Tíminn - 29.09.1993, Page 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 29. september 1993
■ i et_'_ ■ . w »"
iioftBS otgrun mgqofg
Landsþing LFK á
Hallormsstað
Á landsþinginu á Hallormsstað 9. október verður rætt um sveitarstjómarkosn-
ingamar að vori.
Dagskrð:
1. Hveis vegna starfa konur stutt I sveitarstjómum? Frummælandi Herdls Sæ-
mundsdóttir bæjarfulltnji.
2. Yfir þröskuldinn. Frummælandi Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi.
3. Áfram til átaka. Frummælandi Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaöur.
Fnmkvæmóastjóm LFK
Norðuriandskjördæmi eystra
Kjördæmisþing verður haldið 16. október næstkomandi.
Formenn féiaga enr hvattir til aö halda aðalfundi og kjósa fulltrúa á þingið. Dag-
skrá og fundarstaöur nánar auglýst slöar.
KFNE
Suðuriand
Kjördæmisþing framsóknarmanna ð Suðuriandi verður haldið laugardaginn 23.
október 1993 í Vestmannaeyjum og hefst kl. 10.00 árdegis. Dagskrð nánar aug-
lýst sfðar.
StfómKSFS
Kópavogur—Opið hús
Opið hús veröur hjá Framsóknarflokknum i Kópavogi á laugardögum kl. 10-12
að Digranesvegi 12. Komiö og spjalliö um bæjar- og landsmálin. Heitt á könn-
unni.
Ungir framsóknarmenn
í Reykjavík
Aöalfundur Félags ungra framsóknarmanna verður haldinn að Hafnarstræti 20,
3. hæð, fimmtudaginn 30. september n.k. kl. 20.00.
A dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Allir ungir framsóknarmenn velkomnir.
Nýsköpun í atvinnulífi —
Atvinnuleysi útrýmt
Til umræðu á fyrsta fundi Komhlöðuhóps framsóknarkvenna:
Jón Eriendsson, yfirverkfræðingur upplýsingaþjónustu Háskóla (slands, kynnir
nýjar hugmyndir um hvemig útrýma megi atvinnuleysi.
Fundurinn hefst I Litlu-Brekku f Lækjarbrekku fimmtudaginn 30. september, kl.
17.30.
XI. 18.30 verður borinn fram léttur kvöldverður á vægu verði.
Tilkynnið þátttöku f slma 624480, fyrir hádegi.
Allir vefkomnir.
(BLAÐBERAVÁNTAR
A
B0LSTARHLIÐ - SKAFTAHLIÐ -
LANGAHLÍÐ
Iíminn
Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17
Jónas Guðmundsson
Fæddur 1. ágúst 1921
Dáinn 21. september 1993
Jónas Guðmundsson andaðist í
Reykjavík 21. sepL sl. og verður
jarðsunginn frá Landakirkju í dag,
29. sepL Jónas fæddist 1. ágúst 1921
í Flatey á Skjálfanda. Foreldrar hans
voru Guðmundur Karl Jónsson og
María Jónasdóttir, hjón að Kross-
húsum í Flatey. Þau hjónin eignuð-
ust 11 böm, en af þeim komust 8 til
fullorðinsára. Að Jónasi gengnum
em nú 4 systkini á lífi, þrír bræður
og ein systir. Bræðumir búa fyrir
norðan, tveir á Húsavík og einn á
Akureyri. Systirin býr í Kópavogi.
Um skólagöngu var ekki að ræða,
nema barnaskóla. Lífsbaráttan var
hörð og bamahópurinn stór. Jónas
byrjaði snemma að vinna. Tíu ára
gamall byrjaði hann að stokka upp
og beita og svo tóku sjóróðramir
við. Árið 1941 kom Jónas hingað til
Vestmannaeyja og var til sjós í tutt-
ugu ár. Hann var á Skúla fógeta í 10
vertíðir. Sjómannsferil sinn endaði
hann á Stíganda, hjá Helga Berg-
vinssyni. Á sjómannsámm sínum
fór Jónas á mótornámskeið á vegum
Fiskifélags íslands og öðlaðist rétt-
indi sem mótoristi, eins og það var
kallað í þá daga. Jónas var verkstjóri
í Fiskiðjunni frá 1961-1973. Frá því
að gos hófst í janúar 1973 vann Jón-
as hjá Viðlagasjóði í Reykjavík og
starfaði þar til september sama ár,
en þá flutti hann aftur heim til Eyja
og hóf störf hjá Kaupfélagi Vest-
mannaeyja. Hann vann lengst af
sem verslunarstjóri hjá Timbursöl-
unni. Hann hætti störfum í lok
marsmánaðar á þessu ári, vegna
veikinda. Veikindi sín bar hann af
karlmennsku, en síðustu 9 mánuð-
ina var hann sárþjáður.
