Tíminn - 23.10.1993, Side 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn«.68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—6Ö-76-4ö—Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48..
ii
ÉnBÍ
Laugardagur
23. október 1993
201. tbl. 77. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 125.-
Aðalfundur Alþjóðasambands landsfélaga
Rauða krossins og Rauða hálfmánans hefst
á Englandi á mánudag
Guðjón býð-
ur sig fram
til formanns
Framleiðsla Seltzerflutt til Keflavíkur?
Bretar íhuga að
kaupa Davíð út
Guðjón Magnússon, formaður
Rauða kross íslands, býður sig
fram til embættis formanns Al-
þjóðasambands landsfélaga
Rauða krossins og Rauða hálf-
mánans, en aðalfundur sam-
bandsins verður haldinn í Birm-
ingham á Englandi dagana 25.-
29. október. Kosningin fer fram
næstkomandi mánudagskvöld.
Guðjón býður sig fram gegn
sitjandi formanni, Mario Vill-
arroel Lander frá Venezúelaa.
Guðjón nýtur stuðnings landsfé-
laga Rauða krossins á Norður-
löndum og víðar í Evrópu. Hann
hefur fengið stuðningsyfirlýsing-
ar og hvatningar til framboðs frá
landsfélögum í öllum heimsálf-
um.
Guðjón hefur um árabil tekið
virkan þátt í starfi Rauðakross-
hreyfingarinnar á alþjóðavett-
vangi. Fyrir fjórum árum var
hann kjörinn varaforseti Al-
þjóðasambandsins og hefur tekið
þátt í starfi fjölda nefnda fyrir
þess hönd. Undanfarin tvö ár hef-
ur hann verið formaður Fram-
tíðamefndar Alheimshreyfingar
Rauða krossins og Rauða hálf-
mánans, en skýrsla nefndarinnar
verður lögð fyrir aðalfundinn.
Svaladrykkjaframleiðslan Seltzer
Drinks Iceland Ltd. í Bretlandi hefur
hug á að kaupa eignarhlut Sólar hf. í
íslensku bergvatni. Jafnframt er til
athugunar að flytja starfsemina úr
húsnæði Sólar í Þverholtinu til Kefia-
víkur.
íslenskt bergvatn framleiðir og tapp-
ar á gosdrykkinn Seltzer og flytur út
íslenskt vatn.
Aðilar frá Seltzer í Bretlandi höfðu í
síðustu viku beint samband við bæjar-
stjórann í Keflavík og spurðust fýrir
um framtíðarhúsnæði undir starfsem-
ina.
„Hann sagði við mig, þessi maður:
„Ég þarf að vera farinn út úr húsnæð-
inu og kominn í gang annars staðar
10. febrúar á næsta ári.“ Maðurinn var
mjög áhugasamur um að drífa þetta
alít áfram af fullum krafti," segir Ellert
Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavík.
Davíð Scheving Thorsteinsson, for-
stjóri Sólar, kannast aftur á móti ekk-
ert við þettæ „Það hefur enginn maður
frá Englandi talað við bæjarstjórann í
Keflavík. Ekki hef ég trú á því. Það
hlýtur að vera bara verkstjórinn
héma, sem hefur talað við bæjarstjór-
ann.“
íslenskt bergvatn er sameign Sólar
hf. og bresku aðilanna, en hlutimir
skiptast jafnt. Fyrirtækið leigði Seltz-
er Drinks Iceland Ltd. vélar til átöpp-
unar og dósaframleiðslu til sex mán-
aða hinn 10. ágúst sl. Samningurinn
rennur út í byrjun febrúar á næsta ári.
Jakinn hættir eftir
18 ára starf
Björn Grétar
endurkjörinn
formaður
Björn Grétar Sveinsson var
endurkjörinn formaður
Verkamannasambands ís-
lands, en þingi sambandsins
lauk í gær. Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
Dagsbrúnar, gekk úr fram-
kvæmdastjórn sambandsins,
en þar hefur hann átt sæti síð-
an árið 1975, þar af sem for-
maður í 16 ár.
Elínborg Magnúsdóttir frá
Akranesi var kjörin í fram-
kvæmdastjórn VMSÍ í stað
Guðmundar J. Kjörnefnd
stakk upp á Hrafnkeli A. Jóns-
syni, en hann hafnaði því að
vera í framboði. f hans stað
var stungið upp á Elínborgu
og Eiríki Stefánssyni frá Fá-
skrúðsfirði og var Elínborg
kosin með 68 atkvæða mun.
