Tíminn - 25.08.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-4ö—Frétta-Tínninn...Frétta-síminii—68-76-48.
BKmEragEnnl
Miðvikudagur
25. ágúst 1993
158. tbl. 77. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 125.-
Slitnaði upp úr viðræðum Islands og Noregs
um Smuguna:
Viðræður
árangurs-
lausar
Upp úr viðræðum íslendinga og
Norðmanna um veiðar í Smugunni
slitnaði í gær. Fulltrúar Norðmanna
í viðræðunum héldu því fram að
viðræðumar hefðu sUtnað vegna
kröfú íslendinga um kvóta í Smug-
unni. Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra hafnaði þessu og
sagði að viðræðuslit hefðu orðið
vegna kosninga í Noregi og erfiðrar
stöðu Noregs í samningum við Evr-
ópubandalagið.
Fundur íslensku og norsku ráð-
herranna stóð í nokkrar klukku-
stundir. Fyrirfram var ekki reiknað
með að niðurstaða fengist á fundin-
um, en menn höfðu reiknað með að
ráðherramir myndu þokast í átt til
samkomulags og að þeir yrðu a.m.k.
sammála um að halda viðræðum
áfram. Þetta varð ekki niðurstaðan.
Fundurinn varð algerlega árangurs-
laus. Eftir fundinn mátti skilja á full-
trúum Noregs á fundinum að fram-
undan væru meiri átök milli fslands
og Noregs um sjávarútvegsmál.
Sjávarútvegsráðherra Noregs sagði
að þjóðimar hefðu haft sögulegt
tækifæri til að snúa bökum saman í
sjávarútvegsmálum, en ísland hefði
breytt um grundvallarafstöðu.
Jón Baldvin hafnaði málflutningi
Norðmanna. Hann sagði að ísland
hefði farið fram á viðræður við
Norðmenn um hlut íslands í veiðum
á Barentshafi og lagt til að þjóðimar
tækju upp samstarf í hafréttarmál-
um. Því hafi verið hafnað. -EÓ
Þormóður rammi hf. á Siglufirði:
EKKI MEIRA AÐ
HAFA Á MIÐUNUM
VIÐ ÍSLAND
Róbert Guðfmnsson, framkvæmda-
stjóri Þormóðs ramma hf. í Siglu-
firði segir að þótt afli hafi verið treg-
ur í Smugunni í Barentshafi og
flestir togaranna séu á heimleið, þá
haf! afli á sama tfma ekki verið meiri
á íslandsmiðum.
Hann segist ekki sjá neinn mun á
því að hafa sent skip til veiða í Smug-
una en að vera með það í hálfgerðu
reiðileysi á heimamiðum í þeirri ör-
deyðu sem verið hefur á miðunum
allt í kringum landið.
„Ég get ekki séð að við séum að
koma neitt verr út úr því að hafa sent
ísfisktogarann Drangey þangað
norður og fá þó 60 tonn af þorski en
vera á heimamiðum þar sem allt er
lokað. En þar með er ég ekki að segja
að þetta hafi verið eitthvað gott,
langt í frá."
Obbinn af íslenska togaraflotanum,
eða um tuttugu skip, er á heimleið
úr Smugunni í Barentshafi sökum
lélegra aflabragða og vegna mikils
smáfisks í afla. I gær var talið að ein-
ungis átta ffystitogarar væru enn að
þar nyrðra og var jafnvel búist við að
þeim mundi eitthvað fækka þegar
líða tæki á daginn.
Framkvæmdastjóri Þormóðs ramma
hf. sagði að framhald veiða í Smug-
unni mundi ráðast af samningavið-
ræðunum við Norðmenn um veið-
amar og aflabrögðum þar nyrðra.
„Það er verið að tala um að veiðam-
ar í Smugunni hafi verið martröð
fyrir útgerðimar sökum aflaleysis og
mikils kostnaðar. Vonandi verður
þetta til þess að fólk geri sér grein
fyrir því hversu mikil martröð það er
fyrir hina sömu útgerðarmenn að
senda skip sín í 10 daga veiðiferð hér
við land og fá ekki neitt,“ sagði Ró-
bert Guðfinnsson framkvæmdastjóri.
Hann segir að burðarás fyrirtækis-
ins sé í rækju en rækjuskipið Sunna
hefur verið að gera það gott í
Flæmska hattinum við Nýfundna-
land. Þar er vestra er aflanum landað
og er stærsta rækjan flutt þaðan
beint á markað í Japan og til Frakk-
lands en minni rækjan er unnin í
verksmiðju fyrirtækisins á Siglufirði.
-grh
Framkvæmdir við McDonald's veitingastaðinn eru á lokastigi, en ráögert er að opna staðinn 10.
september. , Tlmamynd Artil BJam*
Fyrsti McDonalds á Islandi mun bjóða upp á íslenskan fisk keypt-
an frá Grimsby og hálfgerðir „heimsborgarar“ verða í boði:
mMMUUmUM * I I ■
Kjotið islenskt en
brauðið er innflutt
Nú styttist f að íslenskir McDon-
alds aðdáendur geti farið að gæða
sér á samnefndum hamborgur-
um, en nú eru rúmlega tvær vikur
þar til fyrsti McDonalds hamborg-
arastaðurinn á íslandi tekur til
starfa, eða þann 10. september.