Jónas kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Söm Stefánsdóttur frá Hrísey,
21. desember 1952. Þau hófu búskap
í Framnesi hér í bæ, en í maí 1953
kaupa þau húsið Landakot, nú Mið-
stræti 26. Böm þeirra em:
Stefán Óskar, verkstjóri hjá Bæjar-
veitum Vestmannaeyja, kvæntur
Sigurlaugu Grétarsdóttur, gjaldkera
hjá sýslumannsembættinu hér í Eyj-
um. Þau eiga einn son, Grétar.
Guðmundur Karl, búsettur í
Reykjavík, ókvæntur.
Vestmannaeyjum
Anna María húsmóðir, búsett í
Reykjavík, gift Jóhanni Valdimars-
syni. Þau eiga þrjú böm: Söm,
Valdimar og Rakel.
Áður átti Jónas dóttur, Ástu Maríu,
með Helgu Valtýsdóttur. Ásta María
er búsett hér í Eyjum, gift Hallgrími
Júlíussyni netagerðarmeistara. Þau
eiga þrjú börn: Þorstein, Júlíus og
Þóm.
Barnabömin em orðin sjö.
Jónas var mjög bamgóður og hafði
yndi af að umgangast börn.
Við Jónas áttum samleið hátt í íjóra
áratugi, á margvíslegum vettvangi.
Ég kynntist honum sem vinnufé-
laga, þar sem græskulaust spaug bar
á góma. Ég kynntist einnig kórfélag-
anum Jónasi, en við sungum saman
í Landakirkju í 19 ár. Jónas mætti
alltaf íyrstur. Kátur og Ijúfur félagi,
en tók af alvöru þátt í kórstarfinu.
Hann vissi, að taka þarf félagsstarf
alvarlega, ef árangur á að nást. Jón-
as var oftast með flestar mætingar,
oft með 150 mætingar eftir árið.
Hann hafði yndi af söng, hafði góða
rödd og var fljótur að læra lög og
texta. Hann stóð á söngpallinum
meðan stætt var, jafnvel eftir að
hann var orðinn alvarlega sjúkur.
En lengst áttum við Jónas samleið
í Framsóknarfélagi Vestmannaeyja,
eða hátt í fjömtíu ár. Jónas var
stefnufastur og undansláttur var
honum ekki að skapi. Hann var
gagnrýninn og fengu samherjar
hans oft orð í eyra fyrir dugleysi.
Jónas tók mikinn þátt í kosninga-
baráttu. Hann var mjög harðfylginn
og vissi að sigur fæst ekki án bar-
áttu. Við félagar hans munum lengi
minnast skemmtilegra stunda í
sambandi við vinnu á kjördegi.
Ég tel mig hafa þekkt Jónas nokkuð
vel. Þó er nú svo, að enginn veit full-
komlega hvað í annars huga býr.
Jónas var dulur og ræddi aldrei um
sína persónulegu hagi. Ég hygg, að
þrátt fyrir létt spaug á vinnustað, þá
hafi Jónas innst inni verið mikill al-
vömmaður. Hann bar mikla um-
hyggju fyrir heimili sínu og fjöl-
skyldu. Hann var uppalinn í krepp-
unni og eins og margur, sem gekk í
gegnum þann erfiða skóla, þá vildi
hann kunna fótum sínum forráð í
efnalegu tilliti.
Þó að ég hafi nefht nokkur af fé-
lagsstörfum Jónasar, þá er margt
ótalið. Hann starfaði lengi að verka-
lýðsmálum og var í stjórn Verkalýðs-
félags Vestmannaeyja um langt ára-
bil. Þá var hann virkur félagi í Norð-
lendingafélaginu og var heiðursfé-
lagi þess. Þá var hann um langt
skeið varamaður f sóknamefnd
Landakirkju.
