Tíminn - 26.08.1993, Page 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 26. ágúst 1993
Umferðaröryggisnefndir Suðurlands vilja hægari akstur, féð af vegum, merkt hross og knapa og fýrirmyndar foreldra:
1.220 íbúar 160 kflómetra
sýslu með aðeins eina löggu
Umferðaröryggisnefndir á Suðurlandi leggja mikla áherslu á að
dregiö veröi úr hraðakstrí gegnum byggðakjama Suðuríands og
skora því á Vegagerðina, lögregiu og ekkl sist hinn almenna veg-
faranda að gera sitt besta til að draga úr þessum hraðakstrí. Skor-
aö er á bændur aö halda fé sínu frá þjóðvegum og ferðast sem
mlnnst á traktorum með hættuleg heyvinnslutæki, síst I myrkrí.
Skorað er á hestamenn að merkja
sjálfa sig og hesta sína með endur-
skinsmerkjum, nota reiðhjálma og
reka ekki hrossastóð eftir sólsetur.
Skorað er á foreldra að vera börnum
sínum góð fyrirmynd í umferðinni.
Þá er lýst stuðningi við óskir Vest-
ur-Skaftfellinga um lögreglumann f
heilsársstarf á Klaustrí. Nú sé það
svo frá september út maí að þessarí
160 km. löngu sýslu með 1.224 fbúa
sé sinnt af einum lögreglumanni
með aðsetur í Vík.
Hér hefúr verið getið helstu
áhersluatriða í fyrstu ályktun ný-
stofriaðs Sambands umferðarörygg-
isnefnda á Suðurlandi, sem eru
þrjár, í V.-Skaftafellssýslu og Vest-
mannaeyjum, í Rangárvallasýslu og
í Ámessýslu. Lausaganga búfjár
meðfram þjóðvegum er eitt það
hættulegasta við akstur á svæðinu,
að mati nefndanna og því er skorað
á bændur að halda fé sínu frá þeim.
Bændur fá einnig alvarlega áskorun
um að vera sem minnst á ferðinni á
vegum í dráttarvélum með rúllu-
baggapinna og/eða heygaffla og alls
ekki á ferðinni með ljóslausa hey-
vagna í eftirdragi eftir að skyggja
tekur.
Auk þess að endurskinsmerkja
bæði sjálfa sig og hross sín fyrir út-
reiðartúra eftir að skyggja tekur eru
hestamenn beðnir að vera ekki á
ferðinni eftir sólsetur með hrossa-
rekstra nema af brýnni nauðsyn og
því aðeins að öll hrossin séu með
endurskinsborða. Einnig er skorað
á hestamenn að koma í veg fyrir
flest alvarlegustu slysin með því að
nota reiðhjálma og með því að
halda sig utan akvega eins og
mögulegt er.
Nefhdimar leggja áherslu á að
skóiastjórnendur taki umferðar-
fræðslu inn í skólana eftir bestu
getu og að hugað sé að umferðarör-
yggi kringum skólana. Einnig er
skorað á foreldra að láta ekki sitt
eftir liggja og aka eftir settum lög-
um og reglum og innræta bömum
sínum það sama. Einungis með því
sé von um að við eignumst fyrir-
myndarökumenn í framtíðinni.
Umferðaröryggisnefndimar þakka
fyrir ýmislegt sem þær telja vel gert
Vegagerðinni em þakkaðar einfald-
ar, ódýrar og árangursríkar aðgerðir
til að draga úr hraðakstri við
byggðakjama. Lögreglan fær hrós
fyrir hið góða samstarf um lög-
gæslu á Suðurlandi í sumar. Og
meirihluta ökumanna em sendar
þakkir fyrir fyrirmyndaraksturlag.
- HEI
Gunnar
og Jónas
í Loga-
landi
Gunnar Guöbjömsson ópem-
söngvari og Jónas Ingimundar-
son pfanóleikari halda tónleika
í Logalandi f Borgarfirði mið-
vikudaginn L september. Tón-
leikamir hefjast klukkan níu,
en á efnisskránni verður fjöl-
breytt úrval fslenskra og
sænskra laga auk óperettu- og
ópemaría.