Jón Karlsson var endurkjör-
inn varaformaður VMSÍ, Her-
var Guðmundsson var kjörinn
ritari og Halldór Bjömsson
var endurkjörinn gjaldkeri.
Hervar tekur við af Karítas
Pálsdóttur, sem kjörin var for-
maður fiskvinnsludeildar
VMSÍ.
-EÓ
Davíð Schevlng Thorstelnsson, for-
s^óii Sólar: „Þaö hefur englnn Breti
talað vlð bæjarstjórann."
Að sögn þess verkstjóra, sem Davíð
Scheving vitnar til, Harðar Baldvins-
sonar, hefur Seltzer Drinks í Bretlandi
hug á að kaupa þann vélbúnað, sem ís-
lenskt bergvatn á, áíyllingarbúnað fyr-
ir gosdrykki og vatn auk plastverk-
smiðju, sem framleiðir dósimar undir
gosið. Að sögn Harðar hafa Bretamir
hug á að kaupa hlut Sólar í tækjabún-
aðinum og eiga framleiðsluna alger-
lega sjálfir.
Verksmiðjuhúsnæðið í Þverholtinu
er til, og Davíð Scheving fullyrðir að
leigusamningurinn við Seltzer í Bret-
landi verði framlengdur. Varðandi
staðsetninguna segir Davíð Scheving
Hann segir embættið hafa af
þessu áhyggjur þar sem dæmi em
um að sjúkdómar eins og lifrar-
bólga og eyðni hafi náð að breið-
ast út erlendis þar sem þessi
starfsemi er þekkt. Hann segir þó
að betra sé að leyfa þessa starfsemi
undir eftirliti en banna hana og
hefur heilbrigðisnefnd Reykjavík-
ur samþykkt reglur þar af lútandi.
„Landlæknir vill helst að húð-
flúr sé bannað en það samræmist
kannski ekki nútíma þjóðfélagi að
hafa svoleiðis reglur,“ segir Matt-
hías. Minna má á að margir íslend-
ingar hafa á ferðum sínum erlend-
is látið húðflúra sig á misjafnlega
hreinlegum stofum.
Matthías segir að þrátt fyrir regl-
ur sé alltaf hætta á smitun og
nefnir reynslu Svía sem dæmi.
„Þar hefur lifrarbólga dreifst út frá
einum og sama manninum til
Ellert Elríksson, bæjarstjórí I Kefla-
vík: „Bretlnn var mjög áhugasam-
ur.“
að núverandi húsnæði í Reykjavík sé
jafn líklegt til að verða fyrir valinu og
aðrir staðir. íslenskt bergvatn hafi í
langan tíma unnið að framtíðarskipan
fyrirtækisins. f þeim viðræðum hafi
verið rætt við mörg bæjarfélög.
„Þetta er ekkert annað en framhald á
þeirri vinnu, sem hefur staðið yfir í tvö
ár, og ekki neitt sem liggur á. Þessir
menn koma hingað reglubundið frá
Englandi tvisvar í mánuði. Það er eng-
inn á leiðinni til þess að tala við Kefl-
víkinga sérstaklega."
Ekki náðist í framkvæmdastjóra
Seltzer Drinks Ltd. í Bretlandi.
-ÁG
fiölda sjúklinga. Sé hins vegar farið
eftir settum reglum er hættan
miklu minni,” segir Matthías.
Smithætta er samt ekki eina
ástæðan sem hann nefnir gegn
húðflúri. “Þetta er varanlegt og
það er ekki hægt að ná þessu af
nema með skurðaðgerð.” Hann
telur að þeir sem þannig vilji afmá
ummerkin verði sjálfir að standa
straum af kostnaðinum.
í reglum heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur er kveðið á um að afla
beri samþykkis landlæknis til húð-
flúrs en nefndin veitir leyfi til
rekstursins. Þá má ekki flúra ein-
staklinga undirlö ára aldri nema
með skriflegu leyfi foreldra og for-
ráðamanna. Þá má ekki húðflúra
neinn sem er undir áhrifum áfeng-
is eða lyfia og húðflúrari verður að
gæta ýtrasta hreinlætis í meðferð á
nálum og öðru sem til þarf. -HÞ
Nýtt æði virðist vera í uppsiglingu:
Otrúlega marg-
ir vilja opna
húðflúrstofur
Skyndilegur áhugi á aö reka húöflúrstofur viröist hafa blossaö
upp hériendís aö undanfömu. „Það em ótrúlega margir sem hafa
áhuga á þessum rekstrí," segir Matthías Halldórsson aðstoöar-
landlæknir en fimm aðilar hafa leitað til embættisins aö undan-
fömu.