Tíminn - 02.09.1993, Page 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 2. september 1993
Landsþing LFK
6. Landsþing Landssambands framsöknarkvenna veröur haldiö 8.-10. okt. nk.
á Hallormsstaö og hefst aö kvöldi þess 8.
Framkvæmdastfóm LFK
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1993
Dregiö var I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 9.
»ai i ouiiicuiic
er eru sem hér segir:
1. vinningur nr. 2662
2. vinningur — 28222
3. vinningur — 32521
4. vinningur — 4604
5. vinningur—15511
6. vinningur — 4209
7. vinningur — 6912
8. vinningur — 19425
9. vinningur — 21816
10. vinningur — 32868
11. vinningur—13957
12. vinningur — 13631
13. vinningur — 35632
14. vinningur — 29225
15. vinningur—12778
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vinnings sjal vitja innan árs frá útdrætti. Frekari upp-
lýsingar eru veittar I síma 91-624480.
S£I
Alþingi
ÍSLENDIMCA
Frá fjárlaganefnd
Alþingis
Fjárlaganefnd Alþingis ráðgerir að gefa sveitarstjómar-
mönnum kost á að eiga fund með nefndinni dagana 27.- 30.
september fyrir hádegi. Upplýsingar og tímapantanir í síma
630700 frá kl. 9-16 eigi síöar en 23. september nk.
Kær bróöir
Óskar Jón Evertsson
andaöist á elliheimilinu Grnnd þann 23. ágúsL Útför hans hefur fariö fram
f kyrrþey, aö ósk hins látna.
Innilegar þakkir til hjúkrunarfólks, sem annaöist hann af alúö og kærleika.
Hjartans þakklæti til frændfólks og vina fyrir auðsýnda samúö.
Ragnhelöur Evertsdóttir
______________________________________________________________/
Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Sigrún Baldvinsdóttir
fyrrum húsfreyja I Asbyrgi
veröur jarösungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 3. september kl. 13.30.
Slgurvelg Erilngsdóttlr Jónas Jónsson
Hulda Erilngsdóttlr Jónas Hallgrímsson
Kristin Ertlngsdóttlr Hrafn Magnússon
Baldvln J. Erilngsson Guörún H. Jónsdóttir
bamaböm og bamabamaböm
_________________________II______________________________J
Amsterdam selur hlut
sinn í Hoogovens
Amsterdam-borg seldi 15. júlí 1993
hlut sinn, 5,24%, í hollenska stál-
og álfyrirtækinu Hoogovens til inn-
lendra og útlendra aðila fyrir milli-
göngu ABN Amro-banka. Mun þessi
eignarhlutur borgarinnar hafa verið
seldur fyrir 47 milljónir gyllina,
jafnvirði 25 milljóna $. Síðustu tvö
ár hefur tap verið á rekstri Hoogo-
vens, sem nam 51 milljón gyllina
1991 og 595 milljónum gyllina
1992, og hvorugt árið greiddi fyrir-
tækið arð.
Táp fyrirtækisins er einkum rakið
til lækkunar stálverðs um 20% frá
1989. Hollenska ríkið á nú 12%
hlutafjár Hoogovens, en átti 20%
þess um miðjan níunda áratuginn.
Aðalstöðvar Hoogovens eru í Umui-
den, sem stendur á ströndinni norð-
an Amsterdam.
Sósíalískur markaös-
búskapur í Kína
Áttunda þjóðþing Alþýðulýðveldis-
ins Kína samþykkti í vor breytingu á
kínversku stjómarskránni, sem
heimilar markaðsbúskap. Beijing
Review, 26. apríI-2. maí 1993 (17.
hefti 36. árg.) sagði svo frá: „í des-
ember 1982 samþykkti Alþýðulýð-
veldið Kína fjórðu stjómarskrá
sína... Sú nýja stjómarskrá hefur
mótað mjög stjómmál, efnahagsmál
og félagsmál þess í 10 ár. En stjóm-
arskráin mælti fyrir um áætlunar-
búskap í ríkisforsjá og sameignarfé-
lög (communes) upp til sveita og
bannaði eignatilfærslu (transfer) á
jörðum. Á fyrstu setu Þjóðþingsins
1988 var (á stjórnarskránni) gerð
breyting, sem heimilaði einkarekst-
ur og eignatilfærslu á landi."
„Frá samþykkt stjómarskrárinnar
1982 hafa miklar breytingar orðið á
kínverskum stjórnmálum og efna-
hagsmálum og ýmislegt nýtt og að-
kallandi verið upp tekið. Fram var
sett sú kenning, að Kína væri á
frumstigi sósíalisma og fallist á
kenningu Dengs Xiaoping um upp-
byggingu sósíalisma með kínversk-
um sérkennum, sem að leiðarljósi
er höfð um uppbyggingu landsins.
Uppsetning sósíalísks markaðsbú-
skapar er höfð að markmiði við
efnahagslega endurskipulagningu
og rekstrarstjóm fyrirtækja er skilin
að eignarhaldi þeirra."