Gunnar hefur starfað sl. tvö ár
í Þýskalandi, en hann er fast-
ráðinn við ópemna í Wiesba-
den. t>ar hefur hann farið með
fjölda hlutverka s.s. Tbmino (
Töfraflautunni og Almaviva (
Rakaranum frá SeviIIa. Hann
syngur einnig mikið sem
gestasöngvari og hefur sungið
í Welsh National Opera, Opera
North, í ópemm í Heidelberg
og Mainz og vfðar. Hann mun
áfram starfa við ópemna í Wi-
esbaden, en næsta vetur syng-
ur hann þar m.a. Ferrandu í
Cosí fen Tutte eftir Mozart og
Cassio í Othello.
Gunnar Guðbjömsson og
Jónas Ingimundarson hafa
starfað mikið saman bæði á ís-
landi og erlendis, en tónleikar
þeirxa félaga hér heima skipta
tugum.
(úr fréttatilkynningu)
Fulltrúar Japansk-íslenska vináttufélagsins á Bessastöðum:
Enn færa Japanir Vigdísi
stórgjöf til skógræktar
Fulltrúar Japansk-íslenska Vin-
áttufélagsins heimsóttu forseta
íslands að Bessastöðum í gær
þar sem einn þeirra færði Vig-
dísi hálfa milljón jena (um 340
þús.kr.) að gjöf til skógræktar. í
firétt frá félaginu segir að það
ætli um næstu áramót að skipu-
leggja heimsókn hátt í 200
manns til íslands í tUefhi 50 ára
afmæUs sjálfstæðis íslendinga.
Þá stefnir það að Japansdögum í
Reykjavík dagana 1. til 3. janúar
1994. Ennfremur er Japansk-ís-
lenska vináttufélagið að kanna
möguleika á að fá íslensku ópemna
til Japans á þjóðhátíðarárinu auk
þess sem komið hefur til tals að að-
stoða Karlakórinn Fóstbræður til
tónleikaferðar til Japans.
Alls em 22 Japanir í sendinefndinni
sem nú er hér á landi, margir þeirra
forstjórar eða framkvæmdastjórar
fyrirtækja í ýmsum greinum jap-
ansks atvinnulífs, þar á meðal frá ís-
lenskum veitingastað í Osaka, sem
gengur undir nafninu „Dóttir". Það
var einn þeirra, Yasuo Nara, forstjóri
Tohnichi Printing Company Factori
í Tokyo, sem færði Vigdísi Forseta
500.000 jena skógræktargjöfina frá Japanlmir afhenda hér frú Vlgdísl Finnbogadóttur gjöfina tll skógræktar. Tfmamynd Ámi Bjama
fyrirtæki sínu. Þetta er önnur stór-
NYR
ÁSKRIFANDI
Nafn áskrifanda:
Póstnúmer
Simi:
Heimilisfang:
Greiðslufyrirkomulag
MILLIFÆRSLUBEIÐNI
Kortnr
Gildirút
Ég undimtaður/uð óska hér með efíir að gerast ðskrifandi að Timanum
Kennitala
rp r •
Timmn
Lynghálsi 9.110 Reykjavík
Póstfax 68769. Pósthólf 10240
gjöfin því forstjóri Asahi bjórfyrir-
tækisins færði forseta eina milljón
jena gjöf í sama skyni fyrir tæpum
tveim ámm.
Japansk-íslenska vináttufélagið var
stofriað af fyrirtækjum og einstak-
lingum í Tokyo þegar forseti íslands
heimsótti Japan fyrir tveim árum.
En fyrri heimsóknir forsetans til
Japans höfðu vakið áhuga ýmissa
framámanna í japönsku þjóðlífi á ís-
landi. Meðal frumkvöðla að stofnun
félagsins var fyrirtækið Sugar Is-
land, sem lét reysa íslandshús, ná-
kvæma eftirlíkingu af Höfða í
Reykjavík, í bænum Minami-Nasu.
Féíagið hefúr nú þegar staðið að
ýmsum menningarsamskiptum,
m.a. röð tónleika í Japan með Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara í
fyrra og tónleika með Áshildi Har-
aldsdóttur flautuleikara nú í ágúsL
Þá stóð félagið að heimsfrumsýn-
ingu japönsku kvikmyndarinnar
„Fjarlægt sólsetur" í Reykjavík sl.
sumar, en handrit hennar er eftir
formann vináttufélagsins, Junichi
Watanbe. - HEI