Tíminn - 02.09.1993, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 2. september 1993
Tíminn
RIÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Mótvægi hf.
Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson
Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm.
Aðstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjóran Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrlmsson
Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Sfmi: 686300.
Auglýsingasimi: 680001. Kvöldsimar: Áskríft og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1368,- , verð I lausasölu kr. 125,-
Grunnverö auglýsinga kr. 765,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Jafnrétti skólabama
Skólar fara nú að byrja en skólabyrjun markar í hugum
margra lok sumars og upphaf vetrar. Skólastarf er trú-
lega með mikilvægari starfsemi sem fram fer í þjóðfé-
laginu því þar er Iagður grunnurinn að möguleikum
þjóðarinnar í framtíðinni. Þetta á ekki hvað síst við um
grunnskólann og grunnskólakerfið, sem hefur það að
grundvallarmarkmiði að koma öllum íslenskum börn-
um til nokkurs þroska. Það er í samræmi við þessa jafn-
aðarregiu að íslenska þjóðin hefur verið samstíga í
þeirri pólitísku ákvörðun að veita börnum sínum jafnan
rétt til náms burtséð frá búsetu og efnahag.
Síendurteknar „aðhaldsaðgerðir" stjórnvalda og niður-
skurður fjárframlaga til menntamála valda því veruleg-
um áhyggjum, ekki síst vegna þess að allar aðgerðir eiga
að vera til bráðabirgða þótt þær séu í raun viðvarandi og
þar af leiðandi er það næstum tilviljun hvar borið er
niður hverju sinni — allt eftir því hversu vel eða illa
þessi eða hinn hluti menntakerfisins liggur við höggi
hverju sinni. Niðurstaðan er því í stíl AA-hugmynda-
fræðinnar þar sem allt miðast við að þrauka einn dag í
einu, „að spara í dag“. Hin harmrænu mistök eru auð-
vitað að hugmyndafræði alkohólismans er ekki endilega
það sem þarf við stjórn og stefnumörkun í menntamál-
um. Þvert á móti verður skorturinn á framtíðarsýn til
þess að ekki einvörðungu er hoggið að grundvelli sjálfr-
ar menntunar barnanna, heldur hefur þetta einnig haft
í för með sér aukna mismunun í aðstöðu skóla til að
veita þá menntun sem lögum samkvæmt á að veita
börnum. í þessu sambandi er rétt að veita athygli sam-
þykkt sem Samtök fámennra skóla hafa sent frá sér þar
sem harðlega er mótmælt áframhaldandi niðurskurði á
fjárveitingum til skólahalds, sem komi í veg fyrir að fá-
mennir skólar í hinum dreifðu byggðum landsins geti
sinnt hlutverki sínu til jafns við aðrar skólagerðir. Aug-
ljóslega er allur niðurskurður kennslu og skólastarfs
vont mál, en hann getur komið hlutfallslega verr niður
á fámennum skólum en fjölmennum. Þess hefur lengst
af verið gætt að sérstöðu fámennra skóla sé mætt með
því að skapa fræðsluskrifstofum í viðkomandi umdæm-
um ákveðið svigrúm við úthlutun kennslumagns. Ef
marka má samþykkt Samtaka fámennra skóla er slíkt
svigrúm ekki lengur fyrir hendi og því horfur á að þess-
ir skólar geti ekki sinnt lagalegum skyldum sínum við
þau börn sem í þá ganga.
Skólamál eru fjárfrekur málaflokkur, en hins vegar er
hann þess eðlis að ef fyllstu aðgæslu er ekki gætt gætu
menn auðveldlega sparað eyrinn um leið og þeir köst-
uðu krónunni. Lágmarkskrafa er að stjórnvöld geri öll-
um skólum kleift að standa við lögbundar kennsluskyld-
ur sínar, þannig að enn aukist ekki misvægi í aðstöðu
manna eftir því hvar á landinu þeir búa. í Reykjavík
stefnir í útvíkkun á skólastarfi í flestum skólum, með
kosti á heilsdagsvist í skóla og fleiru. Þótt efast megi um
það hversu mikið mennta- og uppeldisgildi þessi áform
hafa miðað við hugmyndir um eiginlegan heilsdags-,
einsetinn skóla, þá er þessi þróun mikið framfaraskref,
sem vitaskuld hefði fyrir löngu átt að vera búið að stíga.
