig rætt um
væntanlegar sveitarstjómakosning-
ar og var samþykkt sérstök ályktun
þar sem skorað er á konur að gefa
kost á sér í sveitarstjómir. í umræð-
um um heimsmálin var niðurstaða
kvennanna sú að losa þyrfti íslenska
utanríkisstefnu úr „hlekkjum kalda
stríðsins og skilgreina upp á nýtt
það hlutverk sem við ætlum okkur í
samfélagi þjóðanna". GS.
staða varðandi þróunaraðstoð ís-
lendinga við Malaví? „Þessi niður-
staða gerir það að verkum að við
getum hugsanlega farið að taka upp
bein samskipti við stjómvöld í Mal-
aví,“ segir Þröstur. „Þetta er fátæk-
asta land í heimi og fólkið bráðvant-
ar þekkingu og aðstoð. Niðurstaðan
getur leitt til þess að við getum farið
að ræða beint við stjómvöld í stað
þess að vera þama að framkvæma
hluti samkvæmt beiðni Norðurland-
anna og Alþjóðabankans, eins og við
erum að gera núna.“ GS.
Fataþurfi
ræningi
Brotist var inn í íbúð á Laugavegin-
um um kl. 8.30 í gærmorgun.
Þjófurinn hafði með sér skiptimynt
og föt og hefur hann enn ekki náðst.
Ekki er vitað hvemig hann komst
inn í íbúðina.
-GKG.
Embættin
ogJón
Sæmundur
„Að birta frétt af deildarstjóra-
stöðu minni, sem ég hef haft
óslitið frá því 1977, sem æsifrétt
á árinu 1993, er nú svolítið grá-
mosalegt," segir Jón Sæmundur
Sigurjónsson, fyrrverandi alþing-
ismaður Alþýðuflokks, í bréfi sem
birtist í Tímanum í gær. Þar fett-
ir Jón fingur út í nýbirta úttekt
Tímans á embættisveitingum Al-
þýðuflokksmanna á kjörtímabil-
inu.
„íslenskir samtíðarmenn", nýút-
komið rit sem lítil ástæða er til að
véfengja, greinir svo frá að Jón
Sæmundur hafi hlotið stöðu sér-
fræðings við heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið og embætti for-
manns Tryggingaráðs árið 1991,
en því er einmitt haldið fram í út-
tekt Tímans. Hinu er ekki mót-
mælt að Jón Sæmundur hafi
gegnt stöðu deildarstjóra á árun-
um 1977-1987.
Þá fengust einnig þær upplýsing-
ar hjá starfsmannaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins að Jón Sæ-
mundur er ekki titlaður deildar-
stjóri á launaskrá heldur yfirhag-
fræðingur.
Það virðist því vera einhverjum
vafa undirorpið hvort Jón Sæ-
mundur hefur gengt stöðu deild-
arstjóra óslitið frá 1977, eins og
hann heldur fram, og má vera að
sú sannfæring hans sé grámosa-
leg. GS.