Eins og áður er sagt hér að framan,
þá vann Jónas hjá kaupfélaginu,
lengst af sem verslunarstjóri hjá
Timbursölunni, sem lengst af var í
eigu Kaupfélags Vestmannaeyja, síð-
an Kaupfélags Árnesinga.
Jónas var harðduglegur og ósér-
hlífinn. Ég var lengi í stjóm Kaupfé-
lags Vestmannaeyja og síðar um
nokkum tíma samverkamaður Jón-
asar. Ég get fullyrt að leitun er að
samviskusamari og heiðarlegri
manni. Mér fannst oft að honum
væri ekki þakkað sem skyldi.
Nú er Jónas horfinn sjónum okkar.
Sem félagi hans á margvíslegum
vettvangi þakka ég honum að leiðar-
lokum samfylgdina. Hann var alltaf
heill í starfi, hálfvelgja var honum
ekki að skapi. Ég sendi Söru, böm-
unum og öllum ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Jóhann Björasson
Merkur maður skrifar móður
Breiðfirðingur, tímarit Breiðfirð-
ingafélagsins, er kominn út í 51.
sinn og er efnismikill og fróðlegur
að vanda.
Lengsta greinin í ritinu er eftir
Lúðvík Kristjánsson og er fyrir-
sögn hennar „Bréf til móður. Þank-
ar um Sigurð Kristófer Péturssorí'.
Rakinn er ferill þessa merka
manns, sem átti ótrúlega ævi.
Hann ólst upp í fátækt og 16 ára
gamall var hann vistaður á holds-
veikraspítalanum í Laugarnesi og
átti þaðan ekki afturkvæmt. Lík-
aminn var sjúkur og sár, en Sigurði
Kristófer vom gefnar betri gáfur og
meira andlegt þrek en öðmm
mönnum. Hann þroskaði anda
sinn og nam og kenndi af sjúkra-
beði sínum og liggja ekki færri en
18 rit eftir hann, þýdd og frumsam-
in.
Sigurður Kristófer var skáld,
heimspekingur, fræðimaður og
kennari, en honum var ekki nóg að
nema visku og fræði, hann varð
líka að skila fróðleik til annarra.
Eitt höfuðrit Sigurðar Kristófers,
„Hrynjandi fslenskrar tungu“, er
fáu eða engu öðm líkt og er vitnis-
burður um virðingu hans fyrir
móðurmálinu.
Margir af virtustu höfundum
þjóðarinnar hafa minnst Sigurðar
Kristófers Péturssonar að verðleik-
um og er ritgerð Lúðvíks Kristjáns-
sonar kærkomin viðbót við þá um-
fjöllun, ekki síst það sem hann hef-
ur grafið upp um æskuárin og sam-
band móður og sonar, sem vom
Siguröur Kristófer Pétursson.
eins snauð af veraldlegri velgengni
og þau vom rík af ást og andlegri
reisn.
Margt er fleira forvitnilegt í Breið-
firðingi og má þar geta greinarinn-
ar um olíubrúsa og húfu sem hall-
ast út í annan vangann og em
gamlar minningar um Stein Stein-
arr sem Ingi Bogi Bogason skráði.
Páll Lýðsson skrifar um sýslu-
mannaréttarfar.
Minningar Kristjönu V. Hannes-
dóttur bjóða framhaldi heim í
næstu ritum. Grein er um tvær
systur úr Stykkishólmi, Gróu og
Þorbjörgu Sigvaldadætur, sem báð-
ar urðu bóndakonur í Dölum.
Greinin er skráð af Halldóri Ólafs-
syni. Systir þeirra Ólöf rekur ferða-
minningu, er hún vitjar æskuslóð-
anna, en hún bjó langa ævi í Borg-
amesi.
Margt er fleira í heftinu, sem ekki
er getið hér og þarf ekki að vera
ómerkara fyrir þá sök. OÓ
Tíminn
óskar eftir umboðsmönnum á
Hvolsvelli og Laugarvatni
Tíminn
Lynghálsi 9 - Sími 91-686300