Tíminn - 13.08.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68*76-48...Frétta-Tíminn...Frétta>síminn...68-76-48.
Föstudagur
13. ágúst 1993
150. tbl. 77. árg.
VERÐ ( LAUSASÖLU
KR. 125,-
ísraelskir þingmenn senda bréf til forsætisráðherra
og fara fram á að Eðvald Hinriksson verði sóttur til
saka. Davíð Oddsson:
Bréfið hefur
engin áhrif á
afstöðu okkar
Áttatíu og fímm ísraelskir þing-
menn hafa skrifað undir bréf til
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra þar sem þeir skora á hann
að beita sér fyrir því að Edvald
Hinriksson verði sóttur til saka
fyrir meinta stríðsglæpi í heims-
sfyijöldinni síðari. Forsætisráð-
herra segir að bréfíð komi ekki til
með að hafa hin minnstu áhrif á
afstöðu íslenskra stjómvalda í
málinu.
„Okkar leikreglur eru leikreglur
réttarríkis, þar sem greint er á
milli löggjafarvalds, fram-
kvæmdavalds og dómsvalds,“
sagði Davíð í gær. Framkvæmda-
valdið kannaði á sínum tíma alla
lögfræðilega þætti málsins og
Wiesentalstofnunin í ísrael hefur
allar upplýsingar um hvernig
svona mál ganga fyrir sig hér á
landi. Það voru bomar fram sakir
á þennan tiltekna einstakling af
hálfu ísraelsmanna. Þeim var
komið til saksóknara. Hann er að
athuga málið og íslensk stjóm-
völd hafa sem framkvæmdavald
ekki leyfi til þess að blanda sér í
það hver verði niðurstaða hans.“
í bréfinu, sem sent var ffá Jerú-
salem í gær, segir m.a. „Sá tími
sem liðinn er frá því að glæpir
Miksons vom framdir, minnkar á
engan hátt þörfina fyrir réttlæti."
Þá er farið fram á að ráðherra
grípi til nauðsynlegra aðgerða til
þess að tryggja það að ísland
hætti „að veita nasistamorðingj-
um hæli.“
ÁG/GS.
Forsætisráðherra les bréflð frá (sra-
elsku þlngmönnunum, sem barst
honum í hendur ( gær.
Tfmamynd Aml Bjama
Veruiegur uppskerubrestur er ur verið á Suðurlandi undanfarið
fyrirsjáanlegur hjá kartöflubænd- og keyrði um þverbak í fyrrinótt
um um allt land. Formaður Fé- þegar frost mældist 6 gráður við
lags kartöfubænda, sagði f frétt- jörðu og grös féllu víða. Að sögn
um Ríkissjónvarps f gær, fyrir- ylræktarráðunautar Bunaðarfé-
sjánanlegt að uppskeran í haust íags íslands hefur hvassviðri lagt
entist ekki nema í nokkra mán- kartöflugrös flöt á Suðaustur-
uði. landi. Þá hefur kuldatíð hamlað
Aðalsprettutími kartaflna er í mjög sprettu á Norðurlartdi í
þessum mánuði. Næturfrost hef- sumar. -ÁG
Hugmyndir Hrafns Gunnlaugssonar um fréttamaga-
sín verða að öllum líkindum að veruleika:
Tekið til umræðu í
útvarpsráði í dag
Á innlendri dagskrárdeild Ríkis-
sjónvarpsins hefur upp á síðkastið
verið unnið að mótun svokallaðs
fréttamagasíns. Um er að ræða
dagskrá, að erlendri fyrirmynd með
fréttatengdu efni, nokkuð lengri en
fréttatími sjónvarps er nú.
Með fféttamagasíninu verða að
veruleika hugmyndir sem Hrafn
Gunnlaugsson setti fram í frægum
sjónvarpsumræðum í vetur. Táldi
hann slíkan þátt vera lið í því að
færa sjónvarpsdagskrána í nútíma-
legra horf.
Tíminn fékk ekki uppgefið hvað
fælist í hinu nýja fréttamagasíni
enda hefur málið ekki verið kynnt
útvarpsráði. Samkvæmt heimildum
Tímans verður það gert í dag.
GS.
búöir fyrlr aldraða viö Vesturgötu. Of dýrar?
Um 6.800 fermetra hús fyrir aldraða 200 milljónum dýrara en 6.500
ferm. hús í félagslega kerfinu:
107 fermetra íbúð
2,9 m. kr. dýrari fyr-
ir aldraða en unga
Gífurlegur verðmunur kemur í Ijós þegar byggingarkostnaður
íbúöa fyrir aldraða er borinn saman við byggingarkostnaö íbúða í
félagslega kerfinu, samkvæmt skýrslu sem gerð hefur verið á veg-
um félagsmálaráðuneytisins. Þannig kom t.d. í Ijós um 200 millj-
óna mismunur á tveim ámóta stórum verkum.
Um 6.830 fermetra íbúðahús með 64
íbúðum fyrir aldraða kostaði t.d. um
645 milljónir króna, en 6.520 fer-
metra bygging með 61 íbúð í félags-
lega kerfinu „aðeins" 437 milljónir kr.