Þrátt fyrir að það sé sveitarfélagið, Reykjavíkurborg,
sem fyrst og fremst stendur að baki þeim breytingum
sem eru að verða á skólamálum í höfuðstaðnum er það í
verkahring ríkisins að tryggja viðunandi jafnrétti milli
allra skólabarna á landinu. Þess vegna er rík ástæða til
að vera vakandi yfir örlögum hinna smærri stofnana og
láta fámenna skóla ekki taka skref afturábak á meðan
stefnan er tekin í þveröfuga átt í höfuðstaðnum.
r
Garri hefur heyrt að Alþýðuflokks-
menn séu í standandi vandræðum
með hvað þeir eigi að gera við Jón
Saemund Sigmjónsson. Jón Sæ-
mundur hefur sem kunnugt er sótt
um stöðu forstjóra TVyggingastofn-
unar, sem allir vita — og kannski
best hann sjálfur — að Karl Steinar
Guðnason fær. Jón Sæmundur, sem
er góður og gegn krati og hefur m.a.
setið á þingi fyrir Alþýðuflokkinn f
nokkur ár, er með því að sækja um
forstjórastöðuna að koma því á fram-
færi við forystu Alþýðuflokksins að
hann eigi vissan rétt á að fá bitling,
líkt og margir aðrir kratar hafa feng-
ið fyrir vel unnin störf í þágu Alþýðu-
flokksins.
Alþýðuflokkurinn hefur fram að
þessu getað leyst farsællega Öll
vandamál varðandi embættisveitíng-
ar. Flokkurinn hefur ráðið menn og
faert menn til af slfkri snilld að menn
setur hljóða, í sumar varð Jón Sig-
urðsson seðlabankastjóri. Það varð
til þess að Sighvatur Björgvinsson
varð viðskiptaTáðherra og Guð-
mundur Ami Stefánsson heilbrigð-
isráðherra. Ekki löngu seinna varð
Eiður Guðnason sendiherra í Noregi
og þar með rættist langþráður
draumur Össurar Skarphéðinssonar
umaðverðaráðherra.
Nýju raðherramir, Össur og Guð-
mundur Ámi, þurftu að raða sér nýja
aðstoðarmenn. Sighvatur þarf einn-
ig að fá sér nýjan aðstoðarmann, því
að hann hefur gert aðstoðarmann
sinn, Þorkel Helgason, að ráðuneyt-
isstjóra f viðskiptaráðuneytinu. Þeg-
ar mun vera búið að ráðsfafa stöðu
Þorkels til Margrétar S. Bjömsdótt-
ur, sem flúði úr Alþýðubandalaginu
Tekur Jón Sæmundur við pröfess-
orscmbarttinu af Ólafi Ragnari?
yfir f Alþýðuflokkinn fyrir nokkium
árum. Þorkeli fékk stöðu ráðuneytis-
stjóra, vegna þess að Bjöm Frið-
finnsson fékk stöðu hjá EFTA Bjöm
var aðstoðamiaður Jóns Sigurðs-
sonar áður en hann var gerður að
ráðuneytisstjóra.
...............
Alit er þetta gott og blessað og
gengur ágætlega upp. Vandamálið er
hins vegar hvað á að gera við Jón
Sæmund. Karl Steinar verður fljót-
lega gerður að forstjóra IVygginga-
stofnunar og satt að segja er fátt um
góðar stðður á lausu fyrir Jón Sæ-
mund. Það er að vísu að losna önnur
bankastjórastaða í Seðlabankanum,
en margir telja að Alþýðuflokkurinn
fari yfir strikið ef hann setur tvo fyrr-
verandi þingmenn flokksins í banka-
stjóm Seðlabankans.
Ekki erhægtað gera Jón Sæmund
að raðuneytisstjóra í umhverfisraðu-
neytinu, því að fyrir stuttu gerði Eið-
ur Guðnason aðstoðarmann sinn að
ráðuneytisstjóra þess. Ráðuneytis-
stjóramir í heilbrigðisráðuneytinu
og utanríkisráðuneytinu eru menn á
besta aldri, svo að ekki er hægt að
koma Jóni Sæmundi fyrirþar.
