Tíminn - 29.09.1993, Page 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113- SlMI 73655
labriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
CJvarahlutir
Hamarshöfða 1
TVÖFALDUR1. vinningur
Iíiniiin
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPT. 1993
Verðlækkun á bjór, en hækkun á verði sterkra drykkja og tóbaks:
út á fíklana
Friðrik gerir
(gær lækkaði verð á bjór, bæði Innlendum og erlendum, en hækk-
un varð á verði sterkra drykkja og tóbaks hjá Áfengis- og tóbaks-
verslun ríksins.
Að meðaltali lækkaði verð á innlendum bjór um 7,19%, en inn-
flutts um 5,84%. Hinsvegar hækkaöi verð á víni og sterkum drykkj-
um um 2,21% og tóbak hækkaði í verði um 6,24% að meðaltali.
Ástæðan fyrir að bjór lækkar í verði
er m.a. að gjöld á bjór eru lækkuð
verulega, en vín og sterkir drykkir
hækka hinsvegar í verði til sam-
ræmis við breytingar á innkaups-
verði og gengi krónunnar sem orðið
borgarleikhús
hafa undanfama 9 mánuði.
Sem dæmi um verðbreytingar, þá
lækkar verð á einni kippu af Löwen-
brau-bjór í dósum úr 880 krónum í
820 og Holsten-bjór úr 850 kr. í 800
krónur. Aftur á móti hækkar verð á
einni flösku af St. Emilion- rauðvíni
úr 1120 krónum í 1260 kr. og flaska
af Smimoff-vodka úr 2340 krónum í
2380 krónur.
Hinsvegar er um umtalsverða verð-
hækkun að ræða á tóbaksvörum.
Sem dæmi, þá hækkar verð á einum
Winston-sígarettupakka úr 244
krónum í 260, eða um 6,54%, sem
þýðir að 500 krónur duga ekki leng-
ur fyrir tveimur pökkum. Half and
Half- reyktóbak hækkar úr 323
krónum í 344 kr., eða um 6,49%, og
einn pakki af Fauna-vindlum hækk-
ar um tíkall; úr 340 krónum í 350
krónur.
Samkvæmt ÁTVR eru 3,79% af
6,24% meðaltalshækkun á tóbaks-
verði sökum breytinga sem orðið
hafa á innkaupsverði tóbaks í ísl.
krónum frá 14. desember 1992, þeg-
ar verðskrá var síðast gefin út. Af-
gangurinn, eða hækkun uppá
2,45%, er væntanlega ekkert annað
en aukin skattheimta ríkissjóðs.
-grh
Ronja ræningjadóttir aftur á fjalirnar
Ronja ræningjadóttir eftir Astrid
Lindgren verður aftur á fjölum
Borgarleikhússins í haust og verð-
ur fyrsta sýningin þann 10. októ-
ber kl. 14.00. Ronja átti miklum
vinsældum að fagna á síðasta leik-
ári og urðu sýningar 45 talsins,
alltaf fyrir fullu húsi.
Allir þekkja söguna um Ronju og
baráttu hennar fyrir friði og sátt í
skóginum. Þessi vinsæla bama-
saga er sýnd í danskri leikgerð
með söngvum eftir virtasta
söngvasmið Dana, Sebastian.
Meðal leikenda em Sigrún Edda
Bjömsdóttir, Gunnar Helgason,
Guðmundur Ólafsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir og Theódór
Júlíusson. Leikstjóri er Ásdís
Skúladóttir og söngstjóri Margrét
Pálmadóttir. Auður Bjamadóttir
samdi dansa og gerð leikmyndar
og búninga annaðist Hlín Gunn-
arsdóttir. Þýðendur em Þorleifur
Hauksson og Böðvar Guðmunds-
son.
Aðeins em áætlaðar 10 sýningar
og hefjast þær eins og fyrr segir
þann 10. október.
Úr Ronju ræningjadóttur.
Ungir sjálfstæðis-
menn senda krötum
tóninn:
Kratar spari
líka eitthvað
m jrrnmm
sjalfir
Ungir sjálfstæðismenn gagn-
rýna Alþýðuflokkinn, einkum
félagsmálaráðherra, harðlega I
ályktun, sem þelr senda frá sér
eftir stjómarfund SUS í Úthlíð
á dögunum.
f ályktun SUS er meðal annars
fjallað um ríkissjóðshaliann og
gagnrýna þeir ríkisstjómina fyr-
ir að ganga ekki nægjanlega
hart fram f niðurskurði og hag-
ræðingu, ekki síst í Ijósi þess að
eitt af markmiðum ríkisstjóm-
arinnar hafi verið að ná halla-
lausum fjárlögum. í ályktuninni
segir: „SUS harmar upphlaup
alþingismanna Alþýðuflokksins
og einstakra þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins í fjölmiðlum og
tilraunir þeirra til að gera hlut
sinn við niðurskurð ríkisfjár-
mála meiri en efni em til. Jafn-
framt auglýsir SUS eftir niður-
skurðartillögum frá ráðhermm
Alþýðuflokksins f þeirra tigin
ráðuneytum. Staðreyndimar
tala sínu máli og hvergi hefur
lengra verið fariö fram úr fjár-
lögum en í ráðuneytum Alþýðu-
flokksins. Til marks um það má
nefha að á síðasta áratug jukust
útgjöld til heilbrigðismála um
35% að raungildi og útgjöld til
félagsmála um hart nær 180%.“
Þá er einnig í ályktuninni talað
um að vinnubrögð Jóhönnu
Sigurðardóttur séu óviðunandi
og að hún vinni að framgöngu
mála sinna „með gíslatöku“.
