Tíminn - 13.08.1993, Page 9
Föstudagur 13. ágúst 1993
Tíminn 9
■ DAGBÓK
Félagsvist í Fannborg
Félagsvist verður spiluð í félagsmiðstöð-
inni Gjábakka, Fannborg 8 í Kópavogi,
föstudaginn 13. ágúst kl. 20.00. Húsið
verður öllum opið.
Stuttmyndin Regina
Stuttmyndin Regina eftir Einar Þór
Gunnlaugsson verður sýnd á kvikmynda-
hátíðinni f Edinborg 22. ágúst nk. og
keppir þar til verðlauna um The Young
Fiim-Naker of the Year Award. Myndin
var framleidd á síðasta ári í The London
Intemational Film School og er fimmtu
annar-mynd höfundar. Regina hefur áð-
ur verið sýnd á kvikmyndahátíðum í
Haugasundi í Noregi, Miinchen í Þýska-
landi, Glouchester í Englandi og er bók-
uð á hátíðir víða um heim á næstu mán-
uðum. Tónlistina við myndina gerði
Hinn íslenski búksláttarflokkur. Myndin
er um 13 mínútna löng, 35 mm og tekin
í London.
Nýl dansskólinn:
Glæsilegur dansárangur
Bjami Þór Bjamason og Jóhanna Jóns-
dóttir frá Nýja dansskólanum eru nú í
Singapore þar sem þau tóku þátt í dans-
keppni laugardaginn 7.8. ‘93. Þessi dans-
keppni er opinn fyrir heimsbyggðina,
svokölluð The Open Singapore keppni.
Bjami Þór og Jóhanna náðu þeim glæsi-
lega dansárangri að komast í undanúrslit
bæði f Latin- og Standard-dönsum.
Á mánudag fara þau til Ástralfu og keppa
fyrir fsland í heimsmeistarakeppni í tíu
dönsum.
Væntanlega er þetta síðasta danskeppni
þeirra að sinni því Bjami Þór er á fömm
til Svíþjóðar f Iangt nám.
(blaðbera vantm)
BYGGÐARENDA
Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17
Útboð
Póstur og sími, umdæmi III, óskar eftir tilboðum í land-
póstaþjónustu frá Blönduósi.
Landpóstaþjónustan er á tveimur leiðum:
I. Frá Blönduósi um Ása, Vatnsdal og hluta Svína-
vatnshrepps til Blönduóss.
II. Frá Blönduósi til Kjalarlands og um Langadal,
Svartárdal, Blöndudal og hluta Svínavatnshrepps til
Blönduóss.
Tilboðum skal skilað fyrir hvora leið fyrir sig.
Þjónustan skal veitt þrisvar í viku frá póst- og símstöð-
inni Blönduósi.
Afhending útboösgagna fer ffam hjá stöðvarstjóra á
póst- og símstöðinni Blönduósi, frá og með þriðjudeg-
inum 17. ágúst 1993, gegn 2.000 króna skilagjaldi.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en 16.
september 1993 kl. 14.00. Tilboð verða opnuð sama
dag kl. 14.00 á póst- og símstööinni Blönduósi að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
PÓSTUR OG SlMI
Umdæmi III
600 Akureyri
Kastalinn rðndótti í Holiywood hlíðum.
Madonna er djörf víöar en í söngnum:
Söngkonan er
nú upp á kant
viö nágranna
Ævinlega hefur söngkonan Ma-
donna lag á því að valda usla og
vekja eftirtekt ýmist fyrir gott
Madonna er ansi hugmyndarík, en
það fellur ekki ðllum.
eða slæmt. Aft þessu sinni ergir
hún velmegandi nágranna sína í
Hollywoodhæðum með vali sínu
á útliti kastala síns, Castillo del
Largo.
Hún lét mála kastalann, sem áður
var hvítur, skærrauðan með gul-
um röndum. Þetta fer ákaflega
fyrir brjóstið á nágrönnum henn-
ar sem nokkrum mánuðum áður
buðu hana hjartanlega velkomna í
friðsælt ríkismannahverfið og
hrósuðu henni einmitt fyrir að
velja rólega og yfirlætislausa
brekkuna fyrir neðan Hollywood
merkið fremur en yfirborðslegar
Beverly hæðirnar þar sem leikar-
amir hópa sig saman til að metast
um hver eigi íburðarmeira hús.
Kastalinn var áður í eigu bófans
Bugsy Siegel á þriðja áratugnum
en eftir 1953 stóð hann auður og
yfirgefinn eftir bruna sem eyði-
lagði efstu hæð meginálmunnar.
Árið 1978 var kastalinn svo gerð-
ur upp og seldur Madonnu í fyrra
fyrir 3,2 milljónir dollara. Ekki er
hægt að sækja leikkonuna til saka
fyrir bíræfið litavalið því engar
reglur eru til um útlit húsa á
þessum slóðum og má hver gera
það sem hann vill í krafti pening-
anna. Aftur á móti vill Madonna
ekki vera til lengdar uppá kant við
nágranna sína og Christopher
Ciccone bróðir hennar sem sá um
verkið segir að ekki skuli menn
örvænta — þetta sé aðeins grunn-
ur fyrir nýjan lit, rústrauðan sem
mun að lokum breyta kastalanum
í ítalska villu.
Ef illa gengur að koma upp samfelldu og þéttu skjólbelti má alltaf nota hugmynda-
flugiö og gera gott úr litlu. Hér sést hvar bóndi einn I útlandinu hefur klippt vinalegan fola út úr gisnum
beltisparti mönnum og dýrum til ánægju.