Tíminn - 13.08.1993, Blaðsíða 3

Tíminn - 13.08.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 13. ágúst 1993 Tíminn 3 ÉStÍt* [Aj Fj ■ N! A m B Ú Ð. I R' Vlðvarandi skortur er á hjúkrunarrýml fyrir aldraða I Reykjavfk. Þrátt fyrir það á aö hætta vlð aö taka I notkun 25 vlstunarrýml á hjúkrunarheimlllnu Eir. Allt hjúkrunarrýml er yfirfullt og langlr blðllstar, svo sem í Hafnarbúðum. Hætt við að opna 25 rými fyrir aldraða á hjúkrunarheimilinu Eir: Alvarlegra ástand en verið hefur Allt bendir til að hætt verði við að taka 25 vistunarrými í notkun á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir öldrunarsjúklinga í haust. „Það er mjög alvariegt ef þetta verður og það mun skapast enn alvarlegra ástand en verið hefur," segir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, yfirmað- ur öldrunarþjónustudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar. Á annað hundrað aldraðra Reykvík- inga eru talin hafa mjög brýn þörf fyrir hjúkrun. „Okkur skilst hér að það hafi borist erindi þessa efnis," segir Sigurbjörg en hún hefur ekki fengið þetta end- anlega staðfesL Hún segir að hér sé alvarlegt mál á ferðinni og vísar til þess að málum hafi verið haldið gangandi með það f huga að þessi rými yrðu tekin í notkun. „Fólk hefur ákveðið lang- lundargeð þegar það sér að ákveðin lausn er í sjónmáli," segir Sigur- björg og bendir á að þama sé um að ræða mjög þung og vandmeðfarin mál. Hún bendir á að það hafi verið við- varandi skortur á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða í Reykjavík. „Við erum alltaf að leysa erfiðustu málin með þessum fáu úthlutunum og það eru á annað hundrað einstaklingar sem bíða eftir þessu og eru í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrun," segir Sigurbjörg og vísar til þess að oft sé um að ræða einstaklinga sem búnir eru að vera út og inn á sjúkrahúsum í hvíldar- innlögnum. „Þetta hefur meira og minna verið unnið í náinni sam- vinnu við aðstandendur," bætir Sig- urbjörg við og telur þá oft sýna mik- ið langlundargeð. Samkvæmt áætlun sem lögð var upp í byrjun ársins stóð til að hjúkr- unarheimilið Eir við Grafarvog í Reykjavík yrði opnað í tveimur áföngum. í marsmánuði sl. voru 25 rými tekin í notkun og í október átti að taka önnur 25 rými í notkun. „Það var að sjálfsögðu búið að leggja allar áætlanir upp hjá okkur með það í huga,“ segir Sigurbjörg. —HÞ Lyfjaþróun hf. þróar nýtt lyfjaform til bólusetningar: Nefúði kemur í stað stungulyfs Lyfjaþróun hf. er nú að reyna aft hanna nýtt lyfjaform fyrir bólu- efni en það felst í nefúða í stað stungulyfs. Þetta kemur fram í grein eftir Sveinbjörn Gizurar- son, verkefnisstjóra Lyfjaþróunar hf., í Tímariti um lyfjafræði sem Lyfjafræðingafélag íslands gefur út. Þar segir að stærsti kosturinn við slíka bólusetningu sé að bóluefn- inu sé úðað á slímhimnuna þann- ig að hægt er að ná fram mótefna- svörun á öllum slímhimnum lík- amans en það næst ekki með stungulyfi. Að auki næst góð og örugg vöm í blóði. „Tilraunir á dýrum hafa sýnt að hægt er í vissum tilvikum að ná fram a.m.k. jafn mikilli vernd með nefúða og með stungulyfi en þar að auki næst mótefnamyndum á slímhimnum sem ekki fékkst með stungulyfinu," segir í grein Svein- bjarnar. Þar kemur jaftiframt fram að stefnt sé að því að framkvæma fyrstu tilraunir á hraustum ein- staklingum um næstu áramót. -GKG. Borgarspítalinn riftir samningi við sjúkraliðanema og ber fyrir sig fjárhagsvandræði: Sjúkraliða- nemar úti í kuldanum Sjúkraliðafélag íslands mótmælir harðlega ákvörðun stjómar sjúkrastofnana Reykjavíkur um að rifta námssamningum við sjúkra- Iiðanema á Borgarspítala sem taka áttu gildi 15. ágúst. Þetta kemur fram í ályktun stjómar og fræðslunefridar Sjúkraliðafélags íslands. Þar kem- ur fram að hér er um að ræða nemendur í Fjölbrautaskólunum í Breiðholti og í Ármúla. Þá er jafnframt þeim tilmælum beint til heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra og menntamálaráð- herra að þeir geri það sem í þeirra valdi standi til að viðunandi lausn finnist á fjárhagsvandræðum Borgarsjúkrahússins svo að það geti staðið við skuldbindingar sín- ar við sjúkraliðanemana. í ályktuninni kemur og fram að þessi ákvörðun raski högum þeirra verulega. Þar er vísað til þess að um sé að ræða nemendur sem hafa hafnað annarri vinnu til að geta staðið við sinn hluta starfssamn- ings en standi nú uppi atvinnu- lausir. Gönguferð Stefáns Jasonarsonar senn að Ijúka: í hringferðinni Það líður senn að lokum göngu- dalsvelli en það er samnorræn ferðar Stefáns Jasonarsonar f íþróttahátíð fýrir 60 ára og eldri. Vorsabæ hringinn f kringum 275 útlendingar koma híngað tfl landið. landsítengslumviðhanaogætla Hann kemur til Borgamess kl. vel fiestir þeirra að hitta Stefán 1830 í dag. Á morgun kemur hjá gðmlu Eiiiðaárbrúnni og hann til Akraness og hefur þá lagt ganga með honum síðustu skref- að baki sér 500 km. in. Næsti áfangastaður Stefáns er Á Laugardalsvelli bíða Stefáns Mosfellsbær en þangað kemur hlýjar viðtökur og verður honum hann miðvikudaginn 18. ágúst meðal annars fagnað með söng, 19. ágúst verður opnunarhátíð íþróttasýningu og ræðuhöldum. Gym i Norden haldin á Laugar- -GKG. Jón Böðvarsson. Steingrfmur Hermannsson. Njáluslóðir — Þórsmörk Árieg sumarferð firamsóknarfélaganna í Reykjavík verður farin laugardaginn 14. ágúst 1993. Að þessu sinni verður farið á söguslóðir Njálu og inn í Þórsmörk. Aðalleiðsögumaður ferðarinnar verður Jón Böðvarsson. í öllum bílunum verða reyndir fararstjórar. Feröaáætiunin er þessi: Kl. 8:00 Frá BSÍ. Kl. 10:00 Frá Hvolsvelli. Kl. 11:15 Frá Bergþórshvoli. Kl. 12:30 Frá Gunnarshólma. Kl. 17:00 Úr Þórsmörk. Kl. 18:45 Frá Hlíðarenda. Kl. 20:45 Frá Gunnarssteini. Kl. 22:00 Frá Hellu. Áætlað er að vera í Reykjavík kl. 23:30. Steingrímur Hermannsson mun ávarpa ferðalanga. Skráning í ferðina er á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 624480 frá 9.-13. ágúst. Verð fýrir fullorðna 2.900 kr., böm yngri en 12 ára 1.500 kr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.