Viðbrögð við atvinnu-
leysi í Vestur-Evrópu
Atvinnuleysi er vaxandi vandamál í
aðildarlöndum Efnahagsbandalags
Evrópu. f tilefni fundar stjómarleið-
toga þeirra í Kaupmannahöfn 21. júní
s.l. sagði í stuttri yfirlitsgrein í Fin-
ancial Times sama dag (bls. 3): „Vinn-
andi fólki í EBE fækkaði um 1,3%
1992. í síðustu spá framkvæmda-
stjómar þess er enn vænst fækkunar
þess um liðlega 1,75% 1993, hinnar
mestu fram til þessa. Framkvæmda-
stjómin býst þess vegna við, að at-
vinnuleysi í EBE fari upp í 12% 1994
og liðlega 17 milljónir manna verði án
atvinnu."
„í samanburði við önnur iðnaðarlönd
hefur EBE mjög lágt atvinnustig —
innan við 60% af fólki á starfsaldri í
aðildarlöndum þess hefúr atvinnu, en
70% þess í Bandaríkjunum og EFTA-
löndum og liðlega 75% þess í Japan...
Hvers vegna helst atvinnuleysi meira í
Evrópu? Hvers vegna gengur banda-
rísku verkafólki, einkum konum, bet-
ur að fá vinnu en evrópsku? Og hvers
vegna hafa einungis 6% atvinnuleys-
ingja í Bandaríkjunum verið lengur
en ár án atvinnu, en nálega 50%
þeirra í Evrópu?"
„Svars virðist vera að leita í eðli evr-
ópsks vinnumarkaðar, eins og Efna-
hags- og framfarastofhunin og fram-
kvæmdastjóm EBE og ríkisstjómir
eru f vaxandi mæli að átta sig á. Hin-
um starfa-skapandi vinnumarkaði í
Bandaríkjunum em fáar reglur settar
og hefur þess vegna ekki af honum
hlotist viðvarandi atvinnuleysi fólks,
heldur fallandi laun að raungildi.
Raunveruleg laun þeirra 10% vinnu-
aflans, sem lægst laun hafa, hafa fallið
um þriðjung ffá 1970, en atvinnuleys-
isbætur eru aðeins til skamms tíma.
Margar konur hafa tekið vinnu — en
svo margir karlmenn hafa með öllu
horfið frá vinnu, að áhyggjum veldur."
,Af ráðnum hug hafa flestar evrópsk-
ar ríkisstjómir varast að feta banda-
rísku leiðina — að mynda fjölmörg
láglaunuð þjónustustörf — og að
halda uppi tiltölulega háum lág-
markslaunum og atvinnuleysisbótum,
sem hindra fall launa. Að því er í álits-
gerð Efnahags- og framfarastofnunar-
innar segir, „hlýst af þvf einungis um-
breyting vandans. í stað þess að vera
fátækir vinnandi menn, eru ófaglærð-
ir verkamenn atvinnulausir. Af því
hefúr líka hlotist, að á nfunda ára-
tugnum fundu margar konur í at-
vinnuleit enga vinnu. Á síðari hluta
níunda áratugarins fóm 70% nýrra
starfa til nýliða á vinnumarkaði, en
einungis 30% þeirra til atvinnulausra.
En atvinnustig kvenna er miklu hærra
í Bandaríkjunum og Bretlandi heldur
en á meginlandi Evrópu. Á megin-
landinu er þó stig atvinnuleysis hærra
á meðal kvenna en karla, nema á Bret-
landi."
„Embættismenn EBE viðurkenna, að
áhersla á vinnuvemd hafi orðið á
kostnað vinnusköpunar... þeir segja,
að evrópskar ríkisstjómir hafi hingað
til aðeins f orði kveðnu viðurkennt
þörfina á sveigjanlegri vinnumark-
aði."
Aukin lýðhjálp
í Bandaríkjunum
Fyrir Þjóðþingi Bandaríkjanna em
nú tvö fmmvörp um „skattaeftirgjöf
(?) á launatekjur" (eamed income
tax credit), að Intemational Herald
Tribune sagði lauslega frá 27. júlí
1993. Skattaeftirgjöf þessi var upp
tekin um miðjan áttunda áratuginn
að tilhlutan Russells B. Long, öld-
ungadeildarþingmanns frá Louisi-
ana. Að því frumvarpanna, sem er
fyrir fulltrúadeildinni og samið var f
Hvíta húsinu, munu skattaeftirgjaf-
ir (eða framlög?), nú alls 11 millj-
arðar $ á ári, hækkaðar um 28,3
milljarða $ á næstu fimm ámm, en
tala þeirra, sem rétt eiga til eftirgjaf-
ar (eða framlags?), úr 14 milljónum
í 20 milljónir. Hitt firumvarpið, sem
er fyrir öldungadeildinni, gengur
skemmra og hækkar heimild til eft-
irgjafar (eða framlags?) um 18,2
milljarða $ á næstu fimm árum.
Að frumvarpinu fyrir fúlltrúadeild-
inni hlýtur giftur verkamaður með
tvö eða fleiri börn nálega 4 $ eftir-
gjöf (framlag?) fyrir hverja 10 $, sem
hann vinnur sér inn, upp að 8.500 $
á ári, í stað 2,50 $ nú. Fátæktarmörk
í Bandaríkjunum eru sögð vera
11.500 $ árstekjur fyrir „þriggja
manna" fjölskyldu, en 14.750 $ árs-
tekjur fyrir „fjögurra manna" fiöl-
skyldu.