Pétur Þórir Pétursson hjá Lyst hf.
sem er leyfishafi McDonalds á ís-
landi segir að framkvæmdir gangi
vel og ekkert verði því til fyrir-
stöðu að opna þann dag.
Ráðið hefur verið í allar stöður
og hefst þjálfún starfsfólks f raun f
dag-AIls hafa verið ráðnir tæplega
eitt hundrað starfsmenn, sem
koma til fyrstu kynningar á staðn-
um í dag og verða f þjálfun mestan
tíma fram að opnun.
McDonalds staðimir gera miklar
kröfúr til hráefnisins sem notað er
í hamborgarana og aðra vöru-
flokka og sagði Pétur að sú stefna
væri viðhöfð að nota íslenskt hrá-
efhi ef þess væri kostur. Að sjálf-
sögðu kemur kjötið af íslenskum
skepnum eins og lög og reglur
gera ráð fyrir og þá eru tilbúnu
fiskblokkimar íslenskar, en koma
frá verksmiðjum Iceland Freezing
Plant í Grimsby, dótturiyrirtæki
SH, en þess má geta að fyrirtækið
sér öllum McDonaldsstöðum á
Bretlandseyjum, sem em um 500
talsins fyrir fiskblokkum.
Pétur sagði að slíkar fiskblokkir,
sem em ekki forsteiktar og utan á
þær sett deig og rasp, séu ekki
framleiddar hér á landi og séu sér-
staklega unnar eftir ströngum
kröfúm sem McDonaids setur.
Hamborgarabrauðið er flutt inn
fryst frá tveimur brauðgerðum
McDonalds f Bretlandi. Pétur
sagði að ekki hefði verið mögulegt
að fá brauðin hér á landi, sem
uppfyllt hefðu þær kröfur sem
McDonalds gerir og því hefðu þeir
neyðst til að fá brauðin erlendis
frá.
Þeir McDonalds-menn hafa
ákveðið að halda verðinu á ham-
borgunum ieyndu þar til á opnun-
ardag, en aðspurður sagði Pétur
að verðið þyrfti í sjálfú sér ekki að
koma neitt á óvart Þeir væru eins
og aðrir háðir verði á landbúnað-
arafúrðum og Öðmm dýmm að-
fóngum, en allt hráefnið væri í
hæsta gæðaflokki og þar með dýr-
asta verðflokki.
ÖH nöfn á matseðlinum, nema
Big Mac verða á íslensku og sem
dæmi má nefna að Quarter-po-
under hamborgari kemur til með
að heita „McGóðborgari" - PS
Skuldbreytt hjá þeim sem
eiga í mestum erfiðleikum
Ríkisstjómin samþykkti f gær tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra um að heimild til að skuldbreyta lánum hjá fólki
sem á í miklum greiðsluerfiðleikum vegna húsnæðiskaupa verði
nýtt. Gert er ráð fyrir að 350 milljónum verði varíð úr húsnæðis-
kerfinu í þessu skyni. Húsnæðisstofnun telur að 1000-1200 manns
eigl við erfiöleika að stríða sem falli undir þá skilgreiningu sem
stofnunin hefur sett f þessu efni.
Jóhanna sagði að með skuldbreyt-
ingum nú væri stefnt að því að taka á
vanda þeirra íbúðarkaupenda sem
verstværu staddir, þ.e. þeirrasem lent
hafa í vanskilum vegna atvinnuleysis
eða veikinda. „Það virðist svo vera hjá
Húsnæðisstofnun, eins og hún hefur
greint þennan vanda, að þessi hópur
sé kominn í mikil vanskil og sumir
hverjir séu að missa sitt húsnæði,"
sagði Jóhanna.
Jóhanna tók skýrt fram að þær að-
gerðir sem hér væri verið að grípa til,
feli ekki í sér útgáfu sérstakra
greiðsluerfiðleikalána. Um sé að ræða
nýtingu heimildar sem sé í lögum um
Húsnæðisstofnun til að skuldbreyta
lánum hjá Byggingarsjóði ríkisins og
heimild til að fresta greiðslum hjá
Byggingarsjóði verkamanna í tilvik-
um þar sem greiðsluhlutfall fer yfir
ákveðið hlutfall a/ tekjum. „Hér er um
að ræða skuldbreytingar, til mjög af-
markaðs hóps, sem eru háðar mjög
ströngum skilyrðum," sagði Jóhanna.
Stór hluti af vandamáli þessa fólks
felst í skammtímalánum í bankakerf-
inu. Jóhanna sagði að rætt hafi verið
við forsvarsmenn bankanna um að
taka þátt í að skuldbreyta lánum. Hún
sagði að raunar væri það eitt af skil-
yrðum fyrir því að þessi aðgerð skilaði
tilætluðum árangri.
,JJvert einstakt tilvik verður metið
sameiginlega af lánastofnunum og
Húsnæðisstofnun. Skuldbreyting er
háð því að þeir aðilar þar sem skuld-
imar liggja hjá, séu sammála um að
aðgerðimar sem sameiginlega yrði
gripið til myndu skila árangri," sagði
Jóhanna.
Á næstu dögum mun félagsmála-
ráðuneytið setja reglur um þessar
skuldbreytingar. Jóhanna sagðist gera
sér vonir um að fyrstu skuldbreyting-
amar geti komið til framkvæmda í
fyrri hluta septembermánaðar.
-EÓ