Loks hvetja ungir sjálfstæðis-
menn ráðherra sína til dáða í
frekari niðurskurði og vilja að
þeir gangi enn „harðar fram við
niðurskurð fjárlaga". -BG
...ERLENDAR FRETTIR...
DENNI DÆMALAUSI
MOSKVA — Bóris Jeltsln Rúss-
landsforseti lét umkringja Hvíta hús-
ifl I Moskvu I gær með vlggirðingum
og gaddavfr og jók þannig þrýsting
á keppinauta sina innan dyra um afl
gefast upp eftir að hafa sýnt neyðar-
fyrirskipunum hans andstöðu. Rúsl-
an Khasbúlatov, forsefi innilokaða
rússneska þingsins, sagflist ekki
ætla að láta undan þrýstingi um að
yfirgefa bygginguna og að sérhverri
tilraun til afl gera áhlaup á hana yrði
mætt með vopnaðri andstöðu. Lög-
regla skipaöi verjendum þinghúss-
ins að afhenda vopn s(n innan sól-
arhrings.
TBILISI — Eduard Shevardnadze,
leiötogi Georgiu, sneri aftur til Tbilisi
i gær eftir að hann neyddist til að
láta uppreisnarmönnum aöskilnað-
arsinna eftir Sukhumi, héraðshöfuð-
borg Abkhaslu. Shevardnadze sór
að Georglumenn myndu ná Suk-
humi aftur undan yfirráðum aðskiln-
aflarsinnanna, jafnvel þó að þafl
tækist ekki meflan hann sjálfur væri
Iffs.
IMOSKVU sökuðu Rússar abkha-
slska uppreisnarmenn um að brjóta
vopnahlé mefl þvi aö taka georg-
fsku hafnarborgina Sukhumi á sitt
vald, en sögflu þafl einkennilegt að
leiðtogi Georgfu, Eduard Shevardn-
adze, hefði kennt yfirvöldum (
Moskvu um ósigur hermanna sinna.
SARAJEVO — Forystumenn mús-
lima samþykktu i gær að fallast á
nýjustu friöaráætlunina um Bosníu,
að þvf tilskildu að „svæðum sem
tekin eru með valdi" verði skilað til
smárikis múslima sem sett verði á
laggimar, að sögn útvarpsins (
Sarajevo. I GENF ætla alþjóölegu
sáttasemjaramir Owen lávarður og
Thorvald Stoltenberg að stefna að
þvf aö friðarsamkomulag um Bosnlu
verði undirritað hið fyrsta ef það
verður samþykkt á þvi sem eftir er
af Bosniuþingi f Sarajevo, að þvl er
talsmaður þeirra sagði.
JERÚSALEM — Jitzhak Rabin, for-
sætisráðherra Israels, hefur neitað
fréttum um að hann hafi hitt Hús-
sein Jórdanlukonung á laun. En
honum hefur ekki tekist að sann-
færa alla I Israel. Israelskir fjölmiölar
héldu þvf fram [ gær að leiðtogamir
tveir hefðu hist (jórdönsku hafnar-
borginni Aqaba til afl ræfla um
sögulegan samning Israela og PLO
f þessum mánuði og þau áhrif sem
honum fylgi.
TEMARA, Marokkó — Eldar kvikn-
uðu I marokkóskri farþegalest f gær,
þegar tankflutningalest, hlaðin nafta,
rakst á hana. 14 fórust og 80 særö-
ust af völdum árekstursins, afl sögn
jámbrautarmanna.
CARACAS, Venesúela — Gas-
leiðsla meðfram fjölfömum vegi við
Caracas sprakk si. fimmtudag og
létu a.m.k. fjórir lífiö og 15 særðust,
sagði i fréttum sjónvarps i gær.
JÓHANNESARBORG — Mannrétt-
indahópur spáði þvi ( gær að a.m.k.
2000 manns myndu láta llfiö i of-
beldisverkum vegna stjómmála (
Suður-Afríku héðan I frá að telja
fram að kosningum allra kynþátta f
aprfl nk.
VARSJÁ — Fyrrum kommúnistar f
Póllandi sögðu i gær að þeir hefðu
komist að frumsamkomulagi við
annan vinstrisinnaðan flokk um að
reyna að mynda samsteypustjóm.
GENF — Oliumálaráðherrar OPEC-
rfkjanna, sem er áfram um aö af-
stýra verðhruni á ollu, tilkynntu I
gær að þeim hefði orðið eitthvað
ágengt, þar sem þeir leituðust við á
fjórða degi að ganga frá framleiöslu-
samningi sem gæti komiö verðinu
upp úr þeirri lægð sem það hefur
verið f undanfarin þrjú ár.
NÝJA DELHI — 13 daga verkfall
indverskra vörubflstjóra krafðist f
gær fyrstu mannfómarinnar, þegar
lögregian skaut bilstjóra f hópi verk-
fallsmanna f rikinu Tamil Nadu I
suflurhluta landsins, að sögn emb-
ættismanna verkalýðsfélaga og rlk-
isstjómar.