Það væri hins vegar hægt að setja
Jón Sæmund í stöðu í Háskólanum,
Ld. prófessorsstöðu. Prófessorsstaða
í Háskólanum er að vísu ekki eins fín
staða og forstjóraembætti í TVygg-
ingastofnun eða ráðuneytisstjóra-
staða, en allt er hey í harðindum.
Það væri náttúrlega upplagt að setja
Jón Sæmund í prófessorsstöðuna
sem Þorkell Helgason gegndi, ensvo
óheppílega vill til að Þorkell ætlar að
halda í stöðuna af einhverjum orsök-
um. Hún er því ekki laus.
En það vill svo vel til að fyrír faum
dögum losnaði prófessorsstaða f
stjómmálafræði, þegar Ólafur Ragn-
ar Grímsson sagði stöðu sinni lausri.
Er ekki gráupplagt að Jón Sæmund-
urfaiþá stöðu? Jón Sæmundur hef-
ur að vísu ekki lært um stjómmál í
erlendum háskólum, en hann hefur
verið í stjómmálum og þekkir þetta
út oginn. Hann hefurauk þess verið
í háskóla í Þýskalandi í fjöida áraog
lærtþarhagfræði. Stjómmál nútím-
ans fjalla eiginlega ekki um neitt
annað en hagfræði og kannski emb-
ættisveitingar. Jón Sæmundur er vel
að sér á báðum sviðunum.
A milli Lómagnúps og Langaness
í Brekkukotsannál eftir Halldór
Laxness segir frá manni sem lagðist
í ferðalög á unga aldri. Það þótti
ekki mikil gæfa.
í dag em fjölmargir sem leggjast í
ferðalög ýmissa hluta vegna. Þessi
ferðalög eru innan lands og utan.
Flugvélar eru á þönum alla daga
með fólk f ýmsum erindum. Sumir
eru að skemmta sér, aðrir ferðast
vinnu sinnar vegna.
Ég lagðist í ferðalög þegar ég var
kosinn til þingmennsku. Það fylgir
því starfi að vera á þönum. Síðast-
liðinn föstudag sat ég fund á Breið-
dalsvík, ók þaðan til Egilsstaða og
flaug til Reykjavíkur um kvöldið.
Ók svo þaðan til Laugarvatns og sat
þar fund klukkan 10 morguninn
eftir, ók þaðan sem leið lá norður í
Skagafjörð og ávarpaði þar sumar-
hátíð á laugardag; síðan til Reykja-
víkur á sunnudaginn og sat þar
fúnd um sameiningarmál sveitarfé-
laga á mánudag. Á þriðjudags-
morgun var mætt á Reykjavíkur-
flugvöll snemma til þess að fara til
Austurlands á ný til fundarhalda.
Gott þegar allt
gengur upp
Þetta er í sjálfu sér ekki óvenjuleg
dagskrá þingmanna og þetta er allt
í lagi þegar veður og færð er góð og
flugið gengur upp. Haustið er þar
að auki góður árstími til ferðalaga
og landið er svo fallegt í haustblíð-
unni að undrum sætir.
En á þriðjudagsmorguninn mætt-
um við Halldór Ásgrímsson á
Reykjavíkurflugvöll til ferðar aust-
ur á Hérað til þess að ræða við fólk
þar um stjómmálaviðhorfið. Hall-
dór átti geymdan bfl á Egilsstöðum
frá því í síðustu viku og var ætlun-
in að nota hann til ferðar. Halldór
minnir dálítið á prófessora að því
leyti að hann er gleyminn á smá-
hluti sem geta verið bráðnauðsyn-
legir, eins og bfllykla og þess háttar.
Fimm mínútum fyrir brottför
komst hann að því að lyklamir
vom heima og nú voru góð ráð dýr.
