Tíminn - 16.06.1993, Qupperneq 9
Miðvikudagur 16. júní 1993
Tíminn 9
Vinningshafamir ígetrauninni við afhendingu verðlaunanna. Aukþess eru á
myndinni Grétar Haraldsson og Sigurður Jónsson fulltrúar Eurocard, Pétur
Ómar Ágústsson fulltrúi Flugleiða og Kari Sigurfyartarson fuUtrúi FÍF.
ATLAS-klúbburinn dregur úr bónusferðir sumarsins
1. júní sl. voru dregnar út Sumarbónusferðir ATLAS-klúbbs Félags íslenskra ferða-
skrifstofa. Að þessu sinni féllu vinningar þannig:
Leifur Guðmundsson, Reykjavík, ferð til Mallorca á vegum Úrvals-Útsýnar. Sonja Han-
sen, Hveragerði, ferð til Costa del Sol á vegum Úrvals-Útsýnar. Kristinn Ármannsson,
Sandgerði, ferð til Mallorca á vegum Samvinnuferða-Landsýnar. Hildur Egilsdóttir,
Akureyri, ferð til Newcastle á vegum Ferðaskrifstofúnnar Alís. Þórhalla Haraldsdóttir,
Kópavogi, gisting á Edduhóteli á vegum Ferðaskrifstofu íslands. Ásgeir Jóhann Krist-
jánsson, Reykjavík, ferð til Glasgow á vegum Ferðaskrifstofunnar Ratvís. Börkur Gísla-
son, Hafnarfirði, ferð til London á vegum Ferðaskrifstofu stúdenta. Jónína Ásbjöms-
dóttir, Reykjavík, ferð til Benidorm á vegum Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Snjólaug
Amardóttir, Kópavogi, ferð til Þýskalands á vegum Ferðaskrifstofúnnar Ferðabær.
Allir vinningamir gilda fyrir tvo.
Þetta er í fjórða sinn sem Bónusvinningar ATLAS-klúbbsins em dregnir út, en næst
verður dregið í haust og þá um 7 ferðavinninga á vegum Flugleiða.
Bónusferðir eru aðeins hluti þeirra fríðinda sem fylgja aðild að ATLAS-klúbbi FÍF, en
í honum em allir handhafar ATLAS-korta og Gullkorta Eurocard.
Iðntæknistofnun:
Barneignarfréttir
frá Hollywood —
og óvissar fréttir
Þaö fer ekkert á milli máta aö Mádchen Amick og sambýlismaöur hennar
DavidAlexis eiga von á erfingja.
Sumarsýning í Safni
Ásgrims Jónssonar
Sumarsýning hefur verið opnuð í Safni
Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74.
Eins og venja er á sumrin er þar sýnt úr-
val mynda eftir Ásgrím, sem veita mönn-
um innsýn í heildarstarf hans. í vinnu-
stofu listamannsins em landslagsmynd-
ir, bæði olíu- og vatnslitamyndir, en á
heimili hans em aðallega blómamyndir
og uppstillingar auk nokkurra þjóð-
sagnamynda.
" Safn Ásgríms Jónssonar er opið alla
daga nema mánudaga yfir sumarmánuð-
ina, kl. 13,30-16.
Fjölskykluleikur Ölgeróarinnar
Egils Skallagrimssonar
Nú stendur yfir skemmtilegur fjöl-
skylduleikur á vegum ölgerðar Egils
Skallagrímssonar með stórglæsilegum
vinningum. Leikurinn heitir „Náðu þér í
*trik“ og stendur til 7. júlf.
„Náðu þér í strik“ er léttur og einfaldur
leikur sem gengur út á að þátttakendur
safha 10 strikamerkjum af Pepsi og/eða
7-Up plastflöskum og svara þremur létt-
um spumingum á sérstökum þátttöku-
seðli, sem hægt er að nálgast á öllum
sölustöðum Pepsi og 7-Up. Þátttakendur
eiga síðan að senda strikamerkin og seð-
ilinn til ölgerðarinnar og eiga þar með
kost á að fá einhvem þessara vinninga:
A. Conway tjaldvagn frá Titan hf. að
verðmæti 330.000 kr. með fullkomnum
viðlegubúnaði, samtals að verðmæti
405.000 kr. B. 10 fjallahjól og seglbretta-
námskeið f Seglbrettaskólanum Hafra-
vatni. C. 100 nýir geisladiskar með stór-
sveitunum GCD og SSSól.
Skilafrestur f leiknum er til 7. júlí og þá
verður dregið úr nöfnum þátttakenda.
Úrslit í leiknum verða síðan birt f dag-
blöðum.
9. bókin un Galdrameistarann
Út er komin 9. bókin í bókaflokknum um
Galdrameistarann eftir Margit Sandemo,
höfund ísfólksins. Líkt og fyrri bækur •
fjallar þessi um hina eilífu baráttu góðs
og ills og ber hún nafnið Engill í vanda.
Inn í söguþráðinn tvinnast persónur úr
ísfólkinu sem allir þekkja, vinsælasta
bókaflokki sem út hefúr komið hérlendis
sem og á öðrum Norðurlöndum.
Galdrameistarinn á upphaf sitt að rekja
til íslands og hefur höfundur margoft
ferðast hingað f efnisleiL Hún var hér
síðastliðið sumar í fylgd hóps mynda-
tökumanna frá norskri sjónvarpsstöð og
var gerður sjónvarpsþáttur um staði sem
tengjast göldrum og galdratrú. Þáttur
þessi var nýlega sýndur í Noregi við góð-
ar undirtektir. Margit Sandemo mun enn
á ný heimsækja ísland í sumar, þvf eins
og hún segir sjálf: „Mér þykir vænt um
ísland og ég get fullvissað ykkur um að
sú tilfinning er ekta. Ég verð aldrei
þreytt á að ferðast um þetta land þar sem
andstæðumar eru á hverju strái. Þar fæ
ég innblástur auk þess sem einhverja
dulúð er að finna undir næstum hverj-
um steini."
Útgefandi er ísfólkið bókaútgáfa, Sfðu-
múla 21.
Nýskðpun er hugvit
til hagvaxtar
Sveinbjörg Brynjólfsdóttir vann f sam-
keppni sem Iðntæknistofnun efndi til
um skilgreiningu á hugtakinu nýsköp-
un. Tillaga hennar er að nýsköpun verði
best skilgreind með orðunum hugvit Hl
hagvaxtar.
Samkeppnin fór fram meðal um 1.200
gesta sem heimsóttu Iðntæknistofnun á
Opnu húsi 9. maf sl. f tilefni af 15 ára af-
mæli stofnunarinnar. Verkefni Iðn-
tæknistofnunar tengjast meira eða
minna nýsköpun í atvinnulífinu og því
þótti við hæfi að fá mat gesta á hvaða
skilning þeir leggja f hugtakið. Fjöldi
snjallra hugmynda kom fram.
Samkeppnin var bæði til gamans gerð
og jafnframt til að finna eina kjamyrta
skilgreiningu sem fæli í sér hvað nýsköp-
un í atvinnulífinu er. Tillögumar vom
síðan metnar af hópi manna sem tengj-
ast iðnaði á íslandi á einn eða annan
hátt Hugtakið nýsköpun er mikið notað
í umræðu um fjölbreyttara atvinnulíf, en
merking þess er ekki alltaf sú sama. Skil-
greiningin sem var valin felur í sér að
með því að virkja hugvitið sem býr í
þjóðinni verði hagvöxtur aukinn. Iðn-
tæknistofnun mun hafa skilgreiningu
Sveinbjargar að leiðarljósi og nota hana í
auglýsingum og í kynningarritum á veg-
um stofnunarinnar.
í viðurkenningarskyni var Sveinbjörgu
fært eintak af þeim 5 bókum sem Iðn-
tæknistofnun hefur gefið út á undan-
fomum árum og handgerður, fslenskur
kertastjaki.
Á Opnu húsi Iðntæknistofnunar vom
gestir einnig beðnir að velta vöngum og
taka afstöðu til nokkurra fyrirfram
ákveðinna skilgreininga á hugtakinu ný-
sköpun. Langflest atkvæði fékk eftirfar-
andi skilgreining:
„Nýsköpun felst í því að hlúa að og
hrinda í framkvæmd nýjum framleiðslu-
og markaðshugmyndum eða finna göml-
um nýjan farveg."
Orð em til alls fyrst og skilgreiningar
góðar áður en ráðist er í framkvæmdir.
Erla B. Axelsdóttir sýnir í
Slunkaríki á ísafirói
Á þjóðhátfðardaginn 17. júnf kl. 16 opn-
ar Erla B. Axelsdóttir sýningu á verkum
sínum í Slunkaríki á ísafirði.
Erla hefur haldið sjö einkasýningar.
Síðast sýndi hún í Listasafni ASÍ við
Grensásveg í október 1992. Jafnframt
hefur Erla tekið þátt í samsýningum hér
heima og erlendis.
Erla starfrækir Art-Hún gallerf og
vinnustofur ásamt fjórum öðmm lista-
konum að Stangarhyl 7 f Reykjavík. Art-
Hún hópurinn opnaði samsýningu í
Poppay Museum í Saratoga Springs í
New York-fylki í Bandaríkjunum 5. júnf
s.l. Þetta er önnur samsýning hópsins f
Bandaríkjunum, en áður sýndu þær
stöllur í John Almquist Gallery í Chicago
í nóvember á sfðastliðnu ári.
Á sýningu Erlu f Slunkaríki em olíu-
málverk og pastelmyndir unnar á undan-
fömum 2-3 ámm. Sýningin stendur til
ll.júlí.
Það er vinsælt um þessar
mundir í Hollywood að eignast
böm og nú er vitað með vissu
um enn eina fjölskylduaukning-
una. Leikkonan Mádchen Am-
ick, sem fræg varð í Tvídröng-
um, á von á öðru bami sínu og
kærastans Davids Alexis,
söngvara og lagasmiðs. Fyrir
eiga þau tæplega ársgamlan
strák.
Hins vegar liggur ekki eins
ljóst fyrir hvort satt er að þau
Clint Eastwood og sambýliskona
hans, leikkonan Frances Fisher,
eigi raunverulega von á barni
eða hvort orðrómurinn um það
sé aðeins settur á kreik til að
auglýsa nýjustu mynd hennar,
„Baby Fever", en sagt er að leik-
konan fertuga vænti sín í nóv-
ember. Þau Clint hafa verið óað-
skiljanleg í þrjú ár. Hann á fyrir
tvö uppkomin böm.
Þegar Clint stóð í sigurstríðinu
um Óskarinn í vor (hann
hreppti tvenn fyrir mynd sfna
Hinir vægðarlausu), var mjög
sterkur kvittur uppi um að trú-
lofunaropinberun lægi í loftinu.
En þegar engin tilkynning var
gefin út um það, þótti líkleg
skýring að verðlaunafárið hefði
haft áhrif þar á.
Clint er þekktur að því að vera
ekkert að tala af sér, en djúp
merking er gjama lögð í þau fáu
orð sem hann lætur út úr sér.
Þess vegna þykir eftirfarandi yf-
irlýsing hans styðja þá hugmynd
að hann ætli nú að staðfesta ráð
sitt: „Kominn á þennan aldur
hef ég komist á þá skoðun að
konur séu í sínu besta formi
þegar þær em búnar að ná fer-
tugu. Nú á dögum eru konur
áhugaverðari þegar þær eru
komnar á þann aldur. Þær
hugsa betur um sjálfar sig.“
öllu óvissara er um sannleiksgildi orörómsins um aö Clint Eastwood ætli aö bæta enn einum sigrinum viö á Ósk-
arsverölaunaárinu sínu og veröa pabbi fyrir árslok. Sambýliskona hans, Frances Rsher, er fertug aö aldri, en Clint
63ja.