Brúttóstærð íbúðanna er í báðum til-
fellum 107 fermetrar. Stóri munurinn
er sá að félagsíbúðimar kostuðu 7,2
m.kr. en jafn stór íbúð fyrir aldraða
10,1 m.kr., þ.e. var um 41% dýrari.
f skýrslunni er sagt frá athugun á 9
byggingum (m. 299 íbúðum) fyrir
aldraða, bæði í Reykjavík og úti á
Iandi, og til samanburðar eru 3 bygg-
ingar (81 íbúð) í félagslega kerfinu.
Samanburðurinn er byggður á gögn-
um sem fyrir liggja hjá Tæknideild
Húsnæðisstofnunar og verð í öllum
tilfellum reiknað til verðlags í október
1991.
Fyrrgreint dæmi, um 2,9 milljóna
(41%) verðmun jafn stórra íbúða, var
hér tekið vegna þess hvað þar virðist
um áþekk verk að ræða, en ekki vegna
þess að þetta hafi verið mesti verð-
munurinn. Þvert á móti var hér um
dýrustu félagsíbúðimar að ræða, um
67.000 kr. á brúttófermetra, sem var
um 10% undir viðmiðunarverði Hús-
næðisstofnunar. í ódýrasta dæminu
um félagslegar íbúðir var verðið um
59.100 kr. á fermetra, eða um 18%
undir viðmiðunarverði H.R.
Brúttófermetrinn í áðumefndri 107
fermetra íbúð aldraðra kostaði hins
vegar um 94.400 krónur, sem var 37%
hærra heldur en reiknað viðmiðunar-
verð Húsnæðisstofnunar. Ennþá dýr-
ari íbúðir vom þó í ijögurra íbúða
húsi, um 97.700 kr. á fermetra
(132.500 kr. á fermetra m.v. séreign-
ina eina, þ.e. íbúðina sjálfa utan sam-
eignarinnar).
ðdýrasta dæmið um íbúðir aldraðra
er í 8 íbúða húsi, aðeins um 56.400 kr.
á brúttófermetra. Jafnvel eftir að 159
fermetra vistgata hefur verið frátalin
er fermetraverðið ennþá lægst í þessu
húsi, 67.800 kr. á br. fermetra.
Eðli málsins samkvæmt segja
skýrsluhöfundar að gera megi ráð fyr-
ir meiri kostnaði vegna sérhannaðra
íbúða fyrir aldraða. „Stundum hefur
verið áætlað að eðlilegt megi telja að
kostnaður af þessum sökum geti leitt
til þess að verð á íbúðum fyrir aldraða
sé um 5% hærra en á „venjulegum
íbúðum".
Skýrsluhöfundar benda jafnframt á
að verðmunur á íbúðum aldraðra geti
verið töluvert mikill (t.d. allt að 73% á
verði brúttófermetra í þeim húsum
sem könnunin nær til). Ástæður þess
verðmunar segja þeir hins vegar erfitt
að greina, hvort um sé að ræða slakan
undirbúning eða of háa verðlagningu.
Þá er það álit starfshópsins að þeir
aðilar sem semja við banka og spari-
sjóði um aðstoð vegna fjármögnunar
íbúðakaupa aldraðra, verði að gæta
þess að samningurinn tryggi sem hag-
kvæmasta ráðgjöf um meðferð á eign-
um hinna öldruðu. „Ef lánastofnanir
sjá bæði um lánveitingu og ráðgjöf
þyrfti að vera fyrir hendi hlutlaus aðili
sem færi yfir slíka samninga svo að
tryggt sé að ekki skapist erfiðleikar hjá
íbúðarkaupanda vegna aukins kostn-
aðar af lánsfé."
Til marks um það hvað samningar
við bankastofnanir geti skipt miklu er
tekið dæmi af 7 milljóna kr. íbúð sem
lánastofnun fjármagnar með jöfnum
greiðslum á 18 mánaða byggingar-
tíma. Miðist samningurinn við yfir-
dráttarvexti (18%) verður vaxtakostn-
aður nærri 1 milljón króna. Ef hins
vegar er samið um skuldabréfavexti
(11%) verði vaxtakostnaðurinn um
610 þús. kr. Mismunurinn milli þess-
ara tveggja kosta er hátt í 400 þúsund
krónur.
Dæmið sýnir jafnframt að íbúðaverð-
ið getur verið allt að 1 milljón kr.
lægra fyrir þann sem ekki þarf að taka
lán. - HEl
Vinnuslys fyrir vestan:
A/lcl^^UI^
klemmd-
ist illa
Vinnuslys varð um kvöldmatar-
leytið í fyrrakvöld á Birnustöð-
um inn í Laugardal við ísa-
fiarðardiúp.
Maður hafði nýlokið við að
hengja heykvísl á beisli aftan á
dráttarvél þegar beislið lyftist
upp með þeim afleiðingum að
hann klemmdist á milli beislis-
ins og dráttavélarinnar. Að
sögn lögreglunnar á ísafirði
olli sjálfvirkur lyftibúnaður því
að beislið hófst upp. Maðurinn
var fluttur á sjukrahús í
Reykjavík en hann mun ekki
vera í lífchættu. -GKG.