Á Homafirði vom varalyklar og það
vildi svo til að Flugleiðir millilenda
í flestum ferðum í spamaðarskyni,
svo lenda átti þar á austurleið. Ekki
er fyn búið að gera ráðstafanir til
þess að fá varalykla á flugvöllinn en
tilkynnt er að vélin muni fljúga
beint á Egilsstaði á austurleið,
vegna þoku á Homafirði. Þá var
byrjað að leita að varabfl, en þá
kemur tilkynning á ný um að lent
verði á Homafirði á austurleið og
nú fer að verða erfitt að hafa reiður
á hlutunum.
Að taka púlsinn á
mannlífmu
Loks var svo lagt af stað og flogið
til Homafjarðar. Ég notaði tímann
til þess að skrifa forustugrein í
Tímann um húsnæðismál á leið-
inni og stóðst á endum að vélin
renndi inn til lendingar þegar ég
lauk síðustu línunni. fþessum fínu
' Vitt og breitl
vélum er hægt að skrifa lítt tmflað-
ur. Örlítil ókyrrð yfir Fjallabaksleið
hristi pennann, svona til að minna
á ókyrrðina sem er á jörðu niðri og
kemur fram á jarðskjálftamælum.
Á Egilsstöðum var komið indælis-
veður, sem hefur verið af skornum
skammti í sumar, og Halldór, sem
var vopnaður varabíllykli frá
Hornafirði, stingur upp á því að
nota tímann til þess að skreppa á
Vopnafjörð og hitta þar menn að
máli. Ekki er langt síðan að slík
ferð hefði tekið um fimm klukku-
tíma í akstri báðar leiðir, en með
vegabótum á Hellisheiði er hægt að
aka leiðina á helmingi skemmri
tíma. Þessi staðreynd hefur aukið
mjög samskipti milli Vopnafjarðar
og Héraðs og er skólabókardæmi
um hverju breyttar samgöngur og
styttri vegalengdir milli byggðar-
laga koma til leiðar.
Við töfðum á Vopnafirði fram eftir
degi og hittum menn að máli. Við
hittum bændur, vörubílstjóra,
verkafólk, forsvarsmenn fyrirtækja,
blueshljómsveitina Vini Dóra og
fleira fólk. Það var verið í því fram
eftir degi að taka púlsinn á mann-
lífinu.
Skoöanaskipti
Klukkan níu um kvöldið var síðan
fundur í félagsheimilinu á Amhóls-
stöðum í Skriðdalshreppi, sem er á
Fljótsdalshéraði. Við ræddum þar
stjómmálaviðhorfin, fjárlagagerð,
horfur í landbúnaði og sameining-
armál sveitarfélaga. Slíkir fundir
em ekki síður nauðsynlegir fyrir
okkur þingmennina, því þama
koma vandamálin fram, sem
brenna á fólkinu. Það, sem þarf að
gæta vel að, er að gefa tíma til
skoðanaskipta og líta ekki þannig á
að þingmennirnir eigi að tala, en
hinir að hlusta. Það er ekki síður
nauðsynlegt fyrir okkur að hlusta.
í Skriðdal er lítið samfélag þar
sem fólk tekur vel á móti sínum
gestum. Skriðdælingar hafa komið
upp notalegri viðbyggingu við lítið
félagsheimili sem þar var til. Fastur
siður er að gefa öllum kaffi sem
koma á fundi, sama hver í hlut á.
Þetta skapar einkar gott og heimil-
islegt andrúmsloft til óþvingaðra
skoðanaskipta.
í hinni miklu sameiningarum-
ræðu, sem nú fer fram, mega sér-
kenni hinna litlu sveitarfélaga,
sjálfsmynd þeirra og samhjálp ekki
gleymast, hvert sem skipulag sveit-
arstjómarmála verður.
Milli Lómagnúps og
Langaness
Að leggjast í ferðalög er nauðsyn-
legur þáttur í starfi þingmanna.
Stundum gengur allt upp, eins og á
þriðjudaginn var, og hægt er að
fara víða yfir. Stundum gengur
ekkert upp og allt situr fast. Þá
verður að taka því sem að höndum
ber. Austurlandskjördæmi spannar
700 kílómetra á lengdina og þar
getur brugðið til beggja vona með
veður og færð á svæðinu milli
Lómagnúps og Langaness. Ef svo
er, þá er að taka á þolinmæðinni og
láta hverjum degi nægja sína þján-
ingu. Jón